Íslenska Stríðsárasafnið á Reyðarfirði

 

Spítalakampi við Hæðargerði
730 Reyðarfirði

Sími: 470-9063 og 899-9089,
Fax: 476-1173.
Netfang: safn@fjardabyggd.is
peturs@fjardabyggd.is

Opið daglega frá 1. júní til 31. ágúst frá 13:00 - 18:00.

Utan þess tíma, eftir samkomulagi við safnvörð.


Aðgangseyrir / Admission


Fullorðnir (16 - 67 ára) ........ kr. 400.
Námsmenn ......................... kr. 200.
Hópar (10+) á mann............ kr. 300.
Börn (0-15) ára.................... ókeypis.
Eldriborgarar (67 ára +)....... ókeypis.
Félagar í ICOM og FÍSOS...... ókeypis.
  
Adults (age 16 - 67)........... kr. 400.
Students............................ kr. 200.
Grups (10+) pr./per............ kr. 300.
Children (age 0 - 15)........... free.
Senior citizens (age 67+)...... free.
ICOM members.................... free.


Um Stríðsárasafnið


Stríðsárin eru eitthvert litríkasta tímabilið í íslenskri menningarsögu á síðari öldum. Þau nutu lítillar virðingar lengst af en hafa loks fengið uppreisn æru. Íslenska stríðsárasafnið á Reyðarfirði var reist, árið 1995, í þeim tilgangi að gera fólki kleift að ferðast aftur til daga hersetunnar og ýmist rifja upp gömul kynni eða stofna til nýrra. Megináhersla er lögð á lífið á stríðsárunum og áhrif hersetunnar á íslensku þjóðina. Sýningar safnsins snúast um að koma þeim til skila á lifandi og skemmtilegan hátt. Á stríðsárunum voru á Reyðarfirði um 4000 hermenn, breskir, kanadískir, norskir og bandarískir. Enda þótt fjöldinn hafi verið enn meiri á öðrum stöðum hafa hlutföllin kannski hvergi verið jafn yfirþyrmandi enda Reyðfirðingar aðeins um 300 talsins. Þessi fjöldi hermanna gerði það að verkum að á svipstundu breyttist Reyðarfjörður úr viðburðarlausu smáþorpi með viðvarandi fátækt og atvinnuleysi í stað þar sem framboð var nóg á vinnu og menningarlíf reis í æðra veldi. En styrjöldin varpaði líka skugga sínum yfir Reyðarfjörð því þýskar flugvélar lögðu oft leið sína þangað í njósnaferðir. Þá fóru loftvarnarflautur á stað og byssur setuliðsins geltu að óboðnum gestum. Þá þustu Reyðfirðingar í loftvarnarbyrgin sem voru víða í þorpinu.