Bæjarstjórn kýs fimm fulltrúa og jafnmarga til vara í fræðslunefnd og er kjörtímabil hennar hið sama og bæjarstjórnar. Fræðslunefnd fer með málefni leikskóla samvkæmt leikskólalögum, grunnskóla skv. grunnskólalögum, tónlistarskóla skv. lögum um fjárhagslegna stuðning við tónlistarskóla og samstarfssamninga um rekstur hans hverju sinni og framhaldsskóla skv. ákvæðum framhaldsskólalaga og samstarfssamninga, sem um rekstur framahaldsskóla gilda hverju sinni. Auk verkefna sem fræðslunefnd hefur með höndum skv. lögum getur bæjarstjórn falið henni ýmis verkefni með erindisbréfum. Ráðið starfar skv.samþykkt sem sett hefur verið um störf þess