Spurt og svarað um atvinnulíf:



Upplýsingar fyrir atvinnurekendur vegna nýrra starfsmanna

 

 

Borið hefur á að fólk er ekki alltaf rétt skráð hjá inni í „kerfinu“ hjá yfirvöldum og getur það valdið vandræðum, sérstaklega þegar fólk þarf að leita réttar síns. Forsenda þess að eiga rétt á almennum sjúkratryggingum, félagsþjónustu, aðgangi að leikskóla, grunnskóla og fleiru er að hafa lögheimilið skráð í Þjóðskrá.

 Rauði krossinn aðstoðar gjarnan við að leiðbeina fólki innan kerfisins og eru starfsmenn bæði í Fjarðabyggð og á Fljótsdalshéraði sem taka það að sér, sjá neðan.

Þegar nýr starfsmaður byrjar í vinnu er gott fyrir atvinnurekanda að kanna:

Er viðkomandi með lögheimili í sveitarfélaginu - eða er hann aðkomumaður og þarf að flytja lögheimili sitt?

Minna á „Flutningstilkynningu“ sem allir sem flytja þurfa að fylla út og senda til Þjóðskrár eða bæjarskrifstofu. Hægt er að nálgast öll eyðublöð á vef hjá Þjóðskrá  eða á bæjarskrifstofum og í Fjarðabyggð einnig á þjónustugáttum bókasafnanna í hverju hverfi.

 

Ef viðkomandi er erlendur ríkisborgari og ekki með með lögheimili á íslandi þá þarf að athuga:

 

Er viðkomandi með kennitölu? http://www.fasteignaskra.is/lisalib/getfile.aspx?itemid=5828

Er viðkomandi með skattkort?

Er viðkomandi með sjúkratryggingu?

Ef þetta er allt til staðar þá þarf bara að fylla út eyðublaðið til að fá skráningu í þjóðskrá http://www.fasteignaskra.is/lisalib/getfile.aspx?itemid=5844

Gögn og vottorð s.s. fæðingarvottorð og hjúskaparvottorð sem skila þarf inn til þjóðskrá þurfa að vera á íslensku, ensku eða öðru Norðurlandamáli þýdd af löggildum skjalaþýðanda. Ráðningasamning með rúmlega þrjá mánuði þarf til að komast inn í þjóðskrá

Íbúar utan EES / eða utan EU

Er viðkomandi með dvalarleyfi / atvinnuleyfi?

Athugið að Atvinnuleyfið er bundið við það fyrirtæki sem sótti um leyfið í upphafi  og því er nauðsynlegt að  sækja um atvinnuleyfi fyrir viðkomandi hjá sínu fyrirtæki.

 

Íslenskukennsla og samfélagsfræðsla

Hefur starfsmaður sótt íslenskunámskeið -Atvinnurekandi og stéttarfélag skulu veita starfsmanni meðtímabundið atvinnuleyfi upplýsingar um grunnnámskeið  í íslensku fyrir útlendinga, samfélagsfræðslu og aðra þá fræðslu sem honum og fjölskyldu hans stendur til boða

Reglur um lögheimili eru eftirfarandi

  • Föst búseta er á þeim stað þar sem einstaklingur er oftast; þar sem einstaklingurinn er með eigur sínar, sinnir tómstundum og sefur þegar hann er ekki fjarverandi um stundarsakir vegna orlofs, vinnuferða, veikinda eða annarra ástæðna.
  • Lögheimili verður að hafa skilgreint heimilisfang við götu eða hús með nafni.
  • Að búa á gistihúsi, sjúkrahúsi, í verbúð, vinnubúðum eða öðru húsnæði af því tagi, getur ekki verið lögheimili eða föst búseta.
  • Aðeins er hægt að eiga lögheimili á einum stað.
  • Hjón eiga sama lögheimili. Ef þau búa á tveimur stöðum þá á lögheimilið að vera hjá því hjóna sem börnin búa hjá.
  • Ef hjón deila ekki saman stað og börn þeirra búa hjá þeim báðum eða þau eru barnlaus, verða þau að ákveða á hvorum stað lögheimilið er. Ef einstaklingur skráir ekki lögheimili sitt ákveður Þjóðskrá það.
  • Sömu reglur gilda um einstaklinga í sambúð eða í staðfestri samvist.
  • Barn 17 ára eða yngra á sama lögheimili og foreldrar þess ef þeir búa saman, annars hjá því foreldri sem hefur forsjá barnsins.
  • Einstaklingur sem flytur frá Íslandi og hættir þar með að eiga lögheimili hér á landi skal tilkynna það til sveitarfélagsins þar sem hann býr áður en hann flytur burt. Einnig þarf að tilkynna hvar viðkomandi ætlar að búa erlendis.

