Nefndin er skipuð fimm fulltrúum sem bæjarstjórn kýs á fyrsta eða öðrum fundi nýkjörinnar bæjarstjórnar og er kjörtímabil hennar hið sama og bæjarstjórnar. Bæjarstjórn kýs formann og varaformann. Umhverfis- og skipulagsnefnd ber ábyrgð á stefnumörkun í þeim málefnum sem undir hana heyra. Hún hefur umsjón með gróður-umhverfis- og ásýndarmálum, söfnun og meðferð úrgangs, skipulagsáætlunum til lengri og skemmri tíma, s.s. aðalskipulagi og deiliskipulagi, byggingarmálum og verkefnum skipulags- og byggingarfulltrúa.


Aðalmenn:

Eiður Ragnarsson (B) formaður
Íris Valsdóttir(L) varaformaður
Aðalheiður Vilbergsdóttir (L)
Kristín Ágústsdóttir (D)
Agnar Bóasson (D)

Varamenn:

Líneik Anna Sævarsdóttir (B)
Ásbjörn Guðjónsson (L)
Halldóra Guðlaugsdóttir (L)
Jón Grétar Margeirsson (D)
Pétur Gauti Hreinsson (D)