36. fundur menningar, íþrótta og ferðamálanefndar
17.5.2010 | 21.40
35. fundur Menningar-, íþrótta- og ferðamálanefndar
26.4.2010 | 19.01
34. fundur menningar, íþrótta og ferðamálanefndar
24.3.2010 | 19.27
33. fundur menningar-, íþrótta- og ferðamálanefndar
2.3.2010 | 10.43
32. fundur menningar-, íþrótta- og ferðamálanefndar
25.1.2010 | 21.58
30. fundur Menningar-, íþrótta- og ferðamálanefndar
11.12.2009 | 08.39
29. fundur menningar-, íþrótta- og ferðamálanefndar
25.11.2009 | 08.21
28. fundur Menningar-, íþrótta- og ferðamálanefndar
20.10.2009 | 09.09
27. fundur menningar-, íþrótta- og ferðamálanefndar
22.9.2009 | 11.51
26. fundur menningar-, íþrótta- og ferðamálanefndar
1.9.2009 | 11.41
25. fundur menningar-, íþrótta- og ferðamálanefndar
9.6.2009 | 08.32
24. fundur menningar-, íþrótta- og ferðamálanefndar
19.5.2009 | 12.31
23. fundur menningar-, íþrótta- og ferðamálanefndar
22.4.2009 | 07.39
22. fundur menningar-, íþrótta- og ferðamálanefndar
17.3.2009 | 08.55
20. fundur menningar-, íþrótta- og ferðamálanefnd
9.2.2009 | 18.27
FUNDARGERÐ
Menningar-, íþrótta og ferðamálanefndar fjarðabyggðar
kl. 16:30
FUNDUR NR.20
Mætt eru: Margrét Þorvaldsdóttir, Þóranna Lilja Snorradóttir, Benedikt Jóhannsson, Bjarney Hallgrímsdóttir, Díana Mjöll Sveinsdóttir, Pétur Sörensson forstöðumaður safnastofnunar, Jóhann Tryggvason æskulýðs- og íþróttafulltrúi, Þóroddur Helgason fræðslustjóri og Hildigunnur Jörundsdóttir ferða- og menningarfulltrúi.
Dagskrá:
1. Staða mála í íþrótta- og æskulýðsmálum
Æskulýðs- og íþróttafulltrúi fór yfir stöðu mála í íþrótta- og æskulýðsmálum. Fram kom að rekstur líkamsræktarstöðva Fjarðabyggðar væru að komast í rétt horf. Einnig kom fram að rekstur félagsmiðstöðvanna eru á réttri leið, þar eru komnir starfsmenn í allar stöðvar og þær í fullum gangi, einnig er verið að fara yfir húsnæðismál þeirra. Greindi hann frá því að fara þarf yfir reglur við úthlutun íþróttastyrkja. Æskulýðs- og íþróttafulltrúa falið að fara yfir núverandi styrkjaúthlutun og koma með greiningu á henni á næsta fund.
2. Val á íþróttamanni ársins
Íþróttamaður Fjarðabyggðar verður útnefndur á Norðfirði 26. febrúar 2009.
3. Málþing um vita á Austurlandi
Lagt fram minnisblað ferða- og menningarfulltrúa varðandi fyrirhugað málþing um vita á Austurlandi og fleiri mál tengd menningu og ferðaþjónustu. Málþingið verður haldið á Norðfirði 28. febrúar 2009. Díana Mjöll Sveinsdóttir sagði frá hugmyndinni að málþinginu og kynnti drög að dagskrá. Málþing þetta er öllum opið. Ferða- og menningarfulltrúa falið að vinna að undirbúningi og fjármögnun málþingsins.
4. Reglur um ferðir ungmenna á vegum félagsmiðstöðva Fjarðabyggðar
Lagt fram minnisblað sem svar við fyrirspurn frá Margréti Þorvaldsdóttur þar sem spurt var um reglur varðandi ferðir ungmenna á vegum félagsmiðstöðvanna. Í minnisblaðinu er farið yfir hverjar vinnureglur Fjarðabyggðar eru þegar börn fara í slíkar ferðir.
5. Opnunartími safna Fjarðabyggðar
Lagt fram minnisblað frá forstöðumanni Safnastofnunar varðandi opnunartíma Safnahússins á Norðfirði, Sjóminjasafnsins á Eskifirði og Stríðsárasafnsins á Reyðarfirði. Opnunartími er ekki sá sami á öllum stöðum þar sem opið er klukkutíma lengur á Reyðarfirði eða frá 13-18 í stað 13-17 á Eskifirði og Norðfirði. Nefndin leggur til að opið verði eins á öllum söfnunum eða frá 13-17, jafnframt lagt til að kvöldopnun verði í Safnahúsinu á Norðfirði fyrir þá hópa sem þangað koma að kvöldi.
6. Samgöngur í Oddsskarð
Lögð fram til kynningar bókun bæjarráðs frá 3. febrúar 2009 þar sem ákveðið var að ekki yrði unnt að bjóða upp á skipulagðar ferðir í Oddsskarð í vetur. Nefndin harmar þessa ákvörðun barnanna vegna og vonast til að þessar ferðir komist á aftur næsta vetur.
Fundi slitið kl:18:23
Fundargerð lesin upp og samþykkt.
Fundargerð ritar Hildigunnur Jörundsdóttir
19. fundur menningar-, íþrótta- og ferðamálanefndar
29.1.2009 | 08.42
18. fundur menningar-, íþrótta- og ferðamálanefndar
13.1.2009 | 13.02
FUNDARGERÐ
Menningar- íþrótta- og
ferðamálanefndar fjarðabyggðar
FUNDUR NR. 18
Fundur haldinn í menningar- íþrótta- og ferðamálanefnd Fjarðabyggðar mánudaginn 12 janúar 2009 kl.16:30 á bæjarskrifstofunum á Reyðarfirði.
