Spurt og svarað um styrki:



Styrkir til menningarstarfsemi



Hvaða þjónustu er lýst?   

Menningar-, íþrótta- og ferðamálanefnd Fjarðabyggðar veitir árlega styrki til menningarstarfsemi. Markmiðið er að styðja og efla menningarstarfsemi í Fjarðabyggð. 

 

Fyrir hverja er þjónustan og/eða hvaða skilyrði eru sett til þess að hægt sé að sækja að sækja um þjónustuna?

Listamenn, félagasamtök, stofnanir eða menningarviðburðir verða að tengjast Fjarðabyggð með fastri búsetu, viðburðurinn fari fram í Fjarðabyggð eða feli í sér kynningu á menningarstarfsemi í Fjarðabyggð. Ekki er styrkt til náms eða reksturs og viðhalds húsnæðis.  Nefndin áskilur sér rétt til að velja úr umsóknum hverju sinni.



Hvað kostar þjónustan?

Það kostar ekkert að sækja um menningarstyrk til nefndarinnar.

             

Hvar er þjónustan veitt, hvenær, símanúmer og netfang?

Auglýst er eftir umsóknum í janúar og er umsóknarfrestur alla jafna þrjár vikur. Nefndin úthlutar styrkjum fyrir lok febrúar.  Ferða- og menningarfulltrúi veitir nánari upplýsingar í síma 470 9000.



Upplýsingar um umsóknafresti og móttöku umsókna.

 

Auglýst er eftir umsóknum í janúar og er umsóknarfrestur alla jafna þrjár vikur. Menningar-, íþrótta- og ferðamálanefnd úthlutar styrkjum fyrir lok febrúar sama ár. 

Skilgreina þarf verkefnið í umsókn á sérstöku umsóknareyðublaði þar sem gerð grein fyrir verkefninu eða starfsemi, verk- og tímaáætlun og annarri fjármögnun  

Senda skal umsóknina til ferða- og menningarfulltrúa, Hafnargötu 2, 730 Fjarðabyggð.  Bókasöfnin í Fjarðabyggð taka einnig við umsóknunum.

 

Hvaða gögnum þarf að skila?  

Með umsóknareyðublaði fylgi kostnaðaráætlun, ósk um styrkupphæð og önnur gögn sem umsóknaraðili telur máli skipta. 

 

Ferli umsóknar  

Auglýst er eftir umsóknum í janúar og er umsóknarfrestur alla jafna þrjár vikur. Menningar-, íþrótta- og ferðamálanefnd úthlutar styrkjum fyrir lok febrúar sama ár. 

Hægt er að nálgast eyðublöð vegna umsóknar á bókasöfnum Fjarðabyggðar.

Umsóknir skulu sendar til ferða- og menningarfulltrúa, Bæjarskrifstofu Fjarðabyggðar,  Hafnargötu 2, 730 Fjarðabyggð.

Fjöldi styrkja og upphæðir ráðast af því fjármagni sem veitt er til nefndarinnar við gerð fjárhagsáætlunar hverju sinni. Fer úthlutun fram á fundi menningar-, íþrótta- og ferðamálanefndar.

Öllum umsóknum er svarað skriflega í febrúar.

Styrkir eru almennt greiddir út eftir að viðburður hefur farið fram en áskilinn er réttur til að krefjast endurgreiðslu styrkja komi ekki til verkefna sem sótt er um. Eftir að viðburði eða verkefni líkur ber umsækjanda að hafa samband við ferða- og menningarfulltrúa sem sér um að greiðsla fari fram.

Nánari upplýsingar veitir ferða- og menningarfulltrúi 470 9000  eða með tölvupósti hildigunnur.jorundsdottir@fjardabyggd.is



 Hvernig eru ábendingar og kvartanir meðhöndlaðar?



Ábendingar og kvartanir sendist til ferða- og menningarfulltrúa í síma 470-9000 eða með tölvupósti á hildigunnur.jorundsdottir@fjardabyggd.is eða til forstöðumanns stjórnsýslu í síma 470  9000 á fjardabyggd@fjardabyggd.is. Ábendingar eru meðhöndlaðar eftir eðli þeirra


Hver hefur yfirumsjón með þjónustunni?

Ferða- og menningarfulltrúi hefur umsjón með þjónustunni fyrir hönd menningar-, íþrótta- og ferðamálanefndar.



Styrkir til háskólanemenda

 

 

Hvaða þjónustu er lýst?

Styrkveitingum Rannsóknarsjóðs Landsbankans og Fjarðabyggðar

Fyrir hverja er þjónustