Spurt og svarað um félagsþjónustu:



Stuðningsfjölskyldur fyrir börn með fötlun

 

Fyrir hverja er þjónustan og/eða hvaða skilyrði eru sett til þess að hægt sé að sækja að sækja um þjónustuna?

Forráðamenn fatlaðra barna geta sótt um stuðningsfjölskyldur fyrir börn sín. Hlutverk stuðningsfjölskyldna er að taka fatlað barn í umsjá sína í skamman tíma í senn.  Tilgangurinn er að létta álagi á fjölskyldur barna með fatlanir en þörf fyrir þjónustuna er metin í hverju tilfelli fyrir sig út frá aðstæðum barnsins og fjölskyldunnar.

 

Hvað kostar þjónustan?

Þjónustan er gjaldfrjáls.

 

Hvar er þjónustan veitt, hvenær, símanúmer og netfang?

Umsóknareyðublað er hægt að nálgast á skrifstofu Fjarðabyggðar og á bókasöfnum í Fjarðabyggð.  Afgreiðsla umsókna er hjá starfsfólki fjölskyldusviðs í síma 470 9000,  netfang  felagsthjonusta@fjardabyggd.is

 

Upplýsingar um umsóknafresti og móttöku umsókna:

Tekið er á móti umsóknum alla virka daga á bókasöfnum Fjarðabyggðar og í afgreiðslu skrifstofu Fjarðabyggðar að Hafnargötu 2, Reyðarfirði.

 

Hvaða gögnum þarf að skila?   

Með umsókninni þarf að fylgja umönnunarmat frá Tryggingastofnun ríkisins.

 

 Ferli umsóknar.  

·         Hvar er tekið við umsókn?
Tekið er við umsóknum á bókasöfnum Fjarðabyggðar. Einnig er hægt að póstsenda umsóknir á skrifstofu Fjarðabyggðar, Hafnargötu 2, 730 Fjarðabyggð.

·         Hvernig/hvar fer fram mat á umsókn?
Umsóknir eru teknar fyrir á meðferðarfundum ráðgjafar- og búsetuteymis fjölskyldusviðs Fjarðabyggðar, sem haldnir eru vikulega.

·         Hvernig/hvar er tekin ákvörðun um afgreiðslu umsóknar?
Ákvörðun um afgreiðslu umsóknar er tekin á meðferðarfundi ráðgjafar- og búsetuteymis, í sérstökum tilfellum getur þurft að vísa umsókninni til félagsmálanefndar Fjarðabyggðar.

·         Hvernig fær umsækjandi upplýsingar um niðurstöðuna?
Umsækjandi fær bréf um niðurstöðu umsóknarinnar sent í pósti.

·         Hvernig fer framkvæmd þjónustunnar fram ef umsókn er samþykkt?
Framkvæmd þjónustunnar er samkomulagsatriði milli fjölskyldusviðs Fjarðabyggðar, forráðamanna barnsins sem um ræðir og tilvonandi stuðningsfjölskyldu barnsins.

·         Hvað þarf umsækjandi að gera í umsóknarferlinu og þegar kemur að framkvæmd þjónustunnar?
Umsækjandi skila inn umsókn sem er að fullu útfyllt og skila öllum fylgigögnum

Hvernig eru ábendingar og kvartanir meðhöndlaðar?

Allar ábendingar og kvartanir skulu sendar á forstöðumann stjórnsýslu á netfangið fjardabyggd@fjardabyggd.is eða berast í síma 470 9000. 

Hver hefur yfirumsjón með þjónustunni?

Félagsmálastjóri hefur yfirumsjón með þjónustunni. Hægt er að hafa samband í síma 470 9000 eða á netfangið felagsthjonusta@fjardabyggd.is.

 



Dagforeldrar

 

1.         Hvaða þjónustu er lýst?


Skv. Reglugerð 907/2005 um daggæslu í heimahúsum hefur sveitarfélagið umsjón og eftirlit með starfsemi dagforeldra.  Skv. ákvörðun bæjarstjórnar er kostnaður við daggæslu í heimahúsum í Fjarðabyggð niðurgreidd.