Mætt eru: Þóranna Lilja Snorradóttir, Margrét Þorvaldsdóttir, Díana Mjöll Sveinsdóttir, Benedikt Jóhannsson, Pálmi Benediktsson, Pétur Sörensson, forstöðumaður Safnastofnunar, Hildigunnur Jörundsdóttir ferða- og menningarfulltrúi og Þóroddur Helgason starfandi tómstundastjóri. Smári Geirsson sat annan lið fundarins.
Þetta gerðist:
1. Tillaga að úthlutun menningarstyrkja 2009
Fyrir liggur tillaga ferða- og menningarfulltrúa um fyrirkomulag úthlutunar menningarstyrkja 2009. MÍF samþykkir tillöguna.
2. Söguritun sveitarfélaganna - staða mála.
Smári Geirsson sat þennan lið fundarins. Smári gerði grein fyrir söguritun í Fjarðabyggð til dagsins í dag. Hann greindi frá ólíkum aðferðum við söguritunina og við útgáfu bókanna. Annað bindi Norðfjarðarsögu er nú að verða tilbúið til prentunar, en það verður gefið út sem tvær bækur. Næstu skref eru að ákveða hvenær bækurnar verði gefnar út. Nefndin felur ferða- og menningarfulltrúa og forstöðumanni Safnastofnunar að ræða við prentsmiðjuna Hóla um útgáfu bókanna og koma með tillögu til nefndarinnar um tímasetningu og fjármögnun útgáfunnar.
3. Skemmtiferðaskip staða mála
Ferða- og menningarfulltrúi lagði fram minnisblað. Í minnisblaði kemur fram að fyrirhugað er námskeið um móttöku skemmtiferðaskipa fyrir þjónustuaðila í Fjarðabyggð í lok mars í samstarfi við Útflutningsráð og Cruise Iceland. Einnig kemur fram að fyrirhugað er að gefa út kynningarefni fyrir Fjarðarbyggðarhafnir. Þá kemur fram að Eskifjörður þyki vænlegasti staðurinn sem áfangastaður fyrir skemmtiferðaskipin hvað varðar möguleika á stuttum skoðunarferðum, þjónustu og afþreyingu í landi. Nefndin tekur undir efnisatriði í minnisblaði og leggur til að Eskifjarðahöfn verði móttökuhöfn skemmtiferðaskipa í Fjarðabyggð.
4. Styrkur frá Samgönguráðuneyti
Í bréfi frá Samgönguráðuneytinu dagsettu 19. desember 2008 kemur fram að samgönguráðherra hefur ákveðið að veita verkefninu Franski bærinn á Fáskrúðsfirði styrk að fjárhæð kr. 400.000. Nefndin fagnar styrkveitingunni heilshugar.
5. Val á íþróttamanni ársins
Frestað til næsta fundar.
6. Framlög sveitarfélaganna til Menningarráðs Austurlands
Bréf frá Menningarráði Austurlands dagsettu 29. desember 2008 lagt fram til kynningar. Fram kemur að framlag sveitarfélaga á Austurlandi til Menningarráðs Austurlands fyrir árið 2008 er 6,9 milljónir króna og þar af er hlutur Fjarðabyggðar 2.537.100 kr. Fjárupphæðin tekur mið af íbúafjölda skráðum hjá Hagstofu 1. desember 2007.
7. Félagsmiðstöðvar Fjarðabyggðar staða mála
Frestað til næsta fundar.
Fundi slitið kl: 18:18
Fundargerð lesin upp og samþykkt
Fundargerð ritaði Þóroddur Helgason
17. fundur menningar-, íþrótta- og ferðamálanefndar
8.12.2008 | 18.23
FUNDARGERÐ
Menningar- íþrótta- og
ferðamálanefndar fjarðabyggðar
FUNDUR NR. 17
Fundur haldinn í menningar- íþrótta- og ferðamálanefnd Fjarðabyggðar mánudaginn 08. desember 2008 kl.16:30 á bæjarskrifstofunum á Reyðarfirði.
Mætt eru: Þóranna Lilja Snorradóttir, Margrét Þorvaldsdóttir, Díana Mjöll Sveinsdóttir, Benedikt Jóhannsson, Bjarney Hallgrímsdóttir, Pétur Sörensson, forstöðumaður Safnastofnunar, Jóhann Tryggvason íþrótta- og æskulýðsfulltrúi, Hildigunnur Jörundsdóttir ferða- og menningarfulltrúi og Þóroddur Helgason fræðslustjóri.
Þetta gerðist:
1. Erindi frá Myndlistasafni Tryggva Ólafssonar
Forstöðumaður Safnastofnunar skýrði frá gögnum sem lögð hafa verið fram varðandi erindi frá Magna Kristjánssyni þar sem óskað er eftir styrk til málverkasafns Tryggva Ólafssonar. Nefndin telur sig ekki hafa fjármuni til þess að styrkja safnið að svo stöddu en hvetur Safnaráð hússins til að koma fram með áætlun um hvað rekstur hússins komi til með að kosta á komandi ári og sú áætlun send inn með skýrari styrkbeiðni.
2. Fjárhagsáætlun 2009
Fjárhagsrammar 2009 lagðir fram og kynntir nefndinni. Forstöðumaður Safnastofnunar og ferða- og menningafulltrúi fóru yfir fjárheimildir í fjárhagsáætlun 2009 til menningarmála og íþrótta- og tómstundafulltrúi fór yfir rammann til íþróttamála. Nefndin mun leita allra leiða til að skerða ekki þjónustu við börn og unglinga í því forvarnarstarfi sem íþrótta- og æskulýðsmál eru.
3. Styrkumsókn frá Vilhjálmi Hjálmarssyni
Sótt er um styrk til útgáfu bókar sem Vilhjálmur Hjálmarsson hyggst gefa út. Nefndin getur ekki veitt styrk að svo stöddu en bendir á árlegar styrkveitingar í byrjun árs.
4. Umsókn um stuðning við Snorraverkefnið
Snorraverkefnið er samstarfsverkefni Norræna félagsins á Íslandi og Þjóðræknisfélags Íslendinga sem gengur út á að gera ungu fólki af íslenskum ættum frá Kanada og Bandaríkjunum kleift að leita sér vinnu á Íslandi og kynnast uppruna sínum. Nefndin telur sér ekki fært að styrkja verkefnið að þessu sinni.
5. Áskoranir frá Gigtarráði og ÍSÍ til sveitarfélaga
Gigtarráð og ÍSÍ skora á sveitarfélög í landinu að stuðla að almennri hreyfingu með svo góðu aðgengi að íþróttamannvirkjum sem kostur er. Nefndin tekur undir áskorun ráðsins og telur mikilvægt við þessar aðstæður að hvetja til hreyfingar og heilbrigðs lífernis.
6. Upplýsingar varðandi styrkumsóknir til íþróttafélaga
Íþrótta- og æskulýðsfulltrúi fór yfir bréf sem barst varðandi mikilvægi þess að hafa upplýsingar um hvar er hægt að sækja um í sjóði fyrir íþróttamál. Nefndin felur starfmönnum sínum að útbúa gagnabanka og gera hann aðgengilegan.
7. Nefndarlaun
Bjarney Hallgrímsdóttir óskar eftir því að laun hennar sem nefndarmanns MÍF verði lækkuð um 15 % til 1. júní 2009.
Fundi slitið kl: 18:18
Fundargerð lesin upp og samþykkt
Fundargerð ritaði Hildigunnur Jörundsdóttir
16. fundur menningar-, íþrótta- og ferðamálanefndar
24.11.2008 | 19.50
14. fundur menningar-, íþrótta- og ferðamálanefndar
28.10.2008 | 09.43
FUNDARGERÐ
Menningar- íþrótta- og
ferðamálanefndar fjarðabyggðar
FUNDUR NR. 14
Fundur haldinn í menningar- íþrótta- og ferðamálanefnd Fjarðabyggðar mánudaginn 20. október 2008 kl.16:30 á bæjarskrifstofunum á Reyðarfirði.
Mætt eru: Þóranna Lilja Snorradóttir, Margrét Þorvaldsdóttir, Marías Benedikt Kristjánsson, Benedikt Jóhannsson, Bjarney Hallgrímsdóttir, Hildigunnur Jörundsdóttir ferða- og menningarfulltrúi, Pétur Sörensson, forstöðumaður Safnastofnunar, Jóhann Tryggvason íþrótta- og æskulýðsfulltrúi og Þóroddur Helgason fræðslustjóri.
Þetta gerðist:
- Stefnumótun í fræðslu- og frístundamálum
Bæjarstýra og fræðslustjóri sátu þennan lið fundarins.
Bæjarstýra greindi frá fyrirhugaðri vinnu varðandi stefnumótun í fræðslu- og frístundamálum sem vinna á í vetur. Bæjarstýra greindi einnig frá því að fræðslustjóri mun sinna starfi tómstundastjóra að hálfu á móti ferða- og menningarfulltrúa á meðan á stefnumótunarvinnu stendur. Fræðslustjóri greindi nefndinni frá því hvernig stefnumótunarvinnunni verður háttað. Hrönn Pétursdóttir mun leiða stefnumótunarvinnuna og skipaður verður allt að þrjátíu manna hópur sem mun skila af sér 30. mars 2009.
- Staða mála
Íþrótta- og æskulýðsfulltrúi fór yfir stöðu mála varðandi heitu pottana á Fáskrúðsfirði, verkefnið Gæfuspor, strandblakvelli á Norðfirði, félagsmiðstöðvarnar, starfsmannamál íþróttamannvirkjanna, vinnuhóp fræðslu- og frístundastefnunnar og stofnun ungmennaráðs.
Ferða- og menningarfulltrúi fór yfir stöðu mála varðandi viðburðadagatal Fjarðabyggðar, úrbætur við Söxu, stöðuna með skemmtiferðaskip og sögukortið.
- Jensenshús á Eskifirði - Gestaíbúð fyrir listamenn.
Forstöðumaður Safnastofnunar fór yfir minnisblað þar sem fram koma hugmyndir varðandi það að Jensenshús verði nýtt sem gestaíbúð fyrir listamenn í samvinnu við Kirkju- og menningarmiðstöðina á Eskifirði. Nefndin leggur til við bæjarráð að húsið verði rekið af Fjarðabyggð og það nýtt sem gestaíbúð til að laða að listamenn. Forstöðumanni Safnastofnunar falið að útbúa minnisblað ásamt kostnaðaráætlun fyrir bæjarráð.
- Undirbúningur að starfsáætlunum og fjárhagsáætlunum
Forstöðumaður safnastofnunar og íþrótta- og æskulýðsfulltrúi fóru yfir starfsáætlun 2008, þau verkefni sem þar eru listuð upp, stöðu þeirra og hvaða árangur náðist. Listaðar voru upp hugmyndir að verkefnum næsta árs. Ferða- og menningarfulltrúi mun fara yfir stöðu sinna mála á næsta fundi.
Næsti fundur verður haldinn 3. nóvember 2008.
Fundi slitið kl: 18:31
Fundargerð lesin upp og samþykkt
Fundargerð ritaði Hildigunnur Jörundsdóttir.
10. fundur menningar-, íþrótta- og ferðamálanefndar
28.8.2008 | 15.04
FUNDARGERÐ
Menningar- íþrótta- og
ferðamálanefndar fjarðabyggðar
FUNDUR NR. 10
Fundur haldinn í menningar- íþrótta- og ferðamálanefnd Fjarðabyggðar miðvikudaginn 27.ágúst 2008 kl.16:30 á bæjarskrifstofunni Reyðarfirði.
Mætt eru: Þóranna L. Snorradóttir formaður, Margrét Þorvaldsdóttir, Díana Mjöll Sveinsdóttir, Benedikt Jóhannsson, Helga Jónsdóttir starfandi tómstundastjóri, Hildigunnur Jörundsdóttir ferða- og menningarfulltrúi, Pétur Sörensson, forstöðumaður Safnastofnunar, og Jóhann Tryggvason íþrótta- og æskulýðsfulltrúi.
