Safnahúsið í Neskaupstað

Náttúrugripasafn Austurlands
Málverkasafn Tryggva Ólafssonar
Sjó- og smiðjumunasafn Jósafats Hinrikssonar

Egilsbraut 2, 740 Neskaupstað.

Opið alla daga frá 1. júní til 31. ágúst.

Opnunartími: 13:00 - 17:00.



Aðgangseyrir / Admission

Fullorðnir (16 - 67 ára)........ kr. 400.
Námsmenn........................ kr. 200.
Hópar (10+) á mann........... kr. 300.
Börn (0-15) ára................. ókeypis.
Eldriborgarar (67 ára +)...... ókeypis.
Félagar í ICOM og FÍSOS.... ókeypis.
 
Adults (age 16 - 67)........... kr. 400.
Students........................... kr. 200.
Grups (10+) pr./per............ kr. 300.
Children (age 0 - 15).............. free.
Senior citizens (age 67+)......... free.
ICOM members...................... free.


Frá 1.september til 31. maí eftir samkomulagi við Náttúrustofu Austurlands í síma 477-1774.



Um Náttúrugripasafnið


Náttúrugripasafnið í Neskaupstað var stofnað 1965. Upphafsmaður að stofnun safnsins var Bjarni Þórðarson þáverandi bæjarstjóri. Hjörleifur Guttormsson líffræðingur var fyrsti forstöðumaður safnsins og vann að uppsetningu þess. Fyrsta sýning var opnuð í Gagnfræðaskólanum í Neskaupstað sumarið 1970. Sýning safnsins var síðan opnuð í leiguhúsnæði að Mýrargötu 37 sumarið 1971. Systkinin Jóhann og Sigrún Sigmundarbörn gáfu safninu íbúðarhús sitt að Miðstræti 1 árið 1987 en áður hafði Jóhann gefið safninu steinasafn sitt sem hefur að geyma m.a. mikið af slípuðu efni. Safnið flutti í eigið húsnæði að Miðstræti 1 vorið 1989.

Náttúrugripasafnið hefur unnið að umhverfisrannsóknum m.a. á háleninu NA Vatnajökuls vegna virkjanaframkvæmda og annast nú eftirlit og ráðgjöf vegna mannvirkjagerðar fyrir Náttúruvernd ríkisins.



Í mars 2002 skrifaði Fjarðabyggð undir samning við Náttúrustofu Austurlands þess efnis að Náttúrustofa tekur við rekstri safnsins fyrir sveitarfélagið. Gildir samningur þessi frá áramótum 2001/2002 og kemur hann til með að styrkja báðar þessar stofnanir mjög í hlutverki sínu. Guðrún Á. Jónsdóttir forstöðumaður Náttúrustofu er því einnig forstöðumaður Náttúrugripasafnsins í Neskaupstað.



Safnið hefur að geyma flesta íslenska fugla auk fjölda flækinga ásamt ágætu fiskasafni með ýmsum sjaldséðum fiskum. Einnig eru í safninu ýmsir gripir af sjávarbotni, þar á meðal mjög gott safn skeldýra. Viltu íslensku spendýrirn eiga sína fulltrúa á safninu og þar er einnig mjög gott steinasafn. Þá varðveitir safnið austfirkst plöntuvísindasafn og skordýrasafn.

Um málverkasafn Tryggva Ólafssonar

Um sjó- og smiðjumunasafn Jósafats Hinrikssonar