Spurt og svarað um útleigu á sölum:



Útleiga á sölum fyrir viðburði



Hvaða þjónustu er lýst?



Leiga á sölum undir fundi, ráðstefnur eða veislur í sveitarfélaginu.

 

Fyrir hverja er þjónustan og/eða hvaða skilyrði eru sett til þess að hægt sé að sækja að um þjónustuna?

 

Fyrir alla sem vilja leiga sali fyrir viðburði eða samkomur 

Hvað kostar þjónustan?

Gjald er mismunandi eftir því um hvaða sali er að ræða og einnig getur leigan  verið mismunandi  eftir árstíma. 

 

Hvar er þjónustan veitt, hvenær, símanúmer og netfang?

 

 

 

Mjóifjörður

Sólbrekka, Brekku, sími 476-0007, netfang: mjoi@simnet.is.  Lítill salur í umsjón ferðaþjónustunnar Sólbrekku.

 

Norðfjörður

Egilsbúð, Egilsbraut 1, sími 477 1430.  Félagsheimili sem getur hýst stórar veislur, dansleiki, ráðstefnur, fundi og fleira. Hægt að pantaveitingar af rekstraraðila.

 

Slysavarnarhús Björgunarsveitarinnar Gerpis, Nesgata 4, sími 477 1999, netfang: gerpir@gerpir.is. Salur til leigu.

 

Safnaðarheimili Norðfjarðarkirkju,  Egilsbraut 15, 477 1766.

 

Safnahúsið, Egilsbraut 2, Norðfirði, sími 470 9063, sofn@fjardabyggd.is.  Salur á neðstu hæð í þriggja hæða safni.

 

Eskifjörður

Félagsheimilið Valhöll, Strandgata 49,   Stórt félagsheimili sem getur hýst stórar veislur, dansleiki, ráðstefnur, fundi og fleira.  Nánari upplýsingar eru veittar framkvæmdasviði í síma 470 9000. netfang. fjardabyggd@fjardabyggd.is  

Kirkju- og menningarmiðstöðin Fjarðabyggð, Dalsbraut 2, sími 476 1742,  heimasíða www.tonleikahus.is.  Tónleikahús með frábæra aðstöðu fyrir tónleika og fyrirlestra auk tveggja minni sala. Hentar vel fyrir tónleika, veislur, fundi eða ráðstefnur.

 

Reyðarfjörður

 

Safnaðarheimili Reyðarfjarðarkirkju. Umsjónarmaður er Sigurbjörg Kr. Bóasdóttir sími 864 24 11. Salur safnaðarheimilisins hentar vel undir smærri fundi og veislur.

 

Félagsheimilið Félagslundur  Stór salur með sætum og sviði og minni salur fyrir fundi eða smærri veislur.  Nánari upplýsingar eru veittar framkvæmdasviði í síma 470 9000. netfang. fjardabyggd@fjardabyggd.is
 

 

Þórðarbúð, hús björgunarsveitarinnar Ársólar, við Austurveg. Umsjónarmaður er Harpa Vilbergsdóttir, sími  897 5402 og netfang harpav@hotmail.com. Salurinn hentar vel fyrir smærri veislur og fundi. Glæsilegt eldhús er í salnum með öllum helstu heimilistækjum ásamt því að skjávarpi og gott hljóðkerfi er einnig til staðar. 

 

 

Fáskrúðsfjörður

Félagsheimilið Skrúður, Skólavegi 45 - 47.  Félagsheimili, stór salur og minni fyrir dansleiki, veislur, ráðstefnur eða annað.  Nánari upplýsingar eru veittar framkvæmdasviði í síma 470 9000. netfang. fjardabyggd@fjardabyggd.is  


Hótel Bjarg
, Fáskrúðsfirði www.hotelbjarg.is    Salur fyrir fundi fyrirlestra eða veislur.  Hægt að kaupa veitingar.

 

Stöðvarfjörður

Kaffi Steinn, Fjarðarbraut 41, sími 511 3055, netfang  kaffisteinn@simnet.is

Brekkan, Fjarðarbraut 44, sími: 475 8939. 


Listinn er ekki tæmandi – ef þú ert með sal til leigu – vinsamlega sendu upplýsingar á netfangið upplysingafulltrui@fjardabyggd.is

 

  

Hvernig eru ábendingar og kvartanir meðhöndlaðar?

 

Ábendingar og kvartanir berist til umsjónaraðila með þjónustunni.