Spurt og svarað um listamannaíbúð - Jensenshús:



Lista- og fræðimannaíbúð í Jensenhúsi

 

Hvaða þjónustu er lýst? 

Jensenshús “dvalarstaður lista- og fræðimanna” er elsta uppistandandi íbúðarhús á Eskifirði reist árið 1837.  Húsið er nýuppgert í upprunalegri mynd á fallegum og rólegum stað í hjarta bæjarins.   
 

Fyrir hverja er þjónustan?

 

Þjónustan er ætluð lista- og fræðimönnum.

 

Hvar er þjónustan veitt, hvenær, símanúmer og netfang?

 

Jensenshús er að Tungustíg 3, 735 Eskifirði.  Húsið er til afnota allt árið um kring.  Sími: 470 9026 – 860 4726.  Netfang:  hildigunnur.jorundsdottir@fjardabyggd.is

 

Hvað kostar þjónustan?

 

Ekki er greidd leiga fyrir aðstöðu í húsinu.   Hins vegar er ætlast til að þeir sem þar dvelja komi á einhvern hátt á framfæri því sem þeir eru að vinna að í sinni list og / eða fræðigrein eða öðrum verkum sínum meðan á dvalartíma stendur.

 

Hver hefur umsjón með þjónustunni?

 

Ferða- og menningarfulltrúi Fjarðabyggðar:  Hildigunnur Jörundsdóttir, sími 470 9026 – 860 4726. Netfang:  hildigunnur.jorundsdottir@fjardabyggd.is

 Forstöðumaður Safnastofnunar Fjarðabyggðar:  Pétur Sörensson, sími 470 9063.  Netfang:  safnastofnun@fjardabyggd.is