Spurt og svarað um ljósmyndasöfn:



Ljósmyndasöfn

Hvaða þjónustu er verið að lýsa?

Í Fjarðabyggð eru rekin tvö ljósmyndasöfn, Ljósmyndasafn Eskifjarðar og Ljósmyndasafnið í Neskaupstað.  Hlutverk safnanna er að varðveita ljósmyndir, filmur, glerplötur og skyggnur ásamt því að veita almenna þjónustu.  Söfnin veita upplýsingar um skráðar ljósmyndir og ljósmyndasöfn sem vistuð eru í söfnunum.  Einnig gefst fólki tækifæri á að kaupa myndefni sem er í eigu safnanna samkvæmt gjaldskrá.

Fyrir hverja er þjónustan?

Þjónustan er ætluð öllum.

 

Hvar er þjónustan veitt, hvenær, símanúmer og netfang?

Ljósmyndasafn Eskifjarðar, Strandgata 48a, 735 Eskifjörður.  Sími: 476 1133 – forstöðumaður 470 9063. Netfang:   safnastofnun@fjardabyggd.is  og myndasafn@simnet.is   Opnunartími eftir samkomulagi við forstöðumann.

Ljósmyndasafnið í Neskaupstað, Urðarteigur 10, 740 Neskaupstaður.  Sími: 477 1584 – 892 0708.  Netfang: gilhagi@simnet.is  Opnunartími eftir samkomulagi við forstöðumann.

 

Hvað kostar þjónustan?

Þjónustan er gjaldfrjáls en hægt er að kaupa myndefni í eigu safnanna.

 

Hver hefur umsjón með þjónustunni?

Forstöðumaður Ljósmyndasafns Eskifjarðar er Pétur Sörensson, sími 470 9063. Netfang:  safnastofnun@fjardabyggd.is

Forstöðumaður Ljósmyndasafnsins í Neskaupstað er Guðmundur Sveinsson, sími 477 1584 - 892 0708. Netfang:  gilhagi@simnet.is