Í samþykktum um stjórn Fjarðabyggðar IV. kafla er fjallað um nefndir sveitarfélagsins. Bæjarstjórn kýs fulltrúa í nefndir, ráð og stjórnir eftir því sem lög, reglugerðir og samþykktir kveða á um. Jafnframt kýs bæjarstjórn nefndum og ráðum formann og varaformann. 55. grein samþykktanna kveður á um þessar nefndir og hlutverk þeirra en auk þeirra eru skipaðar verkefnabundnar nefndir um afmörkuð verkefni.  Aðalnefndir sinna faglegu starfi skv. samþykkturm.  Nöfn og hlutverk aðalnefnda sveitarfélagsins breytast eftir áherslum bæjarstórnar hverju sinni.

Aðalnefndir 2010 - 2014

Bæjarráð
Atvinnu- og menningarmálanefnd
Barnaverndarnefnd
Félagsmálanefnd
Eigna- skipulags- og umhverfisnefnd
fræðslu- og frístundanefnd
Hafnarstjórn



Verkefnabundnar nefndir

Bæjarstjórn getur skipað nefndir til að vinna að einstökum afmörkuðum verkefnum. Umboð slíkra nefnda fellur niður sjálfkrafa við lok kjörtímabils, eða fyrr eftir því sem verkefni þeirra gefa tilefni til eða umboð eða erindisbréf veitir þeim.