Tjaldaðu á fallegum tjaldsvæðum í Fjarðabyggð

Tjaldsvæðið Reyðarfirði

Tjaldsvæðið á Stöðvarfirði

Tjaldsvæðið á Norðfirði

Í Fjarðabyggð eru skipulögð tjaldsvæði á öllum sex þéttbýlisstöðunum.  Á öllum tjaldsvæðunum er góð aðstaða til að grilla og leiksvæði fyrir börnin.  Sjá gjaldskrá 

  • Mjóifjörður

    Tjaldsvæðið er í umsjón ferðaþjónustunnar Sólbrekku.  Tjaldsvæðið er í kyrrð og ró í fallegu umhverfi.  Á tjaldsvæðinu er hreinlætisaðstaða og sturtur.

     

     

  • Eskifjörður

    Tjaldsvæðið við Bleiksána, við innkeyrsluna í bæinn, og er umvafið fallegri skógrækt.  Þar eru sturtur, snyrting, rafmagn fyrir húsbíla og gott leiksvæði fyrir börnin.  Stutt er í sundlaug, kaffihús og shellskála.  

  • Fáskrúðsfjörður

    Tjaldsvæðið er í friðsælu umhverfi við fallegt lón rétt innan við byggðina.  Þar eru klósett, rafmagn fyrir húsbíla og WC-losun.

  • Reyðarfjörður

    Tjaldsvæðið við innkeyrsluna í bæinn hjá Andarpollinum. Á tjaldstæðinu er ný og góð hreinlætisaðstaða með sturtum. Rafmagn fyrir húsbíla er á svæðinu og stutt í WC-losun fyrir húsbíla hjá Olís Reyðarfirði.

  • Stöðvarfjörður

    Tjaldsvæðið er við austurenda byggðarinnar.  Þar er klósett og wc- losun fyrir húsbíla.  Í skógræktinni við tjaldsvæðið eru skemmtilegar gönguleiðir og gott leiksvæði fyrir börnin.


  • Norðfjörður

    Nýtt tjaldsvæðið er við snjóflóðavarnargarðana ofan við bæinn í Drangagili.  Þar er góð hreinlætisaðstaða með sturtum, rafmagn fyrir húsbíla og leiksvæði fyrir börnin.  Þaðan er frábært útsýni yfir Norðfjarðarflóa.