Til Baka

Jólakveðja frá bæjarstjóra; Látum ljósin loga

 

Þegar ég hugsa um jólin og jólahátíðina koma oftast upp í hugann minningar frá því að ég var barn, minningar um tilhlökkun, eftirvæntingu, hefðir og ákveðinn frið sem einkenna jólin.

Heima hjá mér voru oft sagðar jólasögur á aðventunni, sögur sem áttu þann eina tilgang að gefa af sér jákvæðni  og samkennd í hjörtum þeirra sem á hlýddu. Sumar þeirra hef ég sagt börnunum mínum en þær hafa með tímanum gengið mann fram af manni í minni fjölskyldu. Ein af þessum sögum er komin frá Austurlandi, en þegar ég heyrði hana fyrst fyrir um það bil 35 árum síðan datt mér ekki í hug að ég ætti sjálfur eftir að búa  á Austfjörðum.  

 

Of langt mál væri að segja alla söguna hér, en í stutt máli segir sagan frá fjölskyldu sem var önnum kafin við að undirbúa jólin og jólahátíðina.  Heimilisfaðirinn var sjómaður og þurfti að róa á miðin rétt fyrir jól. Tíminn fram að jólunum leið hratt og þegar klukka sló sex á aðfangadagskvöld var faðirinn ekki enn kominn af sjónum. Úti var hríð og óveður, tilhlökkun og eftirvænting jólanna snérist upp í áhyggjur og örvæntingu hjá fjölskyldunni.  Seint á jólanótt lögðust allir til svefns, en yngsti drengurinn á heimilinu lét lítið kertaljós loga í glugganum sínum yfir jólanóttina. Þegar hann vaknaði að morgni jóladags var faðirinn kominn heim, en ljósið úr glugganum hafði lýst þrekuðum sjómönnum leiðina heim í fárviðri og ólgusjó.

 

Boðskapurinn með sögunni er einfaldlega sá að ekki þarf oft annað en góðan hug til þess að láta góða hluti gerast. Við þurfum ávallt að kveikja lítil ljós hér og þar, gefa af okkur til náungans, og með samheldni og samhug eru okkur flestir vegir færir.  Aldrei er betra tækifæri en um jólahátíðina til að kveikja ljós og láta gott af sér leiða.

 

Árið sem er að líða hefur verið viðburðaríkt og framtíðin í Fjarðabyggð og á Austurlandi er björt. Hér er atvinnustig hátt, atvinnuvegir traustir, og þjónusta til sóma. Íbúar sveitarfélagsins hafa lagt á sig ómælda vinnu við að byggja upp gott og farsælt samfélag.  Ég er þess fullviss að enn bíða okkur frekari tækifæri og viðfangsefni til þess að gera Fjarðabyggð að enn betra sveitarfélagi en það er í dag.  Það er og verður ávallt okkar sameiginlega verkefni.

 

Um leið og ég óska öllum íbúum Fjarðabyggðar og öðrum Austfirðingum gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári með þökk fyrir það gamla, hvet ég alla til að kveikja á ljósum í skammdeginu, fyrir okkur sjálf og samfélagið allt.

 

Páll Björgvin Guðmundsson
Bæjarstjóri Fjarðabyggðar


Til Baka
| Meira