Nefndin er skipuð fimm fulltrúum sem bæjarstjórn kýs á fyrsta eða öðrum fundi nýkjörinnar bæjarstjórnar og er kjörtímabil hennar hið sama og bæjarstjórnar. Bæjarstjórn kýs formann og varaformann. Menningar- íþrótta- og ferðamálanefnd ber ábyrgð á stefnumörkun í þeim málefnum sem undir hana heyra og fer með málefni bókasafna og annarra safna, söguritun, ferðamál og tengsl við hagsmunaaðila í ferðaþjónustu, menningarviðburði og hátíðir á vegum bæjarfélagsins, eflingu íþrótta- og tómstundastarfs, og rekstur æskulýðsmiðstöðva og íþróttamannvirkja. Hún fylgist með starfsemi félaga sem starfa að íþrótta- og tómstundamálum, vinnur að þjálfun og fræðslu fyrir íþrótta- og æskulýðsleiðtoga og hefur handbærar sem gleggstar upplýsingar um þjónustu sem í boði er. 

Aðalmenn:

Þóranna Lilja Snorradóttir (B) formaður

Díana Mjöll Sveinsdóttir (L) varaformaður

Margrét Þorvaldsdóttir (L)

Bjarney Hallgrímsdóttir (B)

Benedikt Jóhannsson (D)

Varamenn:

Pálmi Benediktsson (B)

Jóhanna Guðný Halldórsdóttir (B)

Garðar Harðarson (L)

Marías Benedit Kristjánsson (L)

Vilberg M. Jónasson (D)

 


Undirnefndir

Ráðgjafahópur um safnamál
Ráðgjafahópur um safn Jósafats Hinrikssonar