Spurt og svarað um barnavernd:



Barnaverndartilkynningar

 

Hvaða þjónustu er lýst?

Tilkynningum um óviðunandi aðstæður barna til barnaverndarnefndar.

Fyrir hverja er þjónustan og/eða hvaða skilyrði eru sett til þess að hægt sé að sækja um þjónustuna?

Hverjum þeim sem hefur ástæðu til að ætla að barn búi við óviðunandi uppeldisaðstæður, verði fyrir áreitni eða ofbeldi eða stofni heilsu sinni og þroska í alvarlega hættu er skylt að tilkynna það barnaverndarnefnd. Hverjum þeim sem stöðu sinnar og starfa vegna hefur afskipti af málefnum barna og verður í starfi sínu var við að barn búi við óviðunandi uppeldisskilyrði, verði fyrir áreitni eða ofbeldi eða að barn stofni heilsu sinni og þroska í alvarlega hættu er skylt að gera barnaverndarnefnd viðvart. Ef lögregla verður þess vör að barn búi við óviðunandi uppeldisskilyrði, verði fyrir áreitni eða ofbeldi eða að barn stofni heilsu sinni og þroska í alvarlega hættu skal hún tilkynna barnaverndarnefnd um það.   Sjá nánar í barnaverndarlögum nr. 80/2002

Hvað kostar þjónustan? 

Þjónustan er gjaldfrjáls.

Hvar er þjónustan veitt, hvenær, símanúmer og netfang?

Tilkynningareyðublöð liggja frammi í bókasöfnum Fjarðabyggðar.  Hægt er að fá nánari upplýsingar hjá félagsþjónustu Fjarðabyggðar í síma 470 9000 og á netfanginu felagstjonsta@fjardabyggd.is

Upplýsingar um  móttöku tilkynninga.

Tilkynningum má skila á opnunartímum bókasafna í Fjarðabyggð í lokuðum umslögum – merktum trúnaðarmál til félagsþjónustusviðs eða senda í pósti merkt trúnaðarmál á félagsþjónustusvið Fjarðabyggðar, Hafnargötu 2, 730 Fjarðabyggð.

Hvaða gögnum þarf að skila?

Tilkynning til barnaverndar skal vera að fullu útfyllt og er mikilvægt að tilkynnandi skili nafni og símanúmeri til barnaverndarnefndar. Óski tilkynnandi nafnleyndar gagnvart öðrum en barnaverndarnefnd er það virt nema sérstakar ástæður mæli gegn því.

Ferli barnaverndartilkynningar.

Hvar er tekið við tilkynningum?
Tekið er við tilkynningum á bókasöfnum Fjarðabyggðar og hjá félagsþjónustusviði, Hafnargötu 2, 730 Fjarðabyggð. Hvernig fær tilkynnandi upplýsingar um niðurstöðuna? Tilkynnanda berast ekki  upplýsingar um framvindu máls sem er á ábyrgð barnaverndarnefndar í kjölfar tilkynningar.  Starfsfólk barnaverndar er bundið þagnareiði sem aldrei er rofinn.

Hvernig fer framkvæmd þjónustunnar fram ?

Barnaverndarstarfsfólk fer yfir allar tilkynningar og tekur afstöðu til þess innan 7 daga  hvort ástæða sé til að hefja könnun á málinu. Markmið könnunar máls er að afla nauðsynlegra upplýsinga um aðstæður barns og meta þörf fyrir úrræði samkvæmt ákvæðum barnaverndarlaga. Þegar mál hefur verið nægjanlega kannað að mati barnaverndarnefndar skal nefndin taka saman greinargerð þar sem lýst er niðurstöðum könnunar, tiltekið er hverra úrbóta sé þörf og settar eru fram tillögur að heppilegum úrræðum ef því er að skipta. Hvað þarf tilkynnandi að gera í umsóknarferlinu og þegar kemur að framkvæmd þjónustunnar?
Segja satt og rétt frá og svara spurningum ef barnaverndarnefnd leitar frekari upplýsinga vegna tilkynningarinnar.

Hver hefur yfirumsjón með þjónustunni?

Félagsmálastjóri hefur yfirumsjón með þjónustunni,  felagsthjonusta@fjardabyggd.is sími 470 9000