Þetta gerðist:
1. Samstarfsverkefni í æskulýðs- og tómstundamálum
Til fundarins komu Erlendur Kristjánsson frá menntamálaráðuneyti og Jón Sigfússon og Álfgeir Logi Kristjánsson frá Háskólanum í Reykjavík og Rannsóknum og greiningu. Gerðu þeir grein fyrir niðurstöðu könnunar á högum og líðan unglinga í 8.-10 bekkjum grunnskóla Fjarðabyggðar og báru saman við landsmeðaltal. Rætt um efni skýrslunnar og samþykkt að leita samstarfs við fræðslunefnd um frekari kynningu hennar síðar í haust.
2. Málefni Kirkju- og menningarmiðstöðvarinnar
Kári Þormar forstöðumaður Kirkju- og menningarmiðstöðvarinnar á Eskifirði kom til fundarins og gerði grein fyrir verkefnaskrá vetrarins m.a. í tengslum við Daga myrkurs 10. 17. nóvember.
3. Frístundabúðir í Noregi
Lagt fram minnisblað íþrótta- og æskulýðsfulltrúa og ferða- og menningarfulltrúa, dagsett 19. ágúst 2008, um Base Camp búðir í Noregi 5.- 7. september n.k. Þátttakendur verða einn úr hverri félagsmiðstöð: Bryndís Hjálmarsdóttir Fáskrúðsfirði, Jón Björgúlfsson Stöðvarfirði, Jón Vigfússon Reyðarfirði, Bjartur Þór Jóhannsson Norðfirði og Þorvaldur Guðni Sævarsson Eskifirði.
4. Rafstöðin á Ljósalandi Fáskrúðsfirði
Lagt fram minnisblað forstöðumanns Safnastofnunar, dagsett 22. ágúst 2008, um Rafveituna á Ljósalandi í Fáskrúðsfirði. Spurst hefur verið fyrir um áhuga sveitarfélagsins á að gera rafstöðina upp þannig að hún geti verið til sýnis almenningi. Í minnisblaðinu kemur fram að forstöðumaðurinn hafi ásamt rafveitustjóra Reyðarfjarðar kannað aðstæður. Álit þeirra sé að ekki sé ástæða til að leggja í þann kostnað sem endurgerð fylgir, einkum m.t.t. þess að vel varðveitt hliðstæð rafstöð er á Reyðarfirði og gert er ráð fyrir að rafstöð RARIK á Eskifirði, elsta almenningsrafstöð á landinu, verði opnuð sem sýningarstaður. Nefndin staðfesti álitið sem fram kemur í minnisblaðinu.
5. Styrkumsókn
Lagt fram erindi Öldu Ármönnu með ósk um málverkakaup til að styrkja málverkasýninguna UM STRENDUR, FIRÐI OG EYJAR. sem hún hélt í tengslum við Neistaflug. Jafnframt óskað styrks til útgáfu bókar um uppvöxt hennar í Norðfirði. Styrkveitingum ársins er lokið og næsta styrkúthlutun verður auglýst í janúar 2009.
6. Tillaga að gjaldskrá líkamsræktastöðva Fjarðabyggðar
Lögð fram greinargerð íþrótta- og æskulýðsfulltrúa um stöðu líkamsræktarstöðvanna á Eskifirði og Reyðarfirði. Tillaga um gjaldskrá fyrir líkamsræktarstöðvarnar samþykkt með hjásetu Benedikts Jóhannssonar.
7. Umsókn í afreksmannasjóð Fjarðabyggðar
Lögð fram umsókn ungmennafélagsins Vals á Reyðarfirði um styrk úr afreksmannasjóði Fjarðabyggðar vegna þátttöku á heimsmeistaramóti í glímu í Hróarskeldu. Jafnframt lögð fram tillaga íþrótta- og æskulýðsfulltrúa um styrk til flugfargjalda 15.000 kr. á hvern, samtals 75.000 kr. Tillagan samþykkt og jafnframt samþykkt að Glímuráði Vals verði veittar 100.000 kr. úr afreksmannasjóði sem viðurkenning fyrir heimsmeistaratitil og frábæran árangur á heimsmeistaramótinu.
8. Franski bærinn Fáskrúðsfjörður
Lagt fram til kynningar erindisbréf starfshóps til að undirbúa stefnumörkun fyrir ,,Franska bæinn Fáskrúðsfjörð ásamt samþykkt bæjarráðs um nýtingu gamla læknisbústaðarins á Fáskrúðsfirði.
9. Kynning á störfum vinnuhóps varðandi bókasöfnin í Fjarðabyggð
Þóroddur Helgason formaður starfshóps um starfsemi almenningsbókasafna og skólabókasafna sat fundinn undir þessum lið og gerði grein fyrir störfum hópsins.
Næsti fundur verður haldinn 8. september 2008.
Fundi slitið kl: 19:13
Fundargerð lesin upp og samþykkt
Fundargerð ritaði Helga Jónsdóttir
9. fundur menningar-, íþrótta- og ferðamálanefndar
19.6.2008 | 14.16
FUNDARGERÐ
Menningar- íþrótta- og
ferðamálanefndar fjarðabyggðar
FUNDUR NR. 9
Fundur haldinn í menningar- íþrótta- og ferðamálanefnd Fjarðabyggðar mánudaginn 16.júní 2008 kl.16:30 á bæjarskrifstofunni Reyðarfirði.
Mætt eru: Þóranna L. Snorradóttir formaður, Margrét Þorvaldsdóttir,, Bjarney Hallgrímsdóttir, Marías B. Kristjánsson, Benedikt Jóhannsson, Helga Jónsdóttir starfandi tómstundastjóri, Hildigunnur Jörundsdóttir ferða- og menningarfulltrúi og Jóhann Tryggvason íþrótta- og æskulýðsfulltrúi.
