Spurt og svarað um húsnæðismál:



Hjúkrunarheimili

Norðfjörður:   Hjúkrunardeild  á Fjórðungssjúkrahúsinu í Neskaupstað

Eskifjörður:  Í dvalar- og hjúkrunarheimilinu Hulduhlíð eru 17 hjúkrunarrými og sjö dvalarrými. Í Hulduhlíð fer fram félags- og tómstundastarf aldraðra og aðstaða er til líkamsþjálfunar. Eldri borgurum sem búa heima gefst kostur á að kaupa sér máltíðir í matsal Hulduhlíðar gegn vægu gjaldi.

Fáskrúðsfjörður:  Í  Hjúkrunarheimililinu Uppsölum eru 13 hjúkrunarrými og 12 dvalarrými. 


Ábendingar og fyrirspurnir

Þjónustuíbúðir

Í Breiðabliki, við Mýrargötu 18 í Neskaupstað eru 26 íbúðir fyrir aldraða, níu hjónaíbúðir og 17 einstaklingsíbúðir.  Í húsinu er setustofa, félags- og tómstundastarf fer þar fram.

Við Sunnugerði 7 á Reyðarfirði eru fimm félagslegar íbúðir fyrir aldraða.  

Í  Melgerði 13 á Reyðarfirði eru eignaríbúðir sérstaklega ætlaðar 55 ára og eldri.  

Sveitarfélagið leggur til félags- og tómstundaaðstöðu fyrir félag eldri borgara í Heiðarbæ í sama húsi.



Ábendingar og fyrirspurnir

Leiguíbúðir í eigu Fjarðabyggðar

 

Hvaða þjónustu er verið að lýsa?

 

 Útleigu á íbúðum í eigu Fjarðabyggðar.

 

Fyrir hverja er þjónustan og/eða hvaða skilyrði eru sett til þess að hægt sé að sækja um þjónustuna?

 

Þjónustan er fyrir alla.

 

Hvað kostar þjónustan?

 

Leiguverð er breytilegt eftir stærð og staðsetningu íbúða.

 

Hvar er þjónustan veitt, hvenær, símanúmer og netfang?

 

Þjónustan er veitt í öllum þéttbýliskjörnum Fjarðabyggðar. Umsóknareyðublöð um leiguhúsnæði  má nálgast hér og  á bókasöfnunum.  Hægt er að fá nánari upplýsingar í síma 470 9000 eða á mannvirkjasvid@fjardabyggd.is.

 

Upplýsingar um umsóknafresti og móttöku umsókna.

 

Umsóknum er hægt að skila á bókasöfnin eða í pósti á  Bæjarskrifstofu Fjaraðbyggðar, Hafnargötu 2, 730 Fjarðabyggð.

 

Hvaða gögnum þarf að skila?   

 

Útfylltu umsóknareyðublaði.

 

Ferli umsóknar  

 

Félagsþjónusta Fjarðabyggðar forgangsraðar umsóknum og eru íbúðir leigðar út um leið og íbúðir eru tómar og umsókn liggur fyrir.

 

Hvernig eru ábendingar og kvartanir meðhöndlaðar?

 

Senda má ábendingar og kvartanir á forstöðumann stjórnsýslu á netfangið fjardabyggd@fjardabyggd.is eða í síma 470 9000

 

Hver hefur yfirumsjón með þjónustunni?

 
Mannvirkjastjóri, mannvirkjastjori@fjardabyggd.is í síma 470 9000

Viðhald á mannvirkjum Fjarðabyggðar

 Hvaða þjónustu er verið að lýsa?

 

 Viðhaldi á mannvirkjum Fjarðabyggðar.

 

 Fyrir hverja er þjónustan og/eða hvaða skilyrði eru sett til þess að hægt sé að sækja að sækja um þjónustuna?

 

Þjónustan er fyrir forstöðumenn stofnana Fjarðabyggðar og fyrir alla íbúa Fjarðabyggðar vegna gatna og gangstétta.

 

Hvað kostar þjónustan?

 

Ekki er greitt sérstaklega fyrir þjónustuna en hún er greidd af útsvari til bæjarsjóðs.

 

Hvar er þjónustan veitt, hvenær, símanúmer og netfang?

 

Þjónustan er veitt í öllum þéttbýliskjörnum Fjarðabyggðar.   Hægt er að fá nánari upplýsingar eða koma athugasemdum vegna fasteigna á framfæri í síma 470-9000 eða á mannvirkjasvid@fjardabyggd.is.

Hægt er að fá nánari upplýsingar eða koma athugasemdum vegna gatna og gangstétta í síma 470-9040 eða thjonusta@fjardabyggd.is.

 

Hvernig eru ábendingar og kvartanir meðhöndlaðar?

Ábendingar og kvartanir vegna gatna og gangstétta eru skráðar  hjá þjónustufulltrúa tjonusta@fjardabyggd.is , sími 470 9040 og  þær eru teknar fyrir á verkstjórafundum. Öllum ábendingum og kvörtunum verður svarað.

Kvartanir og ábendingar vegna viðhalds mannvikja Fjarðabyggðar berist mannvirkjastjóra, mannvirkjastjori@fjardabyggd.is eða til forstöðumanns stjórnsýslu  fjardabyggd@fjardabyggd.is í síma 470 9000

 

 

Hver hefur yfirumsjón með þjónustunni?

 
Mannvirkjastjóri,  mannvirkjastjori@fjardabyggd.is, sími 470 9000.

Húsaleigubætur

Hvaða þjónustu er lýst?

Húsaleigubótum 

Húsaleigubætur eru greiddar út 5. hvers mánaðar og fer upphæð fer eftir tekjum umsækjenda og leiguverði húsnæðis.  Sjá reiknivél  húsaleigubóta.  Einnig eru til sérstakar húsleigubætur sem eru ætlaðar einstaklingum og fjölskyldum sem geta ekki séð sér fyrir húsnæði á annan hátt, sökum lágra launa, þungrar greiðslubyrði eða annarra félagslegra aðstæðna.

 

Fyrir hverja er þjónustan og/eða hvaða skilyrði eru sett til þess að hægt sé að sækja að sækja um þjónustuna?

Leigjendur íbúðarhúsnæðis, með lögheimili og búsetu í Fjarðabyggð, eiga rétt á húsaleigubótum. Þó er skilyrði að húsaleigusamningur um viðkomandi húsnæði sé til sex mánaða hið minnsta og að samningi hafi verið þinglýst. Námsmenn eru undanþegnir skilyrði um lögheimili.

Réttur til húsaleigubóta er ekki fyrir hendi ef umsækjandi eða einhver sem í húsnæðinu býr er skyldmenni leigusala í beinan legg eða kjörbarn, fósturbarn, systkini, barn þeirra eða tengdaforeldri, ef umsækjandi eða einhver sem býr í húsnæðinu með honum nýtur réttar til vaxtabóta eða ef leigusamningur er til skemmri tíma en sex mánaða.



Hvað kostar hún?

Þjónustan er gjaldfrjáls

 

Hvar er þjónustan veitt, hvenær, símanúmer og netfang?

Umsóknareyðublað er hægt að nálgast á bókasöfnum í Fjarðabyggð.  Frekari upplýsingar og afgreiðsla umsókna er á höndum starfsmanns á fjármálasviði í síma 470 9000. Frekari upplýsingar má einnig fá á netfangi  husaleigubaetur@fjardabyggd.is  Sjá einnig  lög um húsaleigubætur .

 



Upplýsingar um umsóknafresti og móttöku umsókna.

Umsókn með öllum fylgiskjölum skal berast í síðasta lagi 16. dag fyrsta greiðslumánaðar, berist umsókn seinna verða húsaleigubætur ekki greiddar vegna þess mánaðar.  Tekið er á móti umsóknum í bókasöfnum Fjarðabyggðar og einnig er hægt að senda þær í pósti á skrifstofu Fjarðabyggðar, Hafnargötu 2, 730 Fjarðabyggð.  Endurnýja þarf umsókn um hver áramót og ef breytingar verða á tekjum eða leiguhúsnæði.

 

Hvaða gögnum þarf að skila?  

·         Útfyllt og undirritað umsóknareyðublað.

