Fræðslunefnd er skipuð fimm fulltrúum sem bæjarstjórn kýs á fyrsta eða öðrum fundi nýkjörinnar bæjarstjórnar og er kjörtímabil hennar hið sama og bæjarstjórnar. Bæjarstjórn kýs formann og varaformann. Fræðslunefnd ber ábyrgð á stefnumörkun í málaflokknum og fer með málefni leikskóla, grunnskóla, tónskóla sem og samstarfssamninga við framhaldsskóla. Jafnframt tilnefnir hún í stjórn Skólaskrifstofu Austurlands og ber almennt ábyrgð á öflugu menntasamfélagi í Fjarðabyggð.

 

Aðalmenn:

Ævar Ármannsson (L) formaður

Svanhvít Aradóttir (B) varaformaður

Jóna Ingunn Óskarsdóttir (B)

Hrönn Grímsdóttir (L)

Jóhanna Hallgrímsdóttir (D)

Varamenn:

Eydís Ásbjörnsdóttir (L)

Jósef A. Friðriksson (B)

Þórfríður Soffía Þórarinsdóttir (B)

Ellen Rós Baldvinsdóttir (L)

Árdís Aðalsteinsdóttir (D)