Þú ert á góðum stað er kjörorð okkar hjá Fjarðabyggð. Við getum að sönnu staðið við þau kjörorð enda skilgreinum við Fjarðabyggð sem fjölskylduvænt samfélag – gott, traust og öruggt. Við leggjum okkur fram um að bjóða úrvals tækifæri til menntunar og tómstundaiðkunar og í Fjarðabyggð eru kjöraðstæður til útivistar.
Hér er líka að byggjast upp nýtt og öflugt atvinnulíf á sterkum grunni. Fjölbreytnin er vaxandi og ný tækifæri skapast til að byggja upp enn frekari þjónustu sem styrkir stoðir mannlífs og samfélags. Ég hvet alla áhugasama um að lesa sér frekar til um Fjarðabyggð, atvinnu- og mannlíf og kynna sér þá þjónustu sem í boði er í sveitarfélaginu. Sjá nánar um Fjarðabyggð
Páll Björgvin Guðmundsson bæjarstjóri