Nefndin er skipuð fimm fulltrúum sem bæjarstjórn kýs á fyrsta eða öðrum fundi nýkjörinnar bæjarstjórnar og er kjörtímabil hennar hið sama og bæjarstjórnar. Bæjarstjórn kýs formann og varaformann.  Mannvirkjanefnd ber ábyrgð á stefnumörkun í þeim málefnum sem undir hana heyra og fer með málefni eignasjóðs, veitna, þjónustumiðstöðvar og tækjamiðstöðvar og umferðar- og umferðaröryggismál.  Hún fer með nýbyggingarverkefni og hönnunar- og byggingarstjórn og gerir tillögu til bæjarráðs um forgangsröðun nýframkvæmda og viðhaldsáætlanir fasteigna bæjarins.

Aðalmenn:

Jón Björn Hákonarson (B) formaður

Guðjón B. Magnússon (L) varaformaður

Hildur Magnúsdóttir (L)

Stefán Ingvarsson (B)

Jens Garðar Helgason (D)

Varamenn:

Benedikt Sigurjónsson (B)

Ingólfur Hafsteinn Hjaltason (B)

Jón Þorláksson (L)

Guðmundur R. Gíslason (L)

Gunnar A. Karlsson (D)