Fyrir hverja er félagsleg liðveisla og hvaða skilyrði eru sett til þess að hægt sé að sækja að sækja um þjónustuna?
Félagsleg liðveisla er fyrir fatlaða einstaklinga sem þurfa persónulegan stuðning og aðstoð til þess að rjúfa félagslega einangrun. Forsenda þess að geta sótt um félagslega liðveislu er að umsækjandi eigi lögheimili í Fjarðabyggð eða Breiðdalshreppi. Veita má félagslega liðveislu fötluðum einstaklingum á aldrinum 5 til 67 ára. Einnig má veita félagslega liðveislu börnum á aldrinum 5 til 18 ára sem hafa ADHD-greiningu eða eru langveik og uppfylla ofangreind skilyrði um félaglega einangrun.
Að öllu jöfnu er félagsleg liðveisla ekki veitt þeim einstaklingum sem njóta sólarhringsþjónustu
Þjónusta er háð fjárhagsáætlun hverju sinni. Hún er tímabundin og er tímafjöldi og lengd samningstíma háð mati hverju sinni.
Hvað kostar þjónustan?
Þjónustan er notendum að kostnaðarlausu. Hins vegar er þjónustan tímabundin og tímafjöldinn og lengd samningstímans háð mati í hverju tilfelli.
Hvar er þjónustan veitt, hvenær, símanúmer og netfang?
Umsóknareyðublað er hægt að nálgast á bókasöfnum í Fjarðabyggð og á heimasíðu Fjarðabyggðar. Afgreiðsla umsókna er hjá starfsfólki félagsþjónustu í síma 470-9000, og á netfangið felagsthjonusta@fjardabyggd.is .
Upplýsingar um umsóknafresti og móttöku umsókna.
Tekið er á móti umsóknum alla virka daga á bókasöfnum Fjarðabyggðar og í afgreiðslu skrifstofu Fjarðabyggðar að Hafnargötu 2, Reyðarfirði.
Hvaða gögnum þarf að skila?
Sótt er um liðveislu á þar til gerðum eyðublöðum. Hægt er að óska eftir læknisvottorði eða greinargerð frá fagaðila ef þurfa þykir.
Ferli umsóknar.
· Hvar er tekið við umsókn?
Tekið er við umsóknum í þjónustugáttum á bókasöfnum Fjarðabyggðar. Einnig er hægt að póstsenda umsóknir á skrifstofu Fjarðabyggðar, Hafnargötu 2, 730 Fjarðabyggð.
· Hvernig/hvar fer fram mat á umsókn?
Umsóknir eru teknar fyrir á meðferðarfundi ráðgjafar- og búsetuteymis fjölskyldusviðs Fjarðabyggðar. Við matið er tekið sérstakt tillit til sjónarmiða umsækjanda, færni hans til að sinna athöfnum daglegs lífs, félagslegrar stöðu og virkni og fjölskylduaðstæðna.
· Hvernig/hvar er tekin ákvörðun um afgreiðslu umsóknar?
Ákvörðun um afgreiðslu umsóknar er tekin á meðferðarfundi ráðgjafar- og búsetuteymis, í sérstökum tilfellum getur þurft að vísa umsókninni til félagsmálanefndar Fjarðabyggðar.
· Hvernig fær umsækjandi upplýsingar um niðurstöðuna?
Umsækjandi fær bréf um niðurstöðu í pósti.
· Hvernig fer framkvæmd þjónustunnar fram ef umsókn er samþykkt?
Framkvæmd þjónustunnar er samkomulagsatriði milli fjölskyldusviðs Fjarðabyggðar, notanda (eða forráðamanna hans) og liðveitanda.
· · Hvað þarf umsækjandi að gera í umsóknarferlinu og þegar kemur að framkvæmd þjónustunnar?
Umsækjandi skila inn umsókn sem er að fullu útfyllt og skila öllum fylgigögnum
Hvernig eru ábendingar og kvartanir meðhöndlaðar?
Allar ábendingar og kvartanir skulu sendar á forstöðumann stjórnsýslu á netfangið fjardabyggd@fjardabyggd.is eða berast í síma 470 9000.
Hver hefur yfirumsjón með þjónustunni?
Félagsmálastjóri hefur yfirumsjón með þjónustunni. Hægt er að hafa samband í síma 470 9000 eða á netfangið felagsthjonusta@fjardabyggd.is.