Fjarðabyggð byggist upp af sjávarþorpum og eru fiskveiðar og vinnsla aðalatvinnuvegur.  Brygguveiði er ekki háð kvóta og hægt að stunda allan ársins hring.  Gjöfular silungsár og silungsvötn eru á svæðinu.  Helstu veiðiár eru Sléttuá, Norðfjarðará og Eskifjarðará, ásamt Dalsá í Fáskrúðsfirði.  Hægt er að veiða í Andapollinum á Reyðarfirði þar sem bleikju er sleppt í tjörnina á hverju vori.  Í Víkurvatni, eefst í Vöðlavík, er mikið af silungi. 

Fjarðabyggð er hluti af hreindýraveiðisvæði Austurlands.  Sjófuglaveiði er oft mikil við Austfirði á haustin og veturna og rjúpnalönd eru bæði fjölbreytt og góð í fjöllum Fjarðabyggðar.  Gott skotæfingasvæði er ofan við Eskifjörð með frábæru útsýni.

Sjóstangveiði á Stöðvawrfirði: Kirkjubær www.simnet.is/birgiral, sími: 475 8819

Hreindýraleiðsögn, sjófuglaveiði, rjúpnaveiði, bátaleiga, sjóstangveiði. Ferðaþjónustan Mjóeyri: www.mjoeyri.is, sími 477 1247. Hreindýraveiðar, www.hreindyr.is 

 
Veiðileyfi í Norðfjarðará eru seld í Fjarðasporti á Norðfirði, sími 477 1133