Allir sem hafa lögheimili á Íslandi eiga að vera skráðir í þjóðskrá.



Við aðstoðum gjarnan erlenda ríkisborgara við að rata rétt í „kerfinu“. Endilega hafið samband ef aðstoðar er þörf

Sigríður Herdís Pálsdóttir, Verkefnisstjóri Rauða kross deilda Í Fjarðabyggð, Sími 4709021/ 897 0916, siggadis@redcross.is

Johanna Henriksson, Verkefnisstjóri Rauða krossins, Héraðs- og Borgarfjarðardeild Fljótsdalshérað, Sími 863 3616,  johannamaria@redcross.is

 

 

 

 

 

 

 

 

 

Sigríður Herdís Pálsdóttir

Verkefnisstjóri Rauða kross deilda

Í Fjarðabyggð

Sími 4709021/ 897 0916

siggadis@redcross.is

 

Fyrirtæki og þjónusta

Upplýsingar um þjónustu í Fjarðabyggð eftir hverfum eru á Gulu síðunum hjá ja.is



Norðfjörður

 

Mjóifjörður

 

Eskifjörður

 

Reyðarfjörður

 

Fáskrúðsfjörður

 

Stöðvarfjörður


Sjá einnig kortavefsjá og stofnanir Fjarðabyggðar

 

Fjarðabyggðarhafnir

 

Hvaða þjónustu er verið að lýsa? Þjónustu Fjarðabyggðarhafna

Hafnirnar þjóna skipum, bátum  og öðrum sem leið eiga um hafnirnar eða hafnarsvæðin. 

 

Fyrir hverja er þjónustan?

Þjónusta hafnarinnar er fyrir útgerðir, fyrirtæki og einstaklinga sem erindi eiga um hafnirnar eða hafnarsvæðin. Höfnin veitir dráttarbátaþjónustu og þeim sem þurfa á slíkri þjónustu er bent á að hafa samband við Reyðarfjarðarhöfn í síma 474-1305

 

Hvað kostar þjónustan?

 

Sjá gjaldskrá hafnarsjóðs Fjarðabyggðar.

 

Hvar er þjónustan veitt, hvenær, símanúmer og netfang?

Fjarðabyggðarhafnir eru með hafnaraðstöðu í öllum sex þéttbýlisstöðum sveitarfélagsins, Eskifirði, Fáskrúðsfirði, Mjóafirði, Norðfirði, Reyðarfirði og Stöðvarfirði.  Sólarhringsþjónusta er veitt á öllum höfnum Fjarðabyggðar.

 

  • Norðfjörður Sími 477-1333 Fax  477-1440 Netfang hofnnes@fjardabyggd.is 

  • Eskifjörður Sími 476-1199 Fax  476-1597 Netfang hofnesk@fjardabyggd.is  

     

  • Reyðarfjörður     Sími 474-1305   Fax 474-1456 Netfang hofnrey@fjardabyggd.is   Á Reyðarfirði er jafnframt með vaktsíma fyrir Fáskrúðsfjörð og Stöðvarfjörð.

     

  • Fáskrúðsfjörður Sími 475-9040 Fax 475-1495 Netfang hofnfas@fjardabyggd.is   Bakvaktasími er á Reyðarfjarðarhöfn í síma 474-1305 hofnrey@fjardabyggd.is

     

  • Stöðvarfjörður Sími 475-9015 Fax 475-9015 Netfang hofnsto@fjardabyggd.is   Bakvaktasími er á Reyðarfjarðarhöfn í síma 474-1305 hofnrey@fjardabyggd.is

     

  • Mjóifjörður  Sími 476-0007   Netfang mjoi@simnet.is   Norðfjörðarhöfn  sér að nokkru um þjónustu fyrir Mjóafjarðarhöfn og er með vaktsíma fyrir hana.   

     

Upplýsingar um umsóknafresti og móttöku umsókna.

Hægt er að óska eftir viðtali við framkvæmdastjóra Fjarðabyggðarhafna með því að hringja í síma 470-9000 eða senda tölvupóst á netfangið steinthor.petursson@fjardabyggd.is 

 

Hvaða gögnum þarf að skila?

Engum gögnum þarf að skila nema þegar um landaðan afla er að ræða en þá þarf að skila til löndunarhafnar uppgjöri aflaverðmætis til útreiknings aflagjalds.

 

Ferill

Sjófarendum ber að tilkynna til viðkomandi hafnar um komu til hafnar með ákveðnum fyrirvara sbr. hafnarreglugerð Fjarðabyggðarhafna.  Öll umferð um höfnina og hafnarsvæði á að fara fram í samráði við hafnarstarfsmenn á viðkomandi stað.