  

2.         Fyrir hverja er þjónustan og/eða hvaða skilyrði eru sett til þess að hægt sé að sækja að sækja um þjónustuna?

Þjónustan er fyrir foreldra sem þurfa daggæslu fyrir börn fram að grunnskólaaldri sem hafa lögheimili í Fjarðabyggð.

 

 

3.         Hvað kostar hún? Gjaldskrá.

Þjónusta dagforeldra er ekki skv. gjaldskrá en foreldrar sækja um niðurgreiðslu vegna daggæslu í heimahúsum:  Umsókn um niðurgreiðslu vegna daggæslu í heimahúsum.

4.         Hvar er þjónustan veitt, hvenær, símanúmer og netfang?

Þjónustan er veitt í heimahúsum hjá dagforeldurm sem hafa til þess tilskilin leyfi. Le


5.         Upplýsingar um umsóknafresti og móttöku umsókna.

Foreldrar hafa samband við dagforeldra.

 

6.         Hvaða gögnum þarf að skila?   

 Á ekki við

 

7.         Ferli umsóknar.  

Hér kemur lýsing á ferli umsóknar skref fyrir skref, m.ö.o. hvernig umsóknarferlið gengur fyrir sig:

·         Hvar er tekið við umsókn?

·         Hvernig/hvar fer fram mat á umsókn?

·         Hvernig/hvar er tekin ákvörðun um afgreiðslu umsóknar?[1]

·         Hvernig fær umsækjandi upplýsingar um niðurstöðuna? (er sent skriflegt svar?)

·         Hvernig fer framkvæmd þjónustunnar fram ef umsókn er samþykkt?

·         Hvað þarf borgarbúinn að gera í umsóknarferlinu og þegar kemur að framkvæmd þjónustunnar?

 

8.         Hvernig eru ábendingar og kvartanir meðhöndlaðar?

 

 

9.         Hver hefur yfirumsjón með þjónustunni?

  

 

Hjúkrunarheimili

Norðfjörður:   Hjúkrunardeild  á Fjórðungssjúkrahúsinu í Neskaupstað

Eskifjörður:  Í dvalar- og hjúkrunarheimilinu Hulduhlíð eru 17 hjúkrunarrými og sjö dvalarrými. Í Hulduhlíð fer fram félags- og tómstundastarf aldraðra og aðstaða er til líkamsþjálfunar. Eldri borgurum sem búa heima gefst kostur á að kaupa sér máltíðir í matsal Hulduhlíðar gegn vægu gjaldi.

Fáskrúðsfjörður:  Í  Hjúkrunarheimililinu Uppsölum eru 13 hjúkrunarrými og 12 dvalarrými. 


Ábendingar og fyrirspurnir

Þjónustuíbúðir

Í Breiðabliki, við Mýrargötu 18 í Neskaupstað eru 26 íbúðir fyrir aldraða, níu hjónaíbúðir og 17 einstaklingsíbúðir.  Í húsinu er setustofa, félags- og tómstundastarf fer þar fram.

Við Sunnugerði 7 á Reyðarfirði eru fimm félagslegar íbúðir fyrir aldraða.  

Í  Melgerði 13 á Reyðarfirði eru eignaríbúðir sérstaklega ætlaðar 55 ára og eldri.  

Sveitarfélagið leggur til félags- og tómstundaaðstöðu fyrir félag eldri borgara í Heiðarbæ í sama húsi.



Ábendingar og fyrirspurnir

Leiguíbúðir í eigu Fjarðabyggðar

 

Hvaða þjónustu er verið að lýsa?

 

 Útleigu á íbúðum í eigu Fjarðabyggðar.

 

Fyrir hverja er þjónustan og/eða hvaða skilyrði eru sett til þess að hægt sé að sækja um þjónustuna?

 

Þjónustan er fyrir alla.

 

Hvað kostar þjónustan?

 

Leiguverð er breytilegt eftir stærð og staðsetningu íbúða.

 

Hvar er þjónustan veitt, hvenær, símanúmer og netfang?

 

Þjónustan er veitt í öllum þéttbýliskjörnum Fjarðabyggðar. Umsóknareyðublöð um leiguhúsnæði  má nálgast hér og  á bókasöfnunum.  Hægt er að fá nánari upplýsingar í síma 470 9000 eða á mannvirkjasvid@fjardabyggd.is.

 

Upplýsingar um umsóknafresti og móttöku umsókna.

 

Umsóknum er hægt að skila á bókasöfnin eða í pósti á  Bæjarskrifstofu Fjaraðbyggðar, Hafnargötu 2, 730 Fjarðabyggð.

 

Hvaða gögnum þarf að skila?   

 

Útfylltu umsóknareyðublaði.

 

Ferli umsóknar  

 

Félagsþjónusta Fjarðabyggðar forgangsraðar umsóknum og eru íbúðir leigðar út um leið og íbúðir eru tómar og umsókn liggur fyrir.

 

Hvernig eru ábendingar og kvartanir meðhöndlaðar?

 

Senda má ábendingar og kvartanir á forstöðumann stjórnsýslu á netfangið fjardabyggd@fjardabyggd.is eða í síma 470 9000

 

Hver hefur yfirumsjón með þjónustunni?

 
Mannvirkjastjóri, mannvirkjastjori@fjardabyggd.is í síma 470 9000

Atvinnuleysisbætur

 

Hvaða þjónustu er lýst?

Umsókn um atvinnuleysisbætur

 

Fyrir hverja er þjónustan og/eða hvaða skilyrði eru sett til þess að hægt sé að sækja að sækja um þjónustuna?

Þjónustan er fyrir alla sem ekki hafa vinnu og vilja skrá sig sem atvinnuleitanda og  þiggja atvinnuleysisbætur á meðan á leit að vinnu stendur.

 

Hvað kostar þjónustan?

 Hún er gjaldfrjáls

 

Hvar er þjónustan veitt, hvenær, símanúmer og netfang?

Bæjarskrifstofa og bókasöfn Fjarðabyggðar eru einungis þjónustuaðilar vegna umsókna um atvinnuleysisbætur. Þjónustan er veitt á bókasöfnunum í Fjarðabyggð á opnunartíma þeirra og á bæjarskrifstofu Fjarðabyggðar Hafnargötu 2, 730 Fjarðabyggð í síma 470 9000  netfang fjardabyggd@fjardabyggd.is. Einnig eru veittar upplýsingar á skrifstofu Vinnumálastofnunar Austurlands, Miðási 1, 700 Egilsstöðum, í síma 512 8280 – netfang austurland@vmst.is

 

Upplýsingar um umsóknafresti og móttöku umsókna.

Frumriti umsóknar skal skilað til Vinnumálastofnunar eða á bókasöfnin í Fjarðabyggð. Einnig er hægt að skrá sig atvinnulausan á vef  Vinnumálastofnunar www.vmst.is  Liðið geta 3-6 vikur frá því umsókn berst og þangað til að hún er tekin fyrir hjá Greiðslustofu Vinnumálastofnunar.

 

Hvaða gögnum þarf að skila?   

·         Vottorði frá vinnuveitendum um vinnutíma og hlutfall vinnu vegna síðustu 36 mánaða.

·         Tilkynningu um tekjur - sjá eyðublað

·         Skattkorti

 

Tekið er á móti umsókn á bókasöfnunum og á bæjarskrifstofunni og farið yfir ýmis atriði sem þurfa að vera rétt útfyllt svo sem

·         Að merkt sé við að greitt verði í  lífeyrissjóð

·         Upplýsingar um stéttarfélagsgjald og viðbótaframlag í séreignasjóð (val )

·         Upplýsingar um leyninúmer

·         Bankaupplýsingar.

 

Ferli umsóknar.  

:Tekið er við umsókn á bókasöfnunum í Fjarðabyggð og hjá Vinnumálastofnun á Egilsstöðum.

·         Mat á umsóknum fer fram hjá Vinnumálastofnun Austurlands

·         Ákvörðun um afgreiðslu umsóknar er tekin hjá Vinnumálastofnun Austurlands.

·         Umsækjandi fær skriflegt svar frá Vinnumálastofnun Austurlands um niðurstöðu.

·         Framkvæmd þjónustunnar er öll hjá Vinnumálastofnun

·         Umsækjandi þar að skrá sig milli 20.- 25. hvers mánaðar.

 

Hvernig eru ábendingar og kvartanir meðhöndlaðar?

Öllum ábendingum og kvörtunum er vísað til Vinnumálastofnunar www.vmst.is

 

Hver hefur yfirumsjón með þjónustunni?

Vinnumálastofnun Austurlands.  Bæjarskrifstofa og bókasöfnin eru eingöngu þjónustuaðilar.
 

Húsaleigubætur

Hvaða þjónustu er lýst?

Húsaleigubótum 

Húsaleigubætur eru greiddar út 5. hvers mánaðar og fer upphæð fer eftir tekjum umsækjenda og leiguverði húsnæðis.  Sjá reiknivél  húsaleigubóta.  Einnig eru til sérstakar húsleigubætur sem eru ætlaðar einstaklingum og fjölskyldum sem geta ekki séð sér fyrir húsnæði á annan hátt, sökum lágra launa, þungrar greiðslubyrði eða annarra félagslegra aðstæðna.

 

Fyrir hverja er þjónustan og/eða hvaða skilyrði eru sett til þess að hægt sé að sækja að sækja um þjónustuna?

Leigjendur íbúðarhúsnæðis, með lögheimili og búsetu í Fjarðabyggð, eiga rétt á húsaleigubótum. Þó er skilyrði að húsaleigusamningur um viðkomandi húsnæði sé til sex mánaða hið minnsta og að samningi hafi verið þinglýst. Námsmenn eru undanþegnir skilyrði um lögheimili.

Réttur til húsaleigubóta er ekki fyrir hendi ef umsækjandi eða einhver sem í húsnæðinu býr er skyldmenni leigusala í beinan legg eða kjörbarn, fósturbarn, systkini, barn þeirra eða tengdaforeldri, ef umsækjandi eða einhver sem býr í húsnæðinu með honum nýtur réttar til vaxtabóta eða ef leigusamningur er til skemmri tíma en sex mánaða.



Hvað kostar hún?

Þjónustan er gjaldfrjáls

 

Hvar er þjónustan veitt, hvenær, símanúmer og netfang?

Umsóknareyðublað er hægt að nálgast á bókasöfnum í Fjarðabyggð.  Frekari upplýsingar og afgreiðsla umsókna er á höndum starfsmanns á fjármálasviði í síma 470 9000. Frekari upplýsingar má einnig fá á netfangi  husaleigubaetur@fjardabyggd.is  Sjá einnig  lög um húsaleigubætur .

 



Upplýsingar um umsóknafresti og móttöku umsókna.

Umsókn með öllum fylgiskjölum skal berast í síðasta lagi 16. dag fyrsta greiðslumánaðar, berist umsókn seinna verða húsaleigubætur ekki greiddar vegna þess mánaðar.  Tekið er á móti umsóknum í bókasöfnum Fjarðabyggðar og einnig er hægt að senda þær í pósti á skrifstofu Fjarðabyggðar, Hafnargötu 2, 730 Fjarðabyggð.  Endurnýja þarf umsókn um hver áramót og ef breytingar verða á tekjum eða leiguhúsnæði.

 

Hvaða gögnum þarf að skila?  

·         Útfyllt og undirritað umsóknareyðublað.

·         Frumriti þinglýsts leigusamnings (nema húsnæðið sem við á sé eign sveitarfélagsins),

·         Staðfestu afrit frá skattstjóra af skattframtölum þeirra sem lögheimili/aðsetur eiga í íbúðinni fyrir sl. ár,

·         Launaseðlum þeirra sem í íbúðinni búa fyrir sl. þrjá mánuði eða upplýsingar um reiknað endurgjald vegna sjálfstæðrar starfsemi,

·         Staðfesting skóla um nám umsækjanda og/eða barna umsækjenda sem eru 20 ára og eldri.

