Rannsóknarsjóður Fjarðabyggðar
og Landsbanka Íslands
Sjóðurinn var stofnaður þann 7. október 2005 með það að markmiði að hvetja háskólafólk til að vinna lokaverkefni sín í og um Fjarðabyggð og að efla samstarf Fjarðabyggðar við hinar ýmsu háskólastofnanir landsins og með því koma sveitarfélaginu Fjarðabyggð á markvissan hátt inn í íslenskt rannsóknarsamfélag. Þessu markmiði hyggjast stofnaðilar ná með því að veita styrk til valinna rannsóknarverkefna sem unnin eru í og um Fjarðabyggð.
Úthlutun
Úthlutun úr Rannsóknarsjóði Fjarðabyggðar og Landsbanka Íslands fer fram 15. mars ár hvert og er umsóknarfrestur 1. mars. (umsóknarfrestur er til 1. apríl 2012 og úthlutun fer fram um miðjan apríl) Allt að 4 verkefni geta hlotið styrk í hvert sinn og eru styrkupphæðir frá 50.000 - 100.000 kr.
Úthlutunarreglur
- Einungis er úthlutað til rannsókna sem unnar eru um Fjarðabyggð.
- Skilyrði fyrir styrkveitingu er að rannsóknaraðilar skili inn fullbúinni rannsóknaráætlun, samþykktri af leiðsagnarkennara.
- Lokaskýrslu skal skilað eigi síðar en ári eftir að úthlutun hefur farið fram, að öðrum kosti fyrnist viðkomandi úthlutun.
- Styrkur er greiddur í einu lagi við afhendingu lokaskýrslu viðkomandi rannsóknarverkefnis. Skýrslu skal skilað í tveimur eintökum.
- Skilafrestur umsókna er 1. mars ár hvert og fer úthlutun fram í síðasta lagi 2 vikum síðar.
- Ef þess er óskað mun sveitarfélagið reyna að koma til móts við rannsóknaraðila hvað varðar vinnuaðstöðu og gistipláss meðan á rannsóknarvinnu í Fjarðabyggð stendur.
Hugmyndabanki
Hugmyndir að verkefnum geta nemar m.a. sótt í hugmyndabanka sem er unninn í samstarfi við stofnanir og fyrirtæki á svæðinu.
Allar frekari upplýsingar um sjóðinn veitir upplýsinga- og kynningarfulltrúa Fjarðabyggðar í síma 470-9000 eða á tölvupóstfangið upplysingafulltrui@fjardabyggd.is
Hugmyndabanki
Umsóknareyðublað
Fréttir af starfi sjóðsins:
Þrjú verkefni styrkt af Rannsóknarsjóði
Fyrsti styrkurinn greiddur út
Fjórir fá styrk frá Rannsóknarsjóði
Ritgerðir sem hafa hlotið styrk frá sjóðunum: