Bæjarstjórn kýs fimm fulltrúa og jafnmarga til vara í félagsmálaráð, sbr. lög um félagsþjónustu sveitarfélaga. Kjörtímabil ráðsins er hið sama og bæjarstjórnar. Félagsmálaráð fer með verkefni barnaverndarnefndar, jafnréttisnefndar, áfengisvarnarnefndar, húsnæðisnefndar, rekstrarstjórnar Breiðabliks, hefur umsjón með daggæslu í heimahúsum, hefur umsjón með framkvæmd laga um félagsþjónustu sveitarfélaga, vernd barna og ungmenna, málefni fatlaðra og málefni aldraðra. Ráðið tilnefnir fulltrúa í þjónustuhóp aldraðra í heilsugæsluumdæmum. Ráðið tilnefnir fulltrúa bæjarfélagsins í rekstrarstjórn Hulduhlíðar og Uppsala. Tilnefningar ráðsins eru háðar samþykki bæjarstjórnar. Auk verkefna sem félagsmálaráð hefur með höndum skv. lögum getur bæjarstjórn falið henni ýmis verkefni með erindisbréfum. Ráðið starfar samkvæmt
samþykkt sem sett er um störf þess
Undirnefndir
Þjónustuhópur aldraðra
Starfshópur um jafnréttismál