 

Hvernig eru ábendingar og eða kvartanir meðhöndlaðar?

Framkvæmdastjóri Fjarðabyggðarhafna, Hafnargötu 2, 730 Reyðarfirði, tekur við öllum ábendingum og/eða kvörtunum um þjónustuna, sími 470 9000, fax 470 9001, netfang: steinthor.petursson@fjardabyggd.is  


Hver hefur umsjón með þjónustunni?

Framkvæmdastjóri Fjarðabyggðarhafna hefur umsjón með þjónustunni og er skrifstofa hans að Hafnargötu 2 730 Fjarðabyggð, sími 470-9000, fax 470-9001 og netfangið steinthor.petursson@fjardabyggd.is 

 

Tengiliðir  vegna þjónustu

 

 

  • Fáskrúðsfjörður:  Vakthafandi starfsmaðurer  á Reyðarfirði  sími 474-1305, fax 474-1456 netfang hofnrey@fjardabyggd.is.

 

  • Stöðvarfjörður  Vakthafandi starfsmaður er  á Reyðarfirði  sími 474-1305, fax 474-1456 netfang hofnrey@fjardabyggd.is.

 

  • Mjóafjörður: Norðfjörður sér að nokkru um þjónustu fyrir Mjóafjarðarhöfn og er með vaktsíma fyrir hana í sími 477-1333 Fax  477-1440 Netfang hofnnes@fjardabyggd.is

 

Einnig er hægt að hafa samband við starfsmann hafnarinnar á Mjóafirði sími 476-0007 Fax   Netfang mjoi@simnet.is

 

Útleiga á sölum fyrir viðburði



Hvaða þjónustu er lýst?



Leiga á sölum undir fundi, ráðstefnur eða veislur í sveitarfélaginu.

 

Fyrir hverja er þjónustan og/eða hvaða skilyrði eru sett til þess að hægt sé að sækja að um þjónustuna?

 

Fyrir alla sem vilja leiga sali fyrir viðburði eða samkomur 

Hvað kostar þjónustan?

Gjald er mismunandi eftir því um hvaða sali er að ræða og einnig getur leigan  verið mismunandi  eftir árstíma. 

 

Hvar er þjónustan veitt, hvenær, símanúmer og netfang?

 

 

 

Mjóifjörður

Sólbrekka, Brekku, sími 476-0007, netfang: mjoi@simnet.is.  Lítill salur í umsjón ferðaþjónustunnar Sólbrekku.

 

Norðfjörður

Egilsbúð, Egilsbraut 1, sími 477 1430.  Félagsheimili sem getur hýst stórar veislur, dansleiki, ráðstefnur, fundi og fleira. Hægt að pantaveitingar af rekstraraðila.

 

Slysavarnarhús Björgunarsveitarinnar Gerpis, Nesgata 4, sími 477 1999, netfang: gerpir@gerpir.is. Salur til leigu.

 

Safnaðarheimili Norðfjarðarkirkju,  Egilsbraut 15, 477 1766.

 

Safnahúsið, Egilsbraut 2, Norðfirði, sími 470 9063, sofn@fjardabyggd.is.  Salur á neðstu hæð í þriggja hæða safni.

 

Eskifjörður

Félagsheimilið Valhöll, Strandgata 49,   Stórt félagsheimili sem getur hýst stórar veislur, dansleiki, ráðstefnur, fundi og fleira.  Nánari upplýsingar eru veittar framkvæmdasviði í síma 470 9000. netfang. fjardabyggd@fjardabyggd.is  

Kirkju- og menningarmiðstöðin Fjarðabyggð, Dalsbraut 2, sími 476 1742,  heimasíða www.tonleikahus.is.  Tónleikahús með frábæra aðstöðu fyrir tónleika og fyrirlestra auk tveggja minni sala. Hentar vel fyrir tónleika, veislur, fundi eða ráðstefnur.

 

Reyðarfjörður

 

Safnaðarheimili Reyðarfjarðarkirkju. Umsjónarmaður er Sigurbjörg Kr. Bóasdóttir sími 864 24 11. Salur safnaðarheimilisins hentar vel undir smærri fundi og veislur.

 

Félagsheimilið Félagslundur  Stór salur með sætum og sviði og minni salur fyrir fundi eða smærri veislur.  Nánari upplýsingar eru veittar framkvæmdasviði í síma 470 9000. netfang. fjardabyggd@fjardabyggd.is
 

 

Þórðarbúð, hús björgunarsveitarinnar Ársólar, við Austurveg. Umsjónarmaður er Harpa Vilbergsdóttir, sími  897 5402 og netfang harpav@hotmail.com. Salurinn hentar vel fyrir smærri veislur og fundi. Glæsilegt eldhús er í salnum með öllum helstu heimilistækjum ásamt því að skjávarpi og gott hljóðkerfi er einnig til staðar. 

