Páll Björgvin Guðmundsson,

Bæjarstjóri - Mayor


Páll Björgvin Guðmundsson
Heima: Sæbakka 34
740 Fjarðabyggð
Netfang:pall.b.gudmundsson@fjardabyggd.is
Beinn sími: 470 9091
Farsími: 895 6810

Íbúar geta haft samband eða pantað viðtal við bæjarstjóra í síma 470 9000.

Páll Björgvin Guðmundsson var ráðinn bæjarstjóri Fjarðabyggðar 15. september 2010. 

Páll Björgvin er viðskiptafræðingur og MBA, fæddur 1970,  kvæntur Hildi Ýr Gísladóttur og eiga þau þrjú börn. Páll starfaði áður sem útibússtjóri Íslandsbanka á Austurlandi. Þar áður starfaði hann sem fjármálastjóri Fjarðabyggðar frá 2004-2008.

 

Bæjarstjóri er framkvæmdarstjóri bæjarins. Hann undirbýr fundi bæjarráðs og bæjarstjórnar, semur dagskrá og boðar til funda. Hann á sæti á fundum bæjarstjórnar og bæjarráðs og hefur þar málfrelsi og tillögurétt, þ.m.t. rétt til bókana, en eigi atkvæðisrétt nema hann sé kjörinn fulltrúi í bæjarstjórn. Hann hefur og rétt til setu á fundum nefnda bæjarins með sömu réttindum. Bæjarstjóri hefur á hendi framkvæmd ákvarðana bæjarstjórnar og bæjarmálefna að svo miklu leyti sem bæjarstjórn hefur ekki ákveðið annað.

 

Bæjarstjóri er prókúruhafi bæjarsjóðs, hann undirritar skjöl varðandi kaup og sölu fasteigna bæjarins, lántökur og aðrar skuldbindingar hans. Bæjarstjóra er heimilt með samþykki bæjarráðs að veita stjórnendum fyrirtækja og stofnana prókúru.

 

Bæjarstjóri er æðsti yfirmaður starfsliðs bæjarins. Forstöðumaður mannauðs- og upplýsingatæknimála er staðgengill bæjarstjóra.

Pistlar Páls Björgvins