Spurt og svarað um kirkju og menningarmiðstöð:



Kirkju- og menningarmiðstöðin

 

Hvaða þjónustu er verið að lýsa?

Kirkju- og menningarmiðstöðin Fjarðabyggð gegnir hlutverki miðstöðvar tónlistar á Austurlandi sem ein af fjórum aðal menningarmiðstöðvum á Austurlandi sem heyra undir Menningarráð Austurlands.  Kirkju- og menningarmiðstöðin er sérlega hentug fyrir tónleika af flestum toga. Hljómburður er þar einstakur og hönnun byggingar miðaði öll að því að skapa sjón- og hljóðræna nánd milli flytjenda og njótenda. Húsið er mjög sveigjanlegt og aðbúnaður allur í sérflokki og fer vel um fólk.  Í Kirkju- og menningarmiðstöðinni er boðið upp á ýmiskonar viðburði allt árið.  Þá er húsið einnig mjög hentugt til sýningahalds, hvers kyns ráðstefna og funda

 

Fyrir hverja er þjónustan?

Þjónustan er ætluð öllum sem vilja njóta listviðburða af ýmsu tagi en einnig þeim sem vilja standa fyrir viðburðum eða nýta húsnæðið undir fundi eða ráðstefnur.

 

Hvar er þjónustan veitt, hvenær, símanúmer og netfang?

Kirkju- og menningarmiðstöðin Fjarðabyggð er staðsett að Dalbraut 2, 735 Eskifirði. Sími 476 1742, netfang tonleikahus@tonleikahus.is;  heimasíða: www.tonleikahus.is    Húsnæðið er í notkun allt árið en er aðeins opið almenningi þegar viðburðir eru í gangi.

 

Hvað kostar þjónustan?

Á heimasíðu Kirkju- og menningarmiðstöðvarinnar er gerð grein fyrir öllum viðburðum sem á dagskrá eru ásamt upplýsingum um aðgangseyri.  Upplýsingar um verðlista fyrir tónleikahald og leigu á sölum fást hjá forstöðumanni kirkju- og menningarmiðstöðvarinnar í síma 476 1742.

 

Hver hefur umsjón með þjónustunni?

Forstöðumaður kirkju- og menningarmiðstöðvarinnar í síma 476 1742.