Lögð er áhersla á að ávalt sé nægilegt framboð lóða í Fjarðabyggð. Nú eru lausar lóðir í öllum þéttbýliskjörnunum eða tilbúnar til úthlutunar innan fárra mánaða.

Í Neskaupstað eru 1 laus lóð við Sæbakka. Næsta vor verða 14 einbýlishúsalóðir til viðbótar við Móbakka til úthlutunar.  Á Stöðvarfirði eru 12 lóðir lausar við Heiðmörk og í Melahverfi.  

Starfsmenn umhverfissviðs veita allar nánari upplýsingar um lausar lóðir í síma 470 9000. Skrá yfir lausar lóðir í Fjarðabyggð

Ekki er greitt fyrir lóðir í Fjarðabyggð en gatnagerðargjald miðast við flatarmál lóðar. Verð á meðalstórri lóð (gatnagerðargjald og tengigjöld) er um 2 milljónir króna.  Sjá nánar gjaldskrá gatnagerðargjalda.