Bæjarráð

 

Aðalmenn

Jens Garðar Helgason (D) formaður
Jón Björn Hákonarson (B) varaformaður
Elvar Jónsson (L)

 

Varamenn

Eydís Ásbjörnsdóttir (L) 
Esther Ösp Gunnarsdóttir (L)
Valdimar O. Hermannsson (D)                                
Ásta Kristín Sigurjónsdóttir (D) 
Sævar Guðjónsson (D)           
Guðmundur Þorgrímsson (B)

 

Í bæjarráði sitja þrír bæjarfulltrúar kosnir til eins árs í senn. Aðalmenn í bæjarstjórn eru einir kjörgengir sem aðalmenn og varamenn í bæjarráð. Bæjarstjóri situr fundi í bæjarráði með málfrelsi og tillögurétt, en atkvæðisrétt hefur hann því aðeins að hann sé bæjarfulltrúi og kjörinn í bæjarráð. Forstöðumaður stjórnsýslu situr einnig fundi bæjarráðs og ritar fundargerðir þess. Aðrir starfsmenn bæjarins sitja fundi bæjarráðs eftir því sem málefni gefa tilefni til.

Bæjarráð skal að jafnaði halda fund þrisvar í mánuði. Aukafund skal halda, ef bæjarstjóri, formaður bæjarráðs eða að minnsta kosti tveir bæjarráðsmenn óska þess.

Fundartímar bæjarráðs eru á þriðjudögum og hefjast þeir kl. 9:00. Fundir eru haldnir í fundarsal sveitarfélagsins að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Bæjarstjóri undirbýr bæjarráðsfundi í samráði við formann bæjarráðs. Hann sér um að bæjarráð sé boðað til fundar með að minnsta kosti sex klukkustunda fyrirvara. Geti bæjarráðsmaður ekki sótt fund boðar hann varamann sinn eða tilkynnir forföll til bæjarstjóra.



Hlutverk bæjarráðs.

  1. Bæjarráð fer ásamt bæjarstjóra með framkvæmda- og fjármálastjórn bæjarins að því leyti sem slík stjórn er ekki öðrum falin.

  2. Bæjarráð hefur umsjón með stjórnsýslu bæjarins, undirbúningi árlegrar fjárhagsáætlunar, semur drög að fjárhagsáætlun bæjarsjóðs, stofnana hans og fyrirtækja að fengnum tillögum hlutaðeigandi nefnda og stjórna og leggur þau fyrir bæjarstjórn í samræmi við ákvæði sveitarstjórnarlaga

  3. Bæjarráð sér um, að ársreikningar bæjarsjóðs séu samdir og þeir ásamt ársreikningum stofnana og fyrirtækja bæjarins lagðir fyrir bæjarstjórn til afgreiðslu, svo sem sveitarstjórnarlög mæla fyrir um.

  4. Bæjarráð gerir tillögur til bæjarstjórnar um afgreiðslu einstakra mála sem það fær til meðferðar. Bæjarráði er þó heimil fullnaðarafgreiðsla mála sem ekki varða verulega fjárhag bæjarsjóðs eða stofnana hans, enda sé ekki ágreiningur milli bæjarráðsmanna eða við bæjarstjóra um slíka afgreiðslu.

  5. Bæjarráð ákveður skiptingu og ráðstöfun fjár, sem ætlað er til einstakra málaflokka samkvæmt fjárhagsáætlun, svo sem til gatnagerðar, nýbygginga og óvissra útgjalda. Þá getur bæjarstjórn falið bæjarráði fullnaðarafgreiðslu mála nema lög mæli á annan veg.

  6. Undir verksvið bæjarráðs falla einnig málefni eignasjóðs, veitna, félagsheimila, vegamála og brunamála sem og önnur mál a-hluta stofnana og b-hluta fyrirtækja sem ekki eru öðrum falin samkvæmt samþykktum eða ályktumum bæjarstjórnar. Ennfremur annast bæjarráð vinabæjarsamskipti og ferða- og kynningarmál. Bæjarráð fer með verkefni samstarfsnefndar þjónustusvæðis SSA og tilnefnir fulltrúa í aðrar verkefnabundnar samstarfsnefndir eftir því sem við á.

 



Undirnefndir:
Stjórn Hulduhlíðar og Uppsala
Stjórn Náttúrustofu Austurlands
Starfshópur um samgöngumál
Starfshópur um sorpmál
Eignarhaldsfélagið Hraun ehf