 

 

Fáskrúðsfjörður

Félagsheimilið Skrúður, Skólavegi 45 - 47.  Félagsheimili, stór salur og minni fyrir dansleiki, veislur, ráðstefnur eða annað.  Nánari upplýsingar eru veittar framkvæmdasviði í síma 470 9000. netfang. fjardabyggd@fjardabyggd.is  


Hótel Bjarg
, Fáskrúðsfirði www.hotelbjarg.is    Salur fyrir fundi fyrirlestra eða veislur.  Hægt að kaupa veitingar.

 

Stöðvarfjörður

Kaffi Steinn, Fjarðarbraut 41, sími 511 3055, netfang  kaffisteinn@simnet.is

Brekkan, Fjarðarbraut 44, sími: 475 8939. 


Listinn er ekki tæmandi – ef þú ert með sal til leigu – vinsamlega sendu upplýsingar á netfangið upplysingafulltrui@fjardabyggd.is

 

  

Hvernig eru ábendingar og kvartanir meðhöndlaðar?

 

Ábendingar og kvartanir berist til umsjónaraðila með þjónustunni.  

 

Atvinnuleysisbætur

 

Hvaða þjónustu er lýst?

Umsókn um atvinnuleysisbætur

 

Fyrir hverja er þjónustan og/eða hvaða skilyrði eru sett til þess að hægt sé að sækja að sækja um þjónustuna?

Þjónustan er fyrir alla sem ekki hafa vinnu og vilja skrá sig sem atvinnuleitanda og  þiggja atvinnuleysisbætur á meðan á leit að vinnu stendur.

 

Hvað kostar þjónustan?

 Hún er gjaldfrjáls

 

Hvar er þjónustan veitt, hvenær, símanúmer og netfang?

Bæjarskrifstofa og bókasöfn Fjarðabyggðar eru einungis þjónustuaðilar vegna umsókna um atvinnuleysisbætur. Þjónustan er veitt á bókasöfnunum í Fjarðabyggð á opnunartíma þeirra og á bæjarskrifstofu Fjarðabyggðar Hafnargötu 2, 730 Fjarðabyggð í síma 470 9000  netfang fjardabyggd@fjardabyggd.is. Einnig eru veittar upplýsingar á skrifstofu Vinnumálastofnunar Austurlands, Miðási 1, 700 Egilsstöðum, í síma 512 8280 – netfang austurland@vmst.is

 

Upplýsingar um umsóknafresti og móttöku umsókna.

Frumriti umsóknar skal skilað til Vinnumálastofnunar eða á bókasöfnin í Fjarðabyggð. Einnig er hægt að skrá sig atvinnulausan á vef  Vinnumálastofnunar www.vmst.is  Liðið geta 3-6 vikur frá því umsókn berst og þangað til að hún er tekin fyrir hjá Greiðslustofu Vinnumálastofnunar.

 

Hvaða gögnum þarf að skila?   

·         Vottorði frá vinnuveitendum um vinnutíma og hlutfall vinnu vegna síðustu 36 mánaða.

·         Tilkynningu um tekjur - sjá eyðublað

·         Skattkorti

 

Tekið er á móti umsókn á bókasöfnunum og á bæjarskrifstofunni og farið yfir ýmis atriði sem þurfa að vera rétt útfyllt svo sem

·         Að merkt sé við að greitt verði í  lífeyrissjóð

·         Upplýsingar um stéttarfélagsgjald og viðbótaframlag í séreignasjóð (val )

·         Upplýsingar um leyninúmer

·         Bankaupplýsingar.

 

Ferli umsóknar.  

:Tekið er við umsókn á bókasöfnunum í Fjarðabyggð og hjá Vinnumálastofnun á Egilsstöðum.

·         Mat á umsóknum fer fram hjá Vinnumálastofnun Austurlands

·         Ákvörðun um afgreiðslu umsóknar er tekin hjá Vinnumálastofnun Austurlands.

·         Umsækjandi fær skriflegt svar frá Vinnumálastofnun Austurlands um niðurstöðu.

·         Framkvæmd þjónustunnar er öll hjá Vinnumálastofnun

·         Umsækjandi þar að skrá sig milli 20.- 25. hvers mánaðar.

 

Hvernig eru ábendingar og kvartanir meðhöndlaðar?

Öllum ábendingum og kvörtunum er vísað til Vinnumálastofnunar www.vmst.is

 

Hver hefur yfirumsjón með þjónustunni?

Vinnumálastofnun Austurlands.  Bæjarskrifstofa og bókasöfnin eru eingöngu þjónustuaðilar.