Menningarráð var lagt niður 1.2. 2008. 

Menningar- íþrótta- og ferðamálanefnd  tók til starfa 1.2. 2008 og tók við verkefnum menningarráðs.

Bæjarstjórn kýs fimm fulltrúa og jafnmarga til vara í menningarráð. Kjörtímabil ráðsins er hið sama og bæjarstjórnar. Menningarráð fer með málefni bókasafna skv. ákvæðum laga um almenningsbókasöfn. Einnig fer ráðið með málefni annarra safna skv. ákvæðum laga og samninga þar um. Þá tilnefnir ráðið í fulltrúaráð Héraðsskjalasafns Austfirðinga, , Sjóminjasafns, Smiðju- og sjóminjasafns Jósafats Hinrikssonar. Ráðið skal vera bæjarstjórn til ráðuneytis um verndun gamalla húsa og fornra minja skv. þjóðminjalögum. Þá skal ráðið sinna málefnum ferðamála, söguritunar, menningarviðburðum og hátíðum sem og menningarmálum í víðustum skilningi. Tilnefningar ráðsins eru háðar samþykki bæjarstjórnar. Auk verkefna sem menningarráð hefur með höndum getur bæjarstjórn falið henni ýmis verkefni með samþykktum og erindisbréfum. Ráðið starfar samkvæmt samþykkt sem sett er um störf þess.



Undirnefndir

Ráðgjafahópur um safnamál
Ráðgjafahópur um safn Jósafats Hinrikssonar