·         Ekki er tekið við umsókn nema öll ofangreind gögn fylgi.

 

Ferli umsóknar.  

·         Tekið er á móti umsóknum í bókasöfnum Fjarðabyggðar og einnig er hægt að senda þær í pósti á skrifstofu Fjarðabyggðar, Hafnargötu 2, 730 Fjarðabyggð.

·         Félagsþjónusta Fjarðabyggðar metur hverja umsókn útfrá uppreiknuðum eignamörkum vegna húsaleigubóta frá velferðarráðuneyti sem breytist 1. janúar ár hvert.

·         Umsóknir um húsaleigubætur eru teknar fyrir, eftir 16. dag hvers mánaðar af starfsmanni á vegum félagsþjónustu Fjarðabyggðar.

·         Húsaleigubætur eru greiddar út 5.  dag hvers mánaðar en umsækjendur eru látnir vita símleiðis ef þeir eiga ekki rétt á bótum.

·         Umsækjandi þarf að skila inn öllum fylgigögnum með umsókn –

Sé umsókn samþykkt ber að hafa í huga að sækja þarf um húsaleigubætur fyrir hvert almanaksár og gildir umsóknin til ársloka.

 

Hvernig eru ábendingar og kvartanir meðhöndlaðar?

Ábendingar og kvartanir skulu sendar félagsmálastjóra eða forstöðumanni stjórnsýslu á netfangið  fjardabyggd@fjardabyggd.is



Hver hefur yfirumsjón með þjónustunni?

Félagsmálastjóri hefur yfirumsjón með þjónustunni í síma 470 9000 og netfangi felagsthjonusta@fjardabyggd.is





Sérstakar húsaleigubætur

Hvaða þjónustu er lýst?

Sérstökum húsaleigubótum. Sjá reglur um sérstakar húsaleigubætur.

Fyrir hverja er þjónustan og/eða hvaða skilyrði eru sett til þess að hægt sé að sækja að sækja um þjónustuna?

Sérstakar húsaleigubætur eru fyrir þá sem ekki eru færir um að sjá sér og sínum fyrir húsnæði sökum lágra tekna, þungrar framfærslubyrði eða annarra félagslegra aðstæðna.

 

Hvað kostar þjónustan?

Upplýsingar um leiguverð íbúða sveitarfélagsins eru veittar á framkvæmdasviði í síma 470 9000.

 

Hvar er þjónustan veitt, hvenær, símanúmer og netfang?

Umsókn um sérstakar húsaleigubætur er hægt að nálgast á bókasöfnum Fjarðabyggðar. Fyrirspurnir má senda að senda á felagsthjonusta@fjardabyggd.is

 

Upplýsingar um umsóknafresti og móttöku umsókna.

Tekið er við umsóknum á  bókasöfnum Fjarðabyggðar en þær má senda í pósti; Fjölskyldusvið Fjarðabyggðar, Hafnargötu 2, 730 Fjarðabyggð.

 

Hvaða gögnum þarf að skila?   

-Staðfestu afriti af þremur síðustu skattframtölum umsækjanda og maka eða sambúðaraðila.
 
-Launaseðllum umsækjanda, og þeirra sem með honum búa og hafa náð 20 ára aldri, vegna síðustu  þriggja mánaða eða staðfesting á reiknuðu endurgjaldi vegna sjálfstæðrar starfsemi.

-Búsetuvottorði frá Þjóðaskrá.

-Síðasta greiðsluseðli allra lána umsækjanda.

-Núverandi leigusamningi og umsögn fyrrverandi/núverandi leigusala um greiðslu húsaleigu og umgengni leigjanda um hið leigða.

Ferli umsóknar.  