Þetta gerðist:
1. Sögukort Austurlands. Lagt fram minnisblað ferða- og menningarfulltrúa, dags. 12. júní 2008, um Sögukort Austurlands. Jafnframt lögð fram bréf RANNSÓKNA- & RÁÐGJAFAR, dags. 29. nóvember 2005 þar sem Sögukortinu er lýst og gildi þess í fræðslu- og skólastarfi og bréf dags. 27. maí 2008 þar sem 150 viðbótareintök vegna Austurbyggðar eru boðin til kaups á helmings afslætti. Samþykkt tillaga ferða- og menningarfulltrúa um að staðfesta kaup á 700 kortum en ógreiddar eftirstöðvar kaupverðs nema 235 þkr. Ekki var gert ráð fyrir útgjöldunum í fjárhagsramma MÍF og því er óskað fjárheimildar af kostnaðarstað 13, atvinnumál, sem bæjarráð ráðstafar.
2. Hugarflugsfundir með ferðaþjónustunni. Lögð fram til upplýsingar samantekt ferða- og menningarfulltrúa, dags. 12. júní 2008. Unnin verður aðgerðaáætlun í sumar og verkefnum stillt upp í forgangsröð í samvinnu við ferðaþjónustuaðila. Í kjölfarið verður málið lagt fyrir nefndina til afgreiðslu.
3. Safnaráð- Safnahúsið í Neskaupstað. Lögð fram drög, dags. 28. apríl 2008, að samþykktum fyrir safnaráð Neskaupstaðar, og afnota- og umráðasamningur um Safnahúsið í Neskaupstað. Farið yfir drögin og samþykkt eftirfarandi tillaga til breytingar á afnota- og umráðasamningi. Við gr. 1.1 bætist svofellt ákvæði: ,,....Sú kvöð fylgir að bæjarstjórn og hafnarstjórn Fjarðabyggðar er heimilt að nýta húsið fyrir móttökur. Skal bæjarstjóri tilkynna safnaráði slík not hússins með svo góðum fyrirvara sem kostur er og ábyrgjast umgengni og skil að móttöku lokinni. Upphaf gr. 7 orðist svo: ,,Bæjarstjórn og hafnarstjórn Fjarðabyggðar er heimill aðgangur að húsnæðinu fyrir móttökur sbr. gr. 1.1. Þá hefur eigandi heimild til............. Jafnframt var samþykkt að aðalfulltrúi Fjarðabyggðar í safnaráði verði Hildigunnur Jörundsdóttir ferða- og menningarfulltrúi og varafulltrúi Díana Mjöll Sveinsdóttir bæjarfulltrúi.
4. Staða íþróttamannvirkja. Lagt fram minnisblað íþrótta- og æskulýðsfulltrúa, dags. 13. júní 2008, um skólasund í Grunnskóla Reyðarfjarðar. Samþykkt að sundkennslu á skólaárinu 2008/2009 verði lokið á haustinu 2008. Íþrótta- og æskulýðsfulltrúi gerði grein fyrir úttekt KPMG á rekstri íþróttamannvirkja einkum til að kanna möguleika á hagræðingu með samrekstri þeirra. Jafnframt kynnti hann að í tengslum við 80 ára afmæli Súlunnar á Stöðvarfirði sé stefnt að formlegri opnun sparkvalla á Stöðvarfirði og Reyðarfirði síðustu helgina í júní.
5. Kirkju- og menningarmiðstöð Fjarðabyggðar. Formaður gerði grein fyrir aðalfundi sem fram fór 4. júní sl. og lagði fram ársreikning fyrir árið 2007 og endurskoðaða samþykkt fyrir Kirkju- og menningarmiðstöð Austurlands í Fjarðabyggð (KMF). Samþykkt að forstöðumaður Kirkju- og menningarmiðstöðvarinnar komi á næsta fund til að gera grein fyrir störfum og rekstri stöðvarinnar.
Næsti fundur verður haldinn að loknu sumarleyfi í ágúst..
Fundi slitið kl: 18:26
Fundargerð lesin upp og samþykkt
Fundargerð ritaði Helga Jónsdóttir
8. fundur menningar-, íþrótta- og ferðamálanefndar
4.6.2008 | 21.30
7. fundur menningar-, íþrótta- og ferðamálanefndar
21.5.2008 | 21.31
6. fundur Menningar-, íþrótta- og ferðamálanefndar
6.5.2008 | 09.05
FUNDARGERÐ
Menningar- íþrótta- og
ferðamálanefndar Fjarðabyggðar
FUNDUR NR. 6
Fundur haldinn í menningar- íþrótta- og ferðamálanefnd Fjarðabyggðar mánudaginn 5. maí 2008 kl.16:30 á bæjarskrifstofunni Reyðarfirði.
Mætt eru: Þóranna L. Snorradóttir formaður, Margrét Þorvaldsdóttir, Díana Mjöll Sveinsdóttir, Pálmi Benediktsson, Benedikt Jóhannsson, Helga Jónsdóttir starfandi tómstundastjóri, Hildigunnur Jörundsdóttir ferða- og menningarfulltrúi, Jóhann Tryggvason íþrótta- og æskulýðsfulltrúi og Pétur Sörensson forstöðumaður Safnastofnunar.
Þetta gerðist:
1. Knattspyrnuvöllur á Eskifirði
Mannvirkjastjóri mætti á fundinn og lagði fyrir teikningar með tveimur mismunandi útfærslum. Málið rætt og þess óskað að mannvirkjastjóri og íþrótta- og æskulýðsfulltrúi kynni teikningar fyrir fulltrúum notenda vallarins og eigi við þá samráð um útfærslu áður en endanleg tillaga er unnin. Jafnframt gerði mannvirkjastjóri grein fyrir framkvæmdaáætlun við knattspyrnuvöllinn til vorsins 2010, þegar framkvæmdum á að ljúka.
