Hvaða þjónustu er verið að lýsa?
Félagslegri heimaþjónustu.
Fyrir hverja er þjónustan og/eða hvaða skilyrði eru sett til þess að hægt sé að sækja að sækja um þjónustuna?
Félagsleg heimaþjónusta er fyrir þá sem hafa lögheimili í Fjarðabyggð, búa í heimahúsum og geta ekki séð hjálpalaust um heimilishald og persónulega umhirðu vegna skertrar getu, fjölskylduaðstæðna, veikinda, barnsburðar eða fötlunar. Þörf er metin í hverju einstöku tilviki.
Hvað kostar þjónustan?
Notandi greiðir hverja vinnustund skv. gjaldskrá. Undanþegnir gjaldskyldu eru þeir notendur sem einungis hafa tekjur frá TR . Ákvörðun um lækkun eða niðurfellingu greiðslu vegna heimaþjónustu er tekin af félagsmálanefnd.
Hvar er þjónustan veitt, hvenær, símanúmer og netfang?
Umsóknareyðublað má að nálgast á bókasöfnum í Fjarðabyggð, Fjórðungssjúkrahúsinu í Neskaupstað og á heilsugæslustöðvum HSA í Fjarðabyggð. Afgreiðsla umsóknar er hjá deildarstjóra heimaþjónustu í síma 470-9000 eða netfang heimathjonusta@fjardabyggd.is
Upplýsingar um umsóknafresti og móttöku umsókna.
Hægt er að skila umsókn um heimaþjónustu í bókasöfnunum Fjarðabyggðar eða senda þær í pósti til Fjarðabyggðar, Hafnagötu 2, 730 Fjarðabyggð.
Hvaða gögnum þarf að skila?
Umsókn skal fyllt út og undirrituð. Deildarstjóri heimaþjónustu getur óskað eftir læknisvottorði ef ástæða þykir til.
Ferli umsóknar
· Umsóknum er hægt að skila inn til bæjarskrifstofu á Hafnargötu 2, Reyðarfirði, í þjónustugáttir á bókasöfnum í Fjarðabyggð og á heilsugæslustöðvum HSA í Fjarðabyggð.
· Deildarstjóri heimaþjónustu aflar upplýsinga um getu og aðstæður umsækjanda og fer í vitjun á heimili til umsækjanda og metur aðstæður.
· Deildarstjóri heimaþjónustu tekur ákvörðun um hvort veita eigi heimaþjónustu. Þjónustan er margbreytileg og sniðin að þörfum hvers og eins. Starfsfólk í heimaþjónustu aðstoðar m.a. við almenn heimilisþrif, þvotta og sinnir reglulegu innliti. Notendur geta einnig fengið aðstoð við innkaup. (Starfsfólk heimaþjónustu leitast við að mæta persónulegum þörfum einstaklinganna og eru félagslegur stuðningur, hvatning og samvera mikilvægir þættir í starfinu.)
Öllum umsóknum er svarað af deildarstjóra heimaþjónustu
Hvernig eru ábendingar og kvartanir meðhöndlaðar?
Kvörtunum og ábendingum má koma á framfæri við félagsmálastjóra og forstöðumann stjórnsýslu fjardabyggd@fjardabyggd.is og í síma 470 9000 . Einnig er hægt að afhenda skriflegar kvartanir í á bæjarskrifstofur Fjarðabyggðar, Hafnargötu 2, Reyðarfirði eða í þjónustugáttir í bóksöfnunum.
Hver hefur yfirumsjón með þjónustunni?
Deildarstjóri heimaþjónustu hefur umsjón með þjónustunni í síma 470 9000 eða í gegnum netfangið heimathjonusta@fjardabyggd.is Yfirmaður deildarstjóra er félagsmálastjóri.