  • Tekið er við umsóknum á bókasöfnum Fjarðabyggðar en einnig er hægt að senda þær í pósti merkt:  Bæjarskrifstofur Fjarðabyggðar, Hafnargötu 2, 730 Fjarðabyggð.
  • Umsóknir eru teknar fyrir af starfsfólki fjölskyldusviðs á fundum reglulegum fundum. Við mat á umsóknum er tekið tillit til eigna og tekna umsækjenda. 
  • Umsækjendur fá skrifleg svör í kjölfar ákvarðana um umsóknir.
  • Sé umsókn samþykkt fær umsækjandi svarbréf í pósti þar sem hann er beðinn um að hafa samband við starfsfólk félagsþjónustu til að ganga frá leigusamningi.
  • Fái umsækjandi svar þess efnis að umsókn hafi verið móttekin, en sé á bið, ber að gæta þess að umsóknir þarf að endurnýja innan 6 mánaða frá umsóknardegi, til að umsókn haldist gild.
  • Þegar umsókn hefur verið samþykkt fær umsækjandi bréf þess efnis og skal hann í kjölfarið hafa samband við starfsfólk félagsþjónustu.
    Leigusamningar eru þá undirritaðir, en við undirritun greiðir leigjandi þriggja mánaða leigu sem tryggingu, auk mánaðarleigu fyrir fyrsta mánuð.

 

 

Hvernig eru ábendingar og kvartanir meðhöndlaðar?

Ábendingar og kvartanir skulu sendar á forstöðumann stjórnsýslu á netfangið fjardabyggd@fjardabyggd.is og í síma 470 9000.

 

Hver hefur yfirumsjón með þjónustunni?

Félagsmálastjóri yfirumsjón með þjónustunni. Sími 470 9000, felagsthjonusta@fjardabyggd.is

Fjárhagsaðstoð

Hvaða þjónustu er lýst?

 Fjárhagsaðstoð

 

 

Fyrir hverja er þjónustan og/eða hvaða skilyrði eru sett til þess að hægt sé að sækja að sækja um þjónustuna?

Rétt á fjárhagsaðstoð eiga þeir sem eiga lögheimili í Fjarðabyggð og hafa tekjur og eignir undir ákveðnum viðmiðunarmörkum. Aðstoðin getur verið í formi láns eða styrks.

Umsækjandi og maki/sambúðaraðili skulu kanna til þrautar rétt til annarra greiðslna áður en leitað er eftir fjárhagsaðstoð, þar með talið frá almannatryggingum, atvinnuleysistryggingum, lífeyrissjóðum og sjúkrasjóðum stéttarfélaga. Hafi umsækjandi sagt starfi sínu lausu án viðhlítandi skýringa eða hafnað starfsleitaráætlun, er heimilt að skerða fjárhagsaðstoðina um helming mánuðinn sem atvinnutilboðinu var hafnað og næsta mánuð á eftir.

Umsækjandi þarf að tilkynna um breytingar á tekjum og fjölskylduaðstæðum, en slíkar breytingar geta haft áhrif á rétt til fjárhagsaðstoðar. Fjárhagsaðstoð sem veitt er á grundvelli rangra eða villandi upplýsinga er alltaf endurkræf.

 

Hvað kostar þjónustan.

Þjónustan er gjaldfrjáls. Óski umsækjandi þess að fjárhagsaðstoð sé í formi láns er lánið vaxtalaust. Fjárhagsaðstoð til einstaklings getur verið allt að kr. 115.567 á mánuði eftir skatt og kr. 184.907 á mánuði til hjóna eða fólks í sambúð.  Aðstoðin er óháð barnafjölda, þar sem reiknað er með að barnabætur, meðlög og barnalífeyrir mæti kostnaði vegna barna.

 

Hvar er þjónustan veitt, hvenær, símanúmer og netfang?

Umsóknareyðublað er hægt að nálgast á bókasöfnum í Fjarðabyggð og á heimasíðu Fjarðabyggðar.  Afgreiðsla umsókna er hjá starfsfólki félagsþjónustu í síma 470-9000, 
netfang, felagsthjonusta@fjardabyggd.is

 

Upplýsingar um umsóknafresti og móttöku umsókna.

