Hvaða þjónustu er lýst?
Sjóminjasafn Austurlands á Eskifirði var opnað 1983 í gömlu verslunarhúsnæði sem ber nafnið Gamla-búð. Sýning safnsins er á tveimur hæðum og einnig eru nokkrir gamlir munir utandyra sem tilheyra sjósókn og vinnslu sjávarafla. Einnig er hluti safnsins gamalt sjóhús “Randulffssjóhús” sem rekið er sem sýningar- og þjónustuhús fyrir gesti í samstarfi við ferðaþjónustuaðila á Eskifirði.
Fyrir hverja er þjónustan?
Þjónustan er ætluð öllum.
Hvar er þjónustan veitt, hvenær, símanúmer og netfang?
Sjóminjasafn Austurlands er að Strandgötu 39b, 735 Eskifirði. Safnið er opið daglega frá kl. 13:00 – 17:00 frá 1. júní til 31. ágúst. Utan þess tíma er tekið á móti hópum eftir samkomulagi við safnvörð. Sími: 476 1605 - 470 90 63 – 860 4726.Netfang: safnastofnun@fjardabyggd.is
Hvað kostar þjónustan?
Aðgangseyrir samkvæmt gjaldskrá .
Hver hefur umsjón með þjónustunni?
Forstöðumaður Safnastofnunar Fjarðabyggðar er Pétur Sörensson, sími 470 9063. Netfang: safnastofnun@fjardabyggd.is
Tengiliður vegna þjónustu
Ferða- og menningarfulltrúi Fjarðabyggðar: Hildigunnur Jörundsdóttir, sími 860 4726. Netfang: hildigunnur.jorundsdottir@fjardabyggd.is Afgreiðsla Fjarðabyggðar í síma 470 9000