Til Baka

Árið 2011 gefur okkur tilefni til þess að vera bjartsýn á framtíðina

 

Þegar horft er til baka í lok árs 2011 er margt sem kemur upp í hugann. Útflutningsgreinunum í Fjarðabyggð virðist hafa vegnað vel á árinu og hefur það mjög jákvæð áhrif á atvinnustigið hér á fjörðunum sem síðan styrkir rekstur sveitarfélagsins og samfélagið allt. Áætlað er að útsvarstekjur muni fara fram úr væntingum sem gerðar voru í fjárhagsáætlun ársins en sú aukning nýtist m.a. til þess að vega á móti þeim kjarahækkunum sem urðu á árinu vegna nýrra kjarasamninga.

 

Sveitarfélagið fór vandlega yfir ný frumvörp að lögum um sjávarútvegsmál sem lögð voru fram á alþingi í vor, en gildistaka svonefnds „stærra” frumvarps hefði haft mjög neikvæð áhrif á sjávarútveginn hér í Fjarðabyggð. Sýnt var fram á þetta með úttekt á frumvarpinu sem unnin var af KPMG. Sveitarfélagið veitti síðan umsögn á frumvörpin á grunni úttektarinnar. Eins og komið hefur fram er unnið að nýju frumvarpi hjá ríkisstjórn Íslands um þessar mundir og er beðið frétta af innhaldi hins nýja frumvarps.

 

Nokkur stór og umfangsmikil verkefni hófust á árinu í Fjarðabyggð og má þar nefna vinnu við ofanflóðavarnir í Neskaupstað en á vordögum hófst vinna við snjóflóðavarnargarða í Neskaupstað. Skóflustunga að nýju hjúkrunarheimili á Eskifirði var tekin á árinu og kom velferðarráðherra hingað af því tilefni.  Þá hóf Minjavernd endurbyggingu á franska spítalanum á Fáskrúðsfirði sem er gríðarlega umfangsmikið verkefni. Heildarumfang þessara verkefna er um tveir milljarðar kr. Þá er unnið að fjárfestingarverkefnum á vegum Alcoa Fjarðaáls m.a. í tengslum við nýja kersmiðju. Það má því segja að mikill kraftur sé í uppbyggingu hér í Fjarðabyggð og er það vel.

 

Baráttan um ný Norðfjarðargöng hélt áfram á árinu 2011 líkt og síðastliðin ár. Haldinn var íbúafundur með innanríkisráðherra, vegamálastjóra og embættismönnum ráðuneytisins í Neskaupstað á vordögum þar sem fjölmenni var. Haldnir voru fundir með þingmönnum um málið og þeim send bréf og áskoranir. Þá voru alþingismenn og innanríkisráðherra heimsóttir vegna þessa máls á árinu, enn og aftur til þess að benda á nauðsyn ganganna og mikilvægi þeirra. Þegar þetta er skrifað er fátt sem bendir til annars en herða þurfi enn á baráttu fyrir þessum nauðsynlegu samgöngubótum.

 

Áhugasamir aðilar um atvinnuuppbyggingu í Fjarðabyggð settu sig í samband við sveitarfélagið á árinu. Stærstu verkefnin tengjast fyrirhugaðri laxeldisræktun og Olíubirgðastöð í Reyðarfirði. Laxar ehf. vinna nú að starfsleyfisumsókn fyrir laxeldið og skrifað var undir áformayfirlýsingu varðandi olíubirgðastöðina á árinu og er verkefnið í áframhaldandi skoðun. Þá hefur verið úthlutað lóð til Alucab ehf. sem fyrirhugar að hefja framleiðslu á iðnaðarsvæðinu á Hrauni. Fleiri mál eru til skoðunar og er mjög jákvætt hve mikill áhugi er á sveitarfélaginu varðandi atvinnuuppbyggingu en innviðir í Fjarðabyggð eru sterkir og því góð tækifæri fyrir frekari uppbyggingu á fjölbreyttri atvinnustarfsemi.

 

Sveitarfélagið í samstarfi við önnur sveitarfélög á Austurlandi tók yfir málefni fatlaðra af ríkinu um síðustu áramót. Almennt hefur þessi yfirfærsla tekist vel en ljóst að vinna þarf að frekari uppbyggingu málaflokksins innan Fjarðabyggðar s.s. er varða búsetukosti og virknistöðvar fyrir fatlaða. Þá voru undirritaðir nýir menningarsamningar við ríkið og unnið var að sameiningu stoðstofnana sveitarfélaga og ríkis á árinu sem er að líða.

 

Almennt má segja þegar horft er til baka á þessum tímapunkti að árið 2011 hafi verið umfangsmikið í verkefnum og framgangi mála. Sú uppbygging sem þegar hefur átt sér stað og mun halda áfram á næstu misserum gefur okkur ástæðu til bjartsýni. Ég vil nota tækifærið og óska Fjarðabyggðarbúum og öllum Austfirðingum gleðilegra jóla og farsæls komandi árs.

 

Páll Björgvin Guðmundsson
Bæjarstjóri

Greinin birtist í jólablaði Austurgluggans.


Til Baka
| Meira