2. Opnunartími sundlauga í Fjarðabyggð
Lagt fram minnisblað íþrótta- og æskulýðsfulltrúa, dags. 2. maí 2008, um opnunartíma sundlauga. Málið rætt og íþrótta- og æskulýðsfulltrúa og ferða- og menningarfulltrúa falið að skila nefndinni tillögum að opnunartímum ásamt greinargerð á næsta fundi.
3. Viðburðadagatal- kynning á stöðu mála
Ferða- og menningarfulltrúi lagði fram drög að viðburðadagatali fyrir Fjarðabyggð þar sem gerð er grein fyrir ýmsum merkisdagsetningum í sögu byggðakjarnanna og uppbyggingu þeirra. Rætt um nýtingu upplýsinganna t.d. með birtingu á heimasíðu. Gerður var góður rómur að drögunum og mun ferða- og menningarfulltrúi halda áfram að fylla inn í myndina.
4. Skólatónleikarnir Djúpin blá í Kirkju- og menningarmiðstöðinni 23. maí. Fyrirspurn forstöðumanns um þátttöku skólabarna
Lagt fram bréf forstöðumanns Kirkju- og menningarmiðstöðvarinnar í Fjarðabyggð til skólastjóra og aðstoðarskólastjóra um Tónlist fyrir alla skólatónleikar á Íslandi í samvinnu við Listahátíð í Reykjavík. Sýningin SMAGARÐSDÝPIÐ ... eða um Marvintýri Pubijan Ranjan Biswas og gríðarlega forvitnisáráttu hans verður í Kirkju- og menningarmiðstöðinni 23. maí n.k. Þá var lagður fram tölvupóstur frá forstöðumanninum þar sem spurst er fyrir um möguleika á skipulögðum rútuferðum úr byggðakjörnunum til að gera börnunum kleift að komast til og frá sýningunni. Eftir miklar umræður var starfandi tómstundastjóra falið að gera grein fyrir málinu á fundi bæjarráðs og óska eftir framlagi af ófyrirséðu til að kosta ferðir. Jafnframt hvatt til þess að kanna möguleika á að foreldrar fylgi börnum á sýninguna ef húsrúm leyfir.
5. Safnastofnun. Minnisblað forstöðumanns
Lagt fram minnisblað forstöðumanns, dags. 30. apríl 2008, um starfsemi Safnastofnunar Fjarðabyggðar. Farið var yfir minnisblaðið, gerð grein fyrir starfsemi einstakra safna, fyrirhuguðum flutningi skjala- og myndasafns og auglýsingu eftir starfsmanni sem sinna mun ýmsum verkefnum á sviði safnamála samkvæmt heimild í fjárhagsáætlun. Þá kynnti forstöðumaðurinn bæklinginn Hornsteinn menningar, sem hann hefur unnið í samráði við forstöðumann Minjasafns Austurlands og ætlaður er starfsfólki safna. Verður m.a. farið yfir bæklinginn með fulltrúum Félags eldri borgara og öðrum sem sinna safnvörslu í einstökum söfnum. Forstöðumanni þakkaðar greinargóðar upplýsingar.
6. Stefnumótun ferðamála
Lagt fram minnisblað ferða- og menningarfulltrúa, dags. 29. apríl 2008. Þar er gerð grein fyrir hugarflugsfundum um eflingu ferðaþjónustu, sem haldnir verða í öllum þéttbýlisstöðunum dagana 13. til 15. maí n.k. Fundirnir verða haldnir í samvinnu við Þróunarstofu Austurlands. Lögð áhersla á að nefndarmenn sæki fundina í eigin heimabyggð, eigi þeir þess kost.
7. Gæfuspor- kynning á verkefni UMFÍ með eldri borgurum
Lagt fram minnisblað og erindi Ómars Braga Stefánssonar, verkefnisstjóra með verkefni UMFÍ Gæfuspor, sem snýst um að fá eldra fólk til að fara út að ganga og hreyfa sig. Nefndin telur verkefnið jákvætt og felur íþrótta- og æskulýðsfulltrúa að annast tengslin við verkefnisstjórnina og greiða götu verkefnisins af hálfu sveitarfélagsins.
Næsti fundur verður haldinn 19. maí kl.16:30 18:00.
Fundi slitið kl: 18:23
Fundargerð lesin upp og samþykkt
Fundargerð ritaði Helga Jónsdóttir
4. fundur Menningar-, íþrótta- og ferðamálanefndar
8.4.2008 | 14.37
FUNDARGERÐ
Menningar- íþrótta- og
ferðamálanefndar fjarðabyggðar
FUNDUR NR. 4
Fundur haldinn í menningar- íþrótta- og ferðamálanefnd Fjarðabyggðar mánudaginn 7. apríl 2008 kl.16:30 á bæjarskrifstofunni Reyðarfirði.
Mætt eru: Þóranna L. Snorradóttir formaður, Margrét Þorvaldsdóttir, Díana Mjöll Sveinsdóttir, Bjarney Hallgrímsdóttir, Benedikt Jóhannsson, Helga Jónsdóttir bæjarstýra, Hildigunnur Jörundsdóttir ferða- og menningarfulltrúi, Jóhann Tryggvason íþrótta- og æskulýðsfulltrúi og Pétur Sörensson forstöðumaður Safnastofnunar.
Þetta gerðist:
1. Umsókn um styrk til þátttöku í æfingahópi Skíðasambands Íslands
Lögð fram umsókn Silju Hrannar Sigurðardóttur, dagsett 10. mars 2008 um styrk til skíðaæfinga og þátttöku í mótum. Í ljósi árangurs Silju Hrannar Sigurðardóttur sem er nýkrýndur Íslandsmeistari í samhliðasvigi kvenna samþykkir MÍF að veita henni styrk að fjárhæð 100.000,- kr úr afreksmannasjóði Fjarðabyggðar.