Umsókn gildir að öllu jöfnu frá þeim degi sem beiðni berst um aðstoð (eða umsókn er lögð fram). Dagsetja skal umsókn um fjárhagsaðstoð frá síðustu mánaðamótum og skoða jafnframt tekjur frá mánaðamótum á undan til að athuga hvort þær hafi verið hærri en viðmiðunartekjur. Framfærsla umsóknarmánaðar skerðist um þá fjárhæð. Athugið að umsókn sem er ekki fyllt út að fullu er ógild.

 

Hvaða gögnum þarf að skila?   

 

  • Staðfestu afriti af síðasta skattframtali.
  • Afritum af launaseðlum síðustu þriggja mánaða EÐA afritum af launaseðlum síðustu þriggja mánaða frá Tryggingastofnun ríkisins EÐA afritum af greiðsluseðlum atvinnuleysisbóta síðustu þriggja mánaða og afrit af stimpilkorti frá Vinnumiðlun
  •  Læknisvottorð ef við á.
  • Skattkort.
  • Staðfesting frá skóla ef umsækjandi er í námi.
  • Staðfesting skóla um námsárangur ef umsækjandi er í námi.

 

 Ferli umsóknar.  

·         Hvar er tekið við umsókn?
Tekið er við umsóknum á bókasöfnum Fjarðabyggðar. Einnig er hægt að póstsenda umsóknir á
Skrifstofur Fjarðabyggðar, Hafnargötu 2, 730 Fjarðabyggð

·         Hvernig/hvar fer fram mat á umsókn?
Mat á umsóknum fer fram á starfsfundum félagsþjónustu og er umsókn metin með tilliti til fjárhags- og félagslegra upplýsinga sem fram koma á umsóknum.  Allar tekjur einstaklings/maka, í þeim mánuði sem sótt er um og mánuðinn á undan, aðrar en greiðslur vegna barna og húsaleigubætur/vaxtabætur, koma til frádráttar við ákvörðun um upphæð fjárhagsaðstoðar. Með tekjum er hér átt við allar tekjur einstaklings/maka sem ekki eru sérstaklega til framfærslu barna, þ.e. atvinnutekjur, allar tekjur frá Tryggingastofnun ríkisins, greiðslur úr lífeyrissjóðum, atvinnuleysisbætur, leigutekjur o.s.frv.  Eigi umsækjandi rétt til atvinnuleysisbóta, skal reikna atvinnuleysisbætur honum til tekna, hvort sem hann hefur stimplað sig eða ekki, nema framvísað sé læknisvottorði.

·         Hvernig/hvar er tekin ákvörðun um afgreiðslu umsóknar?
Umsóknir eru teknar fyrir af starfsfólki félagsþjónustu Fjarðabyggðar annan hvern miðvikudag.

·         Hvernig fær umsækjandi upplýsingar um niðurstöðuna?
Öllum umsóknum er svarað skriflega í kjölfar starfsfunda.

·         Hvernig fer framkvæmd þjónustunnar fram ef umsókn er samþykkt?
Sé umsókn samþykkt hefur starfsfólk félagsþjónustu samband við umsækjanda og greiðir þá upphæð sem umsækjandi á rétt á inn á reikning á hans nafni næstkomandi mánaðarmót.

·         Hvað þarf umsækjandi að gera í umsóknarferlinu og þegar kemur að framkvæmd þjónustunnar?
Umsækjandi skila inn umsókn sem er að fullu útfyllt og skila öllum fylgigögnum. Sé sótt um fjárhagsaðstoð til fleiri en eins mánaðar þarf viðkomandi að hafa samband við starfsmenn félagsþjónustu fyrir 25. hvers mánaðar til að gera grein fyrir þörf sinni á áframhaldandi aðstoð.  Þess ber að geta að ákvarðanir um aðstoð nær að jafnaði ekki yfir lengra tímabil en 3 mánuði og aldrei yfir lengra tímabil en 6 mánuði í senn.

 

Hvernig eru ábendingar og kvartanir meðhöndlaðar?

Allar ábendingar og kvartanir skulu sendar á forstöðumann stjórnsýslu á netfangið fjardabyggd@fjardabyggd.is og í síma 470-9000.

 

Hver hefur yfirumsjón með þjónustunni?

Félagsmálastjóri hefur yfirumsjón með þjónustunni – felagsthjonusta@fjardabyggd.is og í síma 470 9000.

Heimaþjónusta

 

Hvaða þjónustu er verið að lýsa?

Félagslegri heimaþjónustu.

 

Fyrir hverja er þjónustan og/eða hvaða skilyrði eru sett til þess að hægt sé að sækja að sækja um þjónustuna?

Félagsleg heimaþjónusta er fyrir þá sem hafa lögheimili í Fjarðabyggð, búa í heimahúsum og geta ekki séð hjálpalaust um heimilishald og persónulega umhirðu vegna skertrar getu, fjölskylduaðstæðna, veikinda, barnsburðar eða fötlunar. Þörf er metin í hverju einstöku tilviki.

 

Hvað kostar þjónustan?  

Notandi greiðir  hverja vinnustund skv. gjaldskrá. Undanþegnir gjaldskyldu eru þeir notendur sem einungis hafa tekjur frá TR .   Ákvörðun um lækkun eða niðurfellingu greiðslu vegna heimaþjónustu er tekin af félagsmálanefnd.

 

 

Hvar er þjónustan veitt, hvenær, símanúmer og netfang?

Umsóknareyðublað má að nálgast á bókasöfnum í Fjarðabyggð, Fjórðungssjúkrahúsinu í Neskaupstað og á heilsugæslustöðvum HSA í Fjarðabyggð. Afgreiðsla umsóknar er hjá deildarstjóra heimaþjónustu í síma 470-9000 eða netfang heimathjonusta@fjardabyggd.is    

 

 

Upplýsingar um umsóknafresti og móttöku umsókna.

Hægt er að skila umsókn um heimaþjónustu í bókasöfnunum Fjarðabyggðar eða  senda þær í pósti til Fjarðabyggðar, Hafnagötu 2, 730 Fjarðabyggð.

 

Hvaða gögnum þarf að skila?  

Umsókn  skal fyllt út og undirrituð.  Deildarstjóri heimaþjónustu getur óskað eftir læknisvottorði ef ástæða þykir til.

 

Ferli umsóknar  

·         Umsóknum er hægt að skila inn  til bæjarskrifstofu á Hafnargötu 2, Reyðarfirði, í þjónustugáttir á bókasöfnum í Fjarðabyggð og á heilsugæslustöðvum HSA í Fjarðabyggð.

 

·         Deildarstjóri heimaþjónustu aflar upplýsinga um getu og aðstæður umsækjanda og fer í  vitjun á heimili til umsækjanda og metur aðstæður.

 

·         Deildarstjóri heimaþjónustu tekur ákvörðun um hvort veita eigi heimaþjónustu. Þjónustan er margbreytileg og sniðin að þörfum hvers og eins. Starfsfólk í heimaþjónustu aðstoðar m.a. við almenn heimilisþrif, þvotta og sinnir reglulegu innliti. Notendur geta einnig fengið aðstoð við innkaup. (Starfsfólk heimaþjónustu leitast við að mæta persónulegum þörfum einstaklinganna og eru félagslegur stuðningur, hvatning og samvera mikilvægir þættir í starfinu.)

Öllum umsóknum er svarað af deildarstjóra heimaþjónustu

 

 

Hvernig eru ábendingar og kvartanir meðhöndlaðar?

Kvörtunum og ábendingum má koma á framfæri  við félagsmálastjóra og forstöðumann stjórnsýslu fjardabyggd@fjardabyggd.is og í síma 470  9000 . Einnig er hægt að afhenda skriflegar kvartanir í á bæjarskrifstofur Fjarðabyggðar, Hafnargötu 2, Reyðarfirði eða í þjónustugáttir í bóksöfnunum.

 

 

Hver hefur yfirumsjón með þjónustunni?

Deildarstjóri heimaþjónustu hefur umsjón með þjónustunni í síma 470 9000 eða í gegnum netfangið heimathjonusta@fjardabyggd.is Yfirmaður deildarstjóra er félagsmálastjóri.