Bæjarstjóri er framkvæmdastjóri bæjarins og æðsti yfirmaður starfsliðs. Bæjarstjóri hefur á hendi framkvæmd ákvarðana bæjarstjórnar og bæjarmálefna að svo miklu leyti sem bæjarstjórn ákveðið ekki annað. Bæjarstjóri er prókúruhafi bæjarsjóðs, hann undirritar skjöl varðandi kaup og sölu fasteigna bæjarins, lántökur og aðrar skuldbindingar hans. Hann kemur fram fyrir hönd sveitarfélagsins og er ábyrgur fyrir starfsemi þess. Hann undirbýr fundi bæjarráðs og bæjarstjórnar, semur dagskrá og boðar til funda. Hann á sæti á fundum bæjarstjórnar/bæjarráðs og hefur þar málfrelsi og tillögurétt. Jafnframt hefur hann rétt til setu á fundum ráða bæjarins með sömu réttindum.

 

Yfirstjórn sveitarfélagsins er skipt upp í fimm megin svið og eru þau fjármála- og stjórnsýslusvið, félagsþjónustusvið, fræðslu- og menningarsvið, umhverfissvið og hafnarsvið. Sviðsstjórar eru 5, einn yfir hverju sviði. Sviðsstjórar heyra beint undir bæjarstjóra og eru æðstu yfirmenn sviðanna. Bæjarstjóri deilir með sviðsstjórum verkefnum og miðlar upplýsingum til þeirra. Sviðsstjórar undirbúa fundi höfuðnefnda sem fjalla um málefni sviðanna og sitja þá.

 

Fjármála- og stjórnsýslusvið hefur umsjón og eftirlit með fjármálalegri starfsemi sveitarfélagsins og stofnana þess, gerð fjárhagsáætlunar, eftirlit með ráðstöfun fjárveitinga stofnana innan ársins og færslu bókhalds fyrir bæjarsjóð og stofnanir hans, ásamt  kostnaðareftirliti.

 

Umsjón með rekstri málaflokka og stofnana sveitarfélagsins er deilt á sviðin. Sviðsstjóri ber ábyrgð á því að sviðið og stofnanir sem undir það heyra starfi samkvæmt lögum, reglum, skipuriti, starfsmannastefnu og erindisbréfi. Jafnframt ber sviðsstjóri ábyrgð á að útgjöld séu í samræmi við fjárhagsáætlun og að gerð sé ársskýrslu að loknu starfsári. Það er hluti af starfi sviðsstjóra að stuðla að virkri miðlun upplýsinga til undirmanna. Þessari miðlun ber að sinna með reglulegum fundum þar sem farið er yfir þau mál sem eru á döfinni og snerta málefni sviðsins. Með því er tryggt að öllum starfsmönnum sé ljós stefna, markmið og áætlanir sveitarfélagsins. Í starfsskyldum stjórnenda er fjallað nánar um hlutverk stjórnenda í starfsemi sveitarfélagsins.

 

Yfirstjórn sveitarfélagsins hefur aðstöðu á bæjarskrifstofum sveitarfélagsins sem eru tvær. Þar er sameiginlegt skrifstofuhald og veittar upplýsingar um stöðu mála hjá sveitarfélaginu. Þar hafa nefndir fundaraðstöðu. Á bæjarskrifstofum er sameiginlegt skrifstofuhald fyrir alla stjórnsýslu bæjarins. Í afgreiðslu er leitast við að veita sem víðtækastar upplýsingar um þjónustu og starfsemi bæjarins og má þar nefna upplýsingar um afgreiðslu bæjarstjórnar, bæjarráðs og nefnda bæjarins.  Þangað geta bæjarbúar leitað til að afla upplýsinga um tiltekin mál sem verið hafa til meðferðar hjá bæjaryfirvöldum og jafnframt fengið aðgang að gögnum eftir því sem eðlilegt er og mælt er fyrir um í upplýsinga- og stjórnsýslulögum.


Bæjarbúar sem og aðrir viðskiptamenn bæjarins geta leitað til bæjarskrifstofa með ýmis mál er varða réttindi þeirra. Starfsmenn á skrifstofunum veita leiðbeiningar og aðstoða við að koma á framfæri erindum við bæjarstjórn, bæjarráð eða nefndir bæjarins. Jafnframt er leitast við að veita þar upplýsingar um reglur þær er gilda um meðferð mála, sem berast til umfjöllunar hjá bæjaryfirvöldum.