
Aðalskipulag Fjarðabyggðar 2007-2027
Góður staður til framtíðar
Aðalskipulag er skipulagsáætlun fyrir sveitarfélagið og skal taka til alls lands viðkomandi sveitarfélags. Í aðalskipulagi setur sveitarstjórn fram stefnu sína um landnotkun, byggðaþróun, byggðamynstur, samgöngu- og þjónustukerfi og umhverfismál í sveitarfélaginu. Í aðalskipulagi er lagður grundvöllur fyrir deiliskipulagsgerð einstakra svæða í sveitarfélaginu.
Greinargerð með aðalskipulagi Fjarðabyggðar 2007 - 2027
Forsíða greinargerðarinnar
Aðalskipulagsuppdrættir
Þéttbýlisuppdrættir:
Unnið var að nýju aðalskipulagi fyrir Fjarðabyggð undir yfirskriftinni Fjarðabyggð - góður staður til framtíðar. Þetta er fyrsta aðalskipualgið fyrir þá Fjarðabyggð sem varð til við sameiningu árið 2006. Vinnan við aðalskipulagið hófst í lok árs 2006 og var aðalskipulagið endanlega samþykkt og kynnt haustið 2009. Í þessu aðalskipulagi er lögð áhersla á samræmda framtíðarsýn, umhverfismál og stefnumótun fyrir Fjarðabyggð alla. Jafnframt er fjallað sérstaklega um hvern byggðakjarna og unnið að stefnumótun um staðbundnar áherslur á hverjum stað.
Aðalskipulagsvinnan fól í sér víðtækt samráð við íbúa Fjarðabyggðar og aðra hagsmunaaðila. Í janúar 2007 voru haldin íbúaþing í öllum byggðakjörnum Fjarðabyggðar þar sem safnað var í sarpinn hugmyndum íbúa um efni og áherslur aðalskipulagsins. Einnig var haldinn hugarflugsfundur með kjörnum fulltrúum og nokkrum starfsmönnum sveitarfélagsins.