Til Baka

,,Þú ert á góðum stað"

Helga Jónsdóttir bæjarstýra,,Þú ert á góðum stað” er kjörorðið sem Fjarðabyggð hefur notað til að kynna samfélag og tækifæri í sveitarfélaginu að undanförnu. Sem ,,nýbúi” hér eystra get ég tekið undir þetta. Mér finnst ég vera á góðum stað og ég er þakklát fyrir þær hlýju móttökur sem ég hef hvarvetna hlotið - hjá bæjarstjórninni, samstarfsmönnum og öðrum íbúum.

Endalaust má velta því fyrir sér hvað það er sem gerir stað góðan? Eru það góðir leikskólar og skólar, aðstaða til tómstunda, íþrótta og útivistar, aðgangur að verslun og þjónustu, nálægð við flugvöll, öflugt menningar- og tónlistarlíf, stórfengleg náttúra, stuttar vegalengdir innan byggðakjarna, öryggiskennd sem fylgir nánu og smáu samfélagi - eða hvað? Staðreyndin er sú að það er ekkert einhlítt svar við spurningunni. Það sem einum finnst ákjósanlegt og jafnvel bráðnauðsynlegt, skiptir aðra minna máli. Sumir sækjast eftir stórborgarlífi aðrir kjósa friðsæld öðru fremur. Sumum finnst nálægð við náttúruna vega þungt öðrum nálægð við sem flestar krár og kaffihús.

Það eru þó ákveðnar frumkröfur sem við Íslendingar gerum flestir hverjir til þess samfélags sem við búum í. Þær lúta margar að öryggi og valkostum. Atvinnuöryggi, fjölbreytt störf og möguleiki til að þróast í starfi skiptir máli, öruggur og góður aðgangur að heilbrigðisþjónustu og menntun, góðar og tryggar samgöngur og almennt öryggi og vernd gegn glæpum. Okkur er hollt að hugsa til þess að víða um heim getur fólk aðeins látið sig dreyma um þau lífsgæði sem við teljum sjálfsögð hér. Ótrúlega víða býr fólk t.d. við skort á vatni og öfgakennda veðráttu, aðgangur að heilsugæslu og menntastofnunum er fjarri því að vera almennur, náttúrulegar orkulindir eru hverfandi, umhverfi mengað, bílaumferð yfirþyrmandi, glæpatíðni svo mikil að hvorki börn né fullorðnir geta um frjálst höfuð strokið og svo má áfram telja. Þetta á jafnvel við um sum þau samfélög sem teljast til hinna þróuðustu í veröldinni.

Með sameiningu Fjarðabyggðar og vaxandi atvinnustarfsemi og umsvifum má gera því skóna að æ fleiri einstaklingar og fjölskyldur finni hér tækifæri við sitt hæfi og leiti búsetu hér. Sveitarfélagið hefur búið sig undir það með því að skipuleggja land til byggðar og úthluta lóðum, byggt upp og styrkt þjónustu í leikskólum, skólum, söfnum, íþróttamannvirkjum og á öðrum sviðum. Við þurfum á fleira fólki að halda og við höfum margt að bjóða. Auk þess að vera fyllilega samkeppnishæf um flestar tegundir þjónustu sem Íslendingar kalla almennt á höfum við samfélag þar sem einstaklingar geta notið sín og látið gott af sér leiða. Hér eru einstakar aðstæður fyrir þá sem unna náttúru og útivist og stuttar vegalengdir gefa fjölskyldum tækifæri til samvista umfram það sem víða er.

Allt það sem nefnt er hér að ofan skiptir mjög miklu máli og án þess hefði ég líklega ekki sóst eftir starfi hér. Ekkert af þessu réð þó þeirri ákvörðun minni– það sem úrslitum réði er að ég skynja Fjarðabyggð nú sem stað tækifæranna. Hér hefur skapast einstakt tækifæri til að snúa vörn í sókn – að nýta möguleika til að auka fjölbreytni atvinnulífsins, setja á laggirnar nýja þjónustu, auka lífsgæði og fjölga íbúum á öllum aldri. Ég fullyrði að hvergi á landinu blasa við jafnmiklir möguleikar til framfara. Ákveðnum grunnforsendum af hálfu ríkisvaldsins þarf að kalla eftir af fullum þunga – þar vísa ég einkum til þess að samgöngur innan sveitarfélagsins eru allsendis ófullnægjandi án nýrra ganga milli Eskifjarðar og Norðfjarðar og umbóta á veginum yfir Hólmaháls. Fyrirtækin hér hafa sóknarfæri sem góðir vinnustaðir og sum hver geta leitað ýmiss konar hagræðingar hjá sér þegar nýr stór vinnustaður, eins og Alcoa Fjarðaál tekur til starfa. Hlutverk sveitarfélagsins er að þjónusta og ásýnd stuðli að vellíðan fólks og fyrirtækja og sé hvati til annarra til að setjast hér að. Hlutverk íbúanna er ekki síst mikilvægt – að taka vel á móti nýju fólki, hlúa að því og veita því aðgang að mannlífinu og menningunni sem hér blómstrar.

Ég treysti því að þessi nýja heimasíða geti nýst íbúum og bæjaryfirvöldum til að skiptast á upplýsingum. Ábendingar um hvað gera má til framfara í sveitarfélaginu verða vel þegnar.

Helga Jónsdóttir
bæjarstjóri


Til Baka
| Meira