·         Frumriti þinglýsts leigusamnings (nema húsnæðið sem við á sé eign sveitarfélagsins),

·         Staðfestu afrit frá skattstjóra af skattframtölum þeirra sem lögheimili/aðsetur eiga í íbúðinni fyrir sl. ár,

·         Launaseðlum þeirra sem í íbúðinni búa fyrir sl. þrjá mánuði eða upplýsingar um reiknað endurgjald vegna sjálfstæðrar starfsemi,

·         Staðfesting skóla um nám umsækjanda og/eða barna umsækjenda sem eru 20 ára og eldri.

·         Ekki er tekið við umsókn nema öll ofangreind gögn fylgi.

 

Ferli umsóknar.  

·         Tekið er á móti umsóknum í bókasöfnum Fjarðabyggðar og einnig er hægt að senda þær í pósti á skrifstofu Fjarðabyggðar, Hafnargötu 2, 730 Fjarðabyggð.

·         Félagsþjónusta Fjarðabyggðar metur hverja umsókn útfrá uppreiknuðum eignamörkum vegna húsaleigubóta frá velferðarráðuneyti sem breytist 1. janúar ár hvert.

·         Umsóknir um húsaleigubætur eru teknar fyrir, eftir 16. dag hvers mánaðar af starfsmanni á vegum félagsþjónustu Fjarðabyggðar.

·         Húsaleigubætur eru greiddar út 5.  dag hvers mánaðar en umsækjendur eru látnir vita símleiðis ef þeir eiga ekki rétt á bótum.

·         Umsækjandi þarf að skila inn öllum fylgigögnum með umsókn –

Sé umsókn samþykkt ber að hafa í huga að sækja þarf um húsaleigubætur fyrir hvert almanaksár og gildir umsóknin til ársloka.

 

Hvernig eru ábendingar og kvartanir meðhöndlaðar?

Ábendingar og kvartanir skulu sendar félagsmálastjóra eða forstöðumanni stjórnsýslu á netfangið  fjardabyggd@fjardabyggd.is



Hver hefur yfirumsjón með þjónustunni?

Félagsmálastjóri hefur yfirumsjón með þjónustunni í síma 470 9000 og netfangi felagsthjonusta@fjardabyggd.is





Niðurrif húsa

 

Hvaða þjónustu er verið að lýsa?

Niðurrif húsa er byggingarleyfisskyld framkvæmd og er hluti af byggingarleyfisumsókn.

 

Fyrir hverja er þjónustan og/eða hvaða skilyrði eru sett til þess að hægt sé að sækja að sækja um þjónustuna?

Umsækjandi þarf að vera þinglýstur eigandi eignarinnar.

 

Hvað kostar þjónustan

Gjald er innheimt við útgáfu leyfis. Gjaldskrá er í samþykkt um gatnagerðagjald, byggingarleyfisgjald, og stofngjald holræsa og vatnsveitu í Fjarðabyggð.

Hvar er þjónustan veitt, hvenær, símanúmer og netfang?

Beiðni um leyfi til niðurrifs á húsi er send til byggingarfulltrúa á netfangið  byggingarfulltrui@fjardabyggd.is eða í síma 470 9000.  Hægt er að fá eyðublöð á bókasöfnunum í Fjarðabyggð.

Upplýsingar um umsóknafresti og móttöku umsókna.

Umsóknir eru sendar byggingarfulltrúa á netfangið byggingarfulltrui@fjardabyggd.is á Hafnargötu 2, 730 Fjarðabyggð eða afhentar á bókasöfnum Fjarðabyggðar.

 

Hvaða gögnum þarf að skila?  

Sótt er um niðurrif húsa á eyðublaði fyrir „byggingarleyfi“ sem hægt er að nálgast á heimasíðu Fjarðabyggðar og á bókasöfnunum.  Sjá einnig gátlista með upplýsingum um viðbótargögn (sem er í vinnslu)

 

Ferli umsóknar  

1. Umsækjandi sendir inn umsókn.

2. Byggingarfulltrúi tekur málið til meðferðar innan 14 daga.

3. Málið fer fyrir umhverfis- og skipulagsnefnd sem fundar einu sinni í mánuði.

4. Umsækjandi fær sent svarbréf.

Hvernig eru ábendingar og kvartanir meðhöndlaðar?

