Esbjerg
í Danmörku




Eskilstuna
 í Svíþjóð

  Jyvaskyla
í Finnlandi
 
 




 Stavanger
í Noregi
 
   Gravelines 
íFrakklandi
Vinabæir eru sveitarfélög á Norðurlöndum, eitt frá hverju landi sem mynda vinabæjakeðju. Hlutverk vinabæjanna er að miðla reynslu á sem flestum sviðum,styrkja menningartengsl og efla almenn samskipti. Samstarf Fjarðabyggðar við vinabæina hefur einkum verið á sviði sveitarstjórnarmála,menningar- og æskulýðsmála.

 

Á sjöunda ártugnum gerðist Neskaupstaður formlega aðili að norrænu vinabæjakeðjunni og tók Fjarðabyggð yfir vinabæjasamskiptin við sameiningu sveitarfélaganna.Vinabæir Fjarðabyggðar eru Esbjerg, Eskiltuna, Jyvaskila og Stavanger.

Einnig hefur Fjarðabyggð vinabæjasamskipti við bæina Sandavog í Færeyjum og Maniitsup á Grænlandi.


Þegar Fáskrúðsfjörður sameinaðist Fjarðabyggð bættist Gravelines  í Frakklandi í vinabæjarhópinn.  Á hverju ári kemur sendinefnd frá Graveline til að taka þátt í  Frönskum dögum á Fáskrúðsfirði.  Í Graveline er Íslandshátíð í september ár hvert og hafa fulltrúar Austurbyggðar og eftir sameininguna  Fjarðabyggðar mætt á hana.