2. Tillaga að úthlutun íþróttastyrkja fyrir 2008
Lögð fram tillaga æskulýðs- og íþróttafulltrúa að styrkútreikningum íþrótta- og tómstundanefndar 2007. Málið rætt og samþykkt að upphæðir til hvers íþróttafélags verði þær sömu á árinu 2008 og árið 2007. Jafnframt samþykkt að taka úthlutunarreglur til endurskoðunar fyrir næsta fjárhagsár. Æskulýðs- og íþróttafulltrúa falið að leggja fyrir nefndina minnisblað um leiðir sem til álita koma.
3. Styrkumsókn vegna Skólahreysti 2008
Lögð fram umsókn Icefitness ehf um 50.000 kr. styrk til Skólahreysti 2008, sem er liðakeppni skóla til að stuðla að hreyfingu skólabarna. Samþykkt að veita 50.000 kr. styrk af styrkjalið MÍF. Jafnframt ákveðið að bjóða aðstöðu í íþróttahúsum Fjarðabyggðar til að halda keppnina að ári.
4. Minnisblað um stöðu íþrótta- og tómstundamála
Lagt fram til kynningar og rætt um minnisblað æskulýðs- og íþróttafulltrúa um stöðu íþrótta- og tómstundamála í Fjarðabyggð.
5. Staðsetning á heitum potti á Fáskrúðsfirði
Lagt fram erindi Björgvins Más Hanssonar varðandi endurskoðun staðsetningar heitra potta á Fáskrúðsfirði, sem bæjarráð vísaði til umsagnar MÍF. Málið rætt og samþykkt að tillaga að umsögn frá æskulýðs- og íþróttafulltrúa í samvinnu við mannvirkjateymi verði til afgreiðslu á næsta fundi.
6. Boð ungmenna í Fjarðabyggð í Base Camp búðir í Noregi.
Lagt fram boð svæðisráðsins í Vesterålen í Noregi þess efnis að fimm, 13 18 ára ungmenni úr Fjarðabyggð sæki Base Camp frístundabúðir í Vesterålen í Noregi dagana 12. 14. september n.k. Jafnframt lagt fram minnisblað æskulýðs- og íþróttafulltrúa og ferða- og menningarfulltrúa. Um er að ræða frístundabúðir með fjölbreyttri afþreyingu s.s. vatnasporti, veiði, blaki, róðri og rafting þar sem gert er ráð fyrir þátttöku um 80 unglinga. Málið rætt og samþykkt að fela æskulýðs- og íþróttafulltrúa og ferða- og menningarfulltrúa að vinna tillögu um aðferðafræði við val á fulltrúum frá hverri félagsmiðstöð og hvernig fargjöld verði fjármögnuð.
7. Ársskýrsla Markaðsstofu Austurlands
Ársskýrsla Markaðsstofu Austurlands lögð fram til kynningar. Málið rætt og gerðu varaformaður og ferða- og menningarfulltrúi grein fyrir störfum stofunnar og þátttöku Fjarðabyggðar í þeim. Jafnframt var gerð grein fyrir vaxandi áhuga aðila í ferðaþjónustu á þátttöku í starfi Markaðsstofunnar.
8. Nýr samningur um Kirkju- og menningarmiðstöðina
Nýr samningur milli ríkis og sveitarfélags um rekstur Kirkju- og menningarmiðstöðvar í Fjarðabyggð ræddur. Áhersla lögð á að sem fjölbreyttust starfsemi verði í Kirkju- og menningarmiðstöðinni og ferða- og menningarfulltrúa falið að ræða málið við forstöðumann Kirkju- og menningamiðstöðvarinnar og eiga fundi með hagsmunaaðilum um möguleikana sem bjóðast.
9. Styrkir til úrbóta á ferðamannastöðum: Saxa og fólkvangar í Fjarðabyggð
Lagt fram yfirlit Ferðamálastofu um styrki til úrbóta á ferðamannastöðum á árinu 2008. Fjarðabyggð hlaut styrki til að vinna að aðgengi og öryggi ferðamanna við sjávarhverinn Söxu við Stöðvarfjörð og til úrbóta á fólkvöngum. Lögð fram verkefnislýsing ferða- og menningarfulltrúa.
10. Tímamót í sögu gömlu sveitarfélaganna - viðburðadagatal
Bæjarráð hefur beint þeim tilmælum til MÍF að gert verði viðburðadagatal vegna tímamóta í sögu gömlu sveitarfélaganna, t.d. kaupstaðarafmæla, verslunarafmæla o.fl. Samþykkt að fela ferða- og menningarfulltrúa ásamt upplýsinga- og kynningarfulltrúa að halda slíkum dagsetningum til haga og gæta þess að þær séu hluti af viðburðadagatali Fjarðabyggðar þegar við á.
11. Kynnisferð til vesturstrandar Noregs
Lögð fram dagskrá ferðar um vesturströnd Noregs dagana 31. maí til 7. júní n.k. þar sem yfirskrift dagskrár er sem hér segir: Norsk strandmenning, göngustígar, tröll og lífræn ræktun, firðir, jöklar og fjöll, bátavernd, fiskitorg, Aquarium og matur í héraði. Málið rætt og samstaða um að kynnisferðin geti verið afar gagnleg í frekari útfærslu og úrvinnslu ferðaþjónustustefnu í Fjarðabyggð. Samþykkt að ferða- og menningarfulltrúi taki þátt í ferðinni enda verði fjármögnun hennar gegnum styrk úr vaxtaramningi til ferðamála í Fjarðabyggð.
Kynnisferðin er sett upp að beiðni Ferðamálastofu. Díana Mjöll Sveinsdóttir tók ekki þátt í afgreiðslu málsins þar sem Tanni Travel á hlut að skipulagningu og sölu ferðarinnar.
12. Stefnumótun í ferðaþjónustu í Fjarðabyggð 2008-2012
Díana Mjöll Sveinsdóttir og Hildigunnur Jörundsdóttir gerðu grein fyrir störfum og niðurstöðu starfshóps sem unnið hefur að stefnumörkun í ferðaþjónustu í Fjarðabyggð. Skýrsla nefndarinnar lögð fram ásamt drögum að aðgerðaáætlun. Stefnt að afgreiðslu á næsta fundi nefndarinnar.