Ábendingum og kvörtunum má koma til umhverfisstjóra - umhverfisstjori@fjardabyggd.is og forstöðumanns stjórnsýslu fjardabyggd@fjardabyggd.is í síma 470-9000.

Hver hefur yfirumsjón með þjónustunni?

Umhverfisstjóri Fjarðabyggðar - umhverfisstjori@fjardabyggd.is, sími 470 9000.

Sérstakar húsaleigubætur

Hvaða þjónustu er lýst?

Sérstökum húsaleigubótum. Sjá reglur um sérstakar húsaleigubætur.

Fyrir hverja er þjónustan og/eða hvaða skilyrði eru sett til þess að hægt sé að sækja að sækja um þjónustuna?

Sérstakar húsaleigubætur eru fyrir þá sem ekki eru færir um að sjá sér og sínum fyrir húsnæði sökum lágra tekna, þungrar framfærslubyrði eða annarra félagslegra aðstæðna.

 

Hvað kostar þjónustan?

Upplýsingar um leiguverð íbúða sveitarfélagsins eru veittar á framkvæmdasviði í síma 470 9000.

 

Hvar er þjónustan veitt, hvenær, símanúmer og netfang?

Umsókn um sérstakar húsaleigubætur er hægt að nálgast á bókasöfnum Fjarðabyggðar. Fyrirspurnir má senda að senda á felagsthjonusta@fjardabyggd.is

 

Upplýsingar um umsóknafresti og móttöku umsókna.

Tekið er við umsóknum á  bókasöfnum Fjarðabyggðar en þær má senda í pósti; Fjölskyldusvið Fjarðabyggðar, Hafnargötu 2, 730 Fjarðabyggð.

 

Hvaða gögnum þarf að skila?   

-Staðfestu afriti af þremur síðustu skattframtölum umsækjanda og maka eða sambúðaraðila.
 
-Launaseðllum umsækjanda, og þeirra sem með honum búa og hafa náð 20 ára aldri, vegna síðustu  þriggja mánaða eða staðfesting á reiknuðu endurgjaldi vegna sjálfstæðrar starfsemi.

-Búsetuvottorði frá Þjóðaskrá.

-Síðasta greiðsluseðli allra lána umsækjanda.

-Núverandi leigusamningi og umsögn fyrrverandi/núverandi leigusala um greiðslu húsaleigu og umgengni leigjanda um hið leigða.

Ferli umsóknar.  

  • Tekið er við umsóknum á bókasöfnum Fjarðabyggðar en einnig er hægt að senda þær í pósti merkt:  Bæjarskrifstofur Fjarðabyggðar, Hafnargötu 2, 730 Fjarðabyggð.
  • Umsóknir eru teknar fyrir af starfsfólki fjölskyldusviðs á fundum reglulegum fundum. Við mat á umsóknum er tekið tillit til eigna og tekna umsækjenda. 
  • Umsækjendur fá skrifleg svör í kjölfar ákvarðana um umsóknir.
  • Sé umsókn samþykkt fær umsækjandi svarbréf í pósti þar sem hann er beðinn um að hafa samband við starfsfólk félagsþjónustu til að ganga frá leigusamningi.
  • Fái umsækjandi svar þess efnis að umsókn hafi verið móttekin, en sé á bið, ber að gæta þess að umsóknir þarf að endurnýja innan 6 mánaða frá umsóknardegi, til að umsókn haldist gild.
  • Þegar umsókn hefur verið samþykkt fær umsækjandi bréf þess efnis og skal hann í kjölfarið hafa samband við starfsfólk félagsþjónustu.
    Leigusamningar eru þá undirritaðir, en við undirritun greiðir leigjandi þriggja mánaða leigu sem tryggingu, auk mánaðarleigu fyrir fyrsta mánuð.

 

 

Hvernig eru ábendingar og kvartanir meðhöndlaðar?

Ábendingar og kvartanir skulu sendar á forstöðumann stjórnsýslu á netfangið fjardabyggd@fjardabyggd.is og í síma 470 9000.

 

Hver hefur yfirumsjón með þjónustunni?

Félagsmálastjóri yfirumsjón með þjónustunni. Sími 470 9000, felagsthjonusta@fjardabyggd.is