Mig langar að bjóða alla nýja íbúa velkomna til Fjarðabyggðar. Okkur hjá Fjarðabyggð er það mikið kappsmál að taka vel á móti nýjum íbúum, kynna þeim þjónustu okkar, umhverfi og samfélag.
Það er von mín að nýtt upplýsingarit um Fjarðabyggð komi sér vel og hvet í leiðinni alla nýja íbúa til þess að hafa samband við móttökufulltrúa okkar til að fá kynningu og upplýsingar um þjónustu sveitarfélagsins og samfélagið allt.
Innilega velkomin til Fjarðabyggðar
Mínar bestu kveðjur,
Páll Björgvin Guðmundsson, bæjarstjóri.