Næsti fundur verður haldinn 21. apríl kl.16:30 19:00.
Fundi slitið kl: 19:17
Fundargerð lesin upp og samþykkt
Fundargerð ritaði Helga Jónsdóttir
3. fundur Menningar-, íþrótta- og ferðamálanefndar.
11.3.2008 | 13.04
FUNDARGERÐ
Menningar- íþrótta- og
ferðamálanefndar fjarðabyggðar
FUNDUR NR. 3
Fundur haldinn í menningar- íþrótta- og ferðamálanefnd Fjarðabyggðar mánudaginn 10. mars 2008 kl.16:30 á bæjarskrifstofunni Reyðarfirði.
Mætt eru: Þóranna L. Snorradóttir formaður, Margrét Þorvaldsdóttir, Díana Mjöll Sveinsdóttir, Bjarney Hallgrímsdóttir, Benedikt Jóhannsson, Helga Jónsdóttir bæjarstýra, Hildigunnur Jörundsdóttir ferða- og menningarfulltrúi og Pétur Sörensson forstöðumaður Safnastofnunar.
Dagskrá:
1. Staða mála
Farið yfir fundargerð síðasta fundar og stöðu mála.
2. Drög að samþykkt fyrir menningar- íþrótta og ferðamálanefnd
Farið yfir fyrstu drög að samþykkt fyrir menningar-, íþrótta og ferðamálanefnd. Athugasemdum komið á framfæri við ferða- og menningarfulltrúa fyrir fyrir 18. mars 2008.
3. Reglur um mótahald á skíðasvæðinu í Oddsskarði
Lagðar fram reglur um mótahald á skíðasvæðinu í Oddsskarði. Nefndin staðfestir reglurnar.
4. Styrkumsókn vegna Músíktilrauna 2008
Lögð fram umsókn hljómsveitarinnar WINSON um styrk til að komast í músík tilraunir. Samþykkt að styrkja hvern einstakling um 10.000.- krónur, alls 30.000 krónur, samanber afgreiðslu á síðasta fundi 25. febrúar 2008.
5. Útlán bókasafnanna
Lögð fram tillaga forstöðumanns Safnastofnunar um breytingu á útlánareglum bókasafna í Fjarðabyggð, þar sem lagt er til að útlánstími verði lengdur. Nefndin samþykkir tillöguna.
6. Val á íþróttamanni ársins
Lögð var fram tillaga um að kjöri íþróttamanns ársins í Fjarðabyggð verði lýst í grunnskólanum á Stöðvarfirði 26. mars 2008. Jafnframt lagðar fram til kynningar vinnureglur við greiðslu atkvæða í kjöri íþróttamanns Fjarðabyggðar og reglugerð um kjör íþróttamanna Fjarðabyggðar. Nefndin samþykkir tillöguna og felur æskulýðs- og íþróttafulltrúa að undirbúa samkomuna og boða til hennar með góðum fyrirvara.
7. Úthlutun menningarstyrkja 2008
Umsóknarfrestur um styrki til menningarmála í sveitarfélaginu rann út 15.febrúar síðastliðinn. Alls bárust umsóknir upp á rúmlega 15 milljónir kr. MÍF lýsir ánægju sinni með gróskuna í menningarlífi sveitarfélagsins sem fjöldi og gæði umsókna endurspeglar. Eftir yfirferð umsókna og flokkun þeirra samþykkir nefndin úthlutun sem hér segir:
Sjóminjasafn Austurlands................................................. 925.000,-
Franskir dagar................................................................ 500.000,-
Listasmiðja Norðfjarðar..................................................... 350.000,-
Brján............................................................................. 330.000,-
Kári Þormar, kammerkóramót........................................... 250.000,-
Stefán Magnússon, Eistnaflug........................................... 200.000,-
Grafík setrið, sýning......................................................... 200.000,-
Kirkju- og menningarmiðstöðin, aðventutónleikar................ 200.000,-
Söng- og leikfélag VA...................................................... 150.000,-
Daníel Arason, tónleikar................................................... 150.000,-
Albert Eiríksson, tónleikar................................................. 150.000,-
Jasshátíð Egilsstaða á Austurlandi...................................... 150.000,-
Kári Þormar, tónleikar...................................................... 125.000,-
Nemendafélag ME, leiksýning .......................................... 100.000,-
Tónskóli Neskaupstaðar, tónleikar .................................... 100.000,-
Leikfélag Reyðarfjarðar, sýning......................................... 100.000,-
Minningasjóður Jóns Lunda................................................. 63.000,-
Frú Norma, leiksýning........................................................ 50.000,-
Sævar Guðjónsson, gönguvika............................................ 50.000,-
Kirkju- og menningarmiðstöðin, tónleikar............................. 50.000,-
Cirkus Atlandis og Leikhópurinn Vera, námskeið................... 50.000,-
Elzbieta Arsso, tónleikar..................................................... 50.000,-
Samtals...................................................................... 4.293.000,-
Bjarney Hallgrímsdóttir situr hjá við afgreiðslu styrkjanna.
Nefndin samþykkir að fyrir úthlutun næsta árs verði skoðaðar forsendur fyrir samningum til meira en eins árs við einstaka aðila. Jafnframt samþykkt að óska eftir stuttum greinargerðum um ráðstöfun styrkjanna frá styrkhöfum.
Umfjöllun um stefnumörkun í ferðaþjónustu í Fjarðabyggð frestað til næsta fundar.
Næsti fundur verður haldinn 7. apríl kl.16:30 19:00.
Fundi slitið kl: 18:01
Fundargerð lesin upp og samþykkt
Fundargerð ritaði Hildigunnur Jörundsdóttir
2. fundur menningar- íþrótta og ferðamálanefndar
26.2.2008 | 08.53
1. fundur Menningar- íþrótta og ferðamálanefndar
26.2.2008 | 08.46