Til Baka

Framhaldsskólaárin eru sveipuð ævintýraljóma í hugum okkar margra

Ávarp í blað nemenda Verkmenntaskóla Austurlands

Framhaldsskólaárin eru sveipuð ævintýraljóma í hugum okkar margra. Þá bindast menn vináttuböndum fyrir lífstíð og takast á við ný og ögrandi viðfangsefni í leik og starfi. Fyrir einstaklinginn er þetta mikið þroskatímabil og felur oftar en ekki í sér ákvörðun um hvað hann leggur fyrir sig að framhaldsskólanum loknum.

Gildi framhaldsskólans fyrir samfélagið er líka ótvírætt. Fyrir íbúa er það eftirsóknarvert að færi gefist á samfelldum skólaferli frá leikskóla til háskóla, þar sem fjölbreytt námsframboð, aðstaða og þjónusta er eins og best gerist. Efling menntasamfélagsins í Fjarðabyggð er meðal þeirra viðfangsefna sem mest áhersla er lögð á í sameinuðu sveitarfélagi. Í samvinnu við menntamálaráðuneytið var á síðasta ári unnin skýrsla um eflingu framhaldsskólans. Hugmyndir og tillögur í þeirri skýrslu verða nú unnar áfram í samstarfi menntamálaráðuneytis, Verkmenntaskólans og bæjarstjórnar. Þá hafa bæjaryfirvöld unnið með Háskólanum í Reykjavík að tillögum til eflingar menntasamfélagsins í sveitarfélaginu. Þar er horft er til menntunar í verk- og tæknigreinum á háskólastigi og styrkingar sí- og endurmenntunar. Þetta mál verður unnið áfram í samstarfi við Háskólann í Reykjavík, Þekkingarnetið, Starfsgreinafélagið Afl og Alcoa Fjarðaál.

Frumvörp til nýrra laga um skólastigin liggja fyrir Alþingi. Með nýjum lögum mun gefast svigrúm til endurskipulagningar og styrkingar skólastarfs miðað við aðstæður á hverjum stað. M.a. er lögð áhersla á samstarf milli skólastiga og styrkingu iðn- og verknáms. Búið er að ráða í starf fræðslustjóra Fjarðabyggðar með það fyrir augum að styrkja fræðslu og menntun með samstarfi milli byggðakjarna, milli skólastiga, við atvinnulíf og við ráðuneyti menntamála. Mikill einhugur og metnaður bæjarfulltrúa kom glöggt fram í umræðu um eflingu menntasamfélagsins í bæjarstjórn nú í apríl. Mikilsvert er að íbúar og fyrirtæki í sveitarfélaginu standi þétt að baki þeirri uppbyggingu skóla- og fræðslustarfs sem framundan er.

Styrkur Fjarðabyggðar sem atvinnusvæðis er ekki tilviljun. Margt má tína til. Hið nýja stórfyrirtæki Alcoa Fjarðaál reisti verksmiðju sína á Mjóeyrinni vegna óvenjulegra staðarkosta. Hér er úrvalshöfn frá náttúrunnar hendi og nálægð við virkjun þar sem raforkuframleiðsla er ákaflega hagkvæm. Vinnubrögð við byggingu verksmiðjunnar voru faglega til fyrirmyndar. Sú mikilvæga þekking í stjórnun stórframkvæmdar og umhverfis-, öryggis- og vinnuverndarmálum sem hér varð til er einmitt grundvöllur samstarfsins við Háskólann í Reykjavík - samstarfs sem á að tryggja að sú þekking nýtist háskólanemum í verk- og tæknigreinum. Á þessum nýja vinnustað verður fjöldi starfa fyrir fólk með háskólamenntun og iðn- og tæknimenntun auk annarra sérhæfðra starfa af ýmsum toga. Alcoa er með starfsstöðvar í meira en 40 löndum í öllum heimsálfum og starfsmennirnir verða hluti af alþjóðlegu vinnuumhverfi og geta þannig átt kost á störfum víða um heim.

Sjávarútvegsfyrirtækin í Fjarðabyggð eru tæknilega og skipulagslega í fararbroddi og byggja á þekkingu og áralangri reynslu, rannsóknir einkum tengdar sjávarútvegi og náttúrfari eiga sér einnig sögu sem við viljum nýta enn betur til rannsókna og þróunar innan greinarinnar. Fjórðungssjúkrahús og öflug starfsemi Heilbrigðisstofnunar Austurlands er lykill að öryggiskennd íbúa en líka þekkingarstarfsemi, sem kallar á fjölda sérhæfðra starfsmanna. Stjórnsýsla og starfsemi sameinaðs sveitarfélags gerir æ meiri kröfur til faglegrar þekkingar og mörg spennandi störf eru á þeim vettvangi. Fjarðabyggðarhafnir þjóna sjávarútveginum en eru líka sívaxandi miðstöð fyrir flutninga á sjó og landi. Hvert sem litið er má sjá tækifæri fyrir fólk til að taka til hendinni og leggja sitt af mörkum í atvinnulífinu.

Fjarðabyggð á í samkeppni um fólk og fyrirtæki við önnur landsvæði og raunar líka við önnur lönd. Því fjölbreyttara sem atvinnulífið er, því gróskumeira sem mannlífið er og því betri sem þjónustan er þeim mun betur stendur sveitarfélagið í þeirri samkeppni. Sterkur framhaldsskóli er einn af lyklunum. Það er þakkarvert að nemendur Verkmenntaskólans vekja athygli á öflugu starfi skólans og mikils um vert að við nýtum öll þau tækifæri sem nú eru til að styrkja skólann enn frekar til góðra verka. Með samgöngubótum, ekki síst nýjum göngum milli Eskifjarðar og Norðfjarðar, og samstöðu íbúa um sterkan og vel sóttan skóla eru ár sóknar framundan hjá Verkmenntaskóla Austurlands.

Helga Jónsdóttir


Til Baka
| Meira