Hvaða þjónustu er lýst?
Sérstökum húsaleigubótum. Sjá reglur um sérstakar húsaleigubætur.
Fyrir hverja er þjónustan og/eða hvaða skilyrði eru sett til þess að hægt sé að sækja að sækja um þjónustuna?
Sérstakar húsaleigubætur eru fyrir þá sem ekki eru færir um að sjá sér og sínum fyrir húsnæði sökum lágra tekna, þungrar framfærslubyrði eða annarra félagslegra aðstæðna.
Hvað kostar þjónustan?
Upplýsingar um leiguverð íbúða sveitarfélagsins eru veittar á framkvæmdasviði í síma 470 9000.
Hvar er þjónustan veitt, hvenær, símanúmer og netfang?
Umsókn um sérstakar húsaleigubætur er hægt að nálgast á bókasöfnum Fjarðabyggðar. Fyrirspurnir má senda að senda á felagsthjonusta@fjardabyggd.is
Upplýsingar um umsóknafresti og móttöku umsókna.
Tekið er við umsóknum á bókasöfnum Fjarðabyggðar en þær má senda í pósti; Fjölskyldusvið Fjarðabyggðar, Hafnargötu 2, 730 Fjarðabyggð.
Hvaða gögnum þarf að skila?
-Staðfestu afriti af þremur síðustu skattframtölum umsækjanda og maka eða sambúðaraðila.
-Launaseðllum umsækjanda, og þeirra sem með honum búa og hafa náð 20 ára aldri, vegna síðustu þriggja mánaða eða staðfesting á reiknuðu endurgjaldi vegna sjálfstæðrar starfsemi.
-Búsetuvottorði frá Þjóðaskrá.
-Síðasta greiðsluseðli allra lána umsækjanda.
-Núverandi leigusamningi og umsögn fyrrverandi/núverandi leigusala um greiðslu húsaleigu og umgengni leigjanda um hið leigða.
Ferli umsóknar.
- Tekið er við umsóknum á bókasöfnum Fjarðabyggðar en einnig er hægt að senda þær í pósti merkt: Bæjarskrifstofur Fjarðabyggðar, Hafnargötu 2, 730 Fjarðabyggð.
- Umsóknir eru teknar fyrir af starfsfólki fjölskyldusviðs á fundum reglulegum fundum. Við mat á umsóknum er tekið tillit til eigna og tekna umsækjenda.
- Umsækjendur fá skrifleg svör í kjölfar ákvarðana um umsóknir.
- Sé umsókn samþykkt fær umsækjandi svarbréf í pósti þar sem hann er beðinn um að hafa samband við starfsfólk félagsþjónustu til að ganga frá leigusamningi.
- Fái umsækjandi svar þess efnis að umsókn hafi verið móttekin, en sé á bið, ber að gæta þess að umsóknir þarf að endurnýja innan 6 mánaða frá umsóknardegi, til að umsókn haldist gild.
- Þegar umsókn hefur verið samþykkt fær umsækjandi bréf þess efnis og skal hann í kjölfarið hafa samband við starfsfólk félagsþjónustu.
Leigusamningar eru þá undirritaðir, en við undirritun greiðir leigjandi þriggja mánaða leigu sem tryggingu, auk mánaðarleigu fyrir fyrsta mánuð.
Hvernig eru ábendingar og kvartanir meðhöndlaðar?
Ábendingar og kvartanir skulu sendar á forstöðumann stjórnsýslu á netfangið fjardabyggd@fjardabyggd.is og í síma 470 9000.
Hver hefur yfirumsjón með þjónustunni?
Félagsmálastjóri yfirumsjón með þjónustunni. Sími 470 9000, felagsthjonusta@fjardabyggd.is