Stjórnsýsla sveitarfélagsins byggir á sveitarstjórnarlögum, samþykktum sveitarfélagsins, reglugerðum og samþykktum sem sett hafa verið um starfsemina auk sérstakra laga og reglugerða sem sett hafa verið um hina ýmsu málaflokka og starfsemi. Jafnframt gilda ýmis almenn lög um stjórnsýsluna eins og upplýsinga- og stjórnsýslulög, lög um persónuvernd o.s.frv.


Bæjarstjórn fer með æðsta vald í málefnum sveitarfélagsins og eru verkefni hennar skýrð í samþykktum um stjórn og fundarsköp bæjarstjórnar. Bæjarstjórn skal gæta hagsmuna bæjarins, vera í fyrirsvari fyrir hann og vinna að sameiginlegum velferðarmálum bæjarbúa. Bæjarstjórn annast þau verkefni sem henni eru falin í lögum, reglugerðum og samþykktum, setja samþykkir og gjaldskrár, staðfesta tillögur og fundargerðir, stjórna fjármálum, ákveða stjórnkerfi bæjarins, ráða bæjarstjóra og helstu starfsmenn sveitarfélagsins. Jafnframt að upplýsa íbúa um starfsemi og málefni sveitarfélagsins.

Bæjarstjórn kýs forseta bæjarstjórnar, fulltrúa í bæjarráð, aðrar nefndir, ráð og stjórnir samkvæmt ákvæðum laga, reglugerða og samþykktar um fundarsköp. Bæjarráð fer ásamt bæjarstjóra með framkvæmdastjórn bæjarins, fjármálastjórn og starfsmannastjórn, að því leyti sem slík stjórn er ekki öðrum falin. 


Hlutverk og valdsvið annarra nefnda, ráða og stjórna er skýrt í samþykktum bæjarstjórnar, lögum og reglum. Málefni sem tekin eru til umfjöllunar á fundum nefnda hljóta ekki staðfestingu fyrr en bæjarstjórn hefur fjallað um þau og afgreitt. Málefni á fundum nefnda eru færð í gerðarbækur og efni gerðarbóka tekin til umfjöllunar svo fljótt sem unnt er í bæjarstjórn.

Bæjarstjóri ásamt embættismönnum sveitarfélagsins sjá um afgreiðslu einstakra mála og framfylgja samþykktum og áætlunum bæjarstjórnar. Um störf embættismanna er fjallað í starfsmannastefnu Fjarðabyggðar, erindisbréfum, og lögum um opinbera starfsmenn.  

Sviðsstjórnendur funda vikulega og stjórnar bæjarstjóri fundum sviðsráðs. Á þeim vettvangi eru tekin upp sameiginleg málefni og farið yfir daglegan rekstur sviða og málaflokka sveitarfélagsins. 

Sjá nánar um verkefni embættismanna

Skipurit og stjórnskipurit

Þjónustu á vegum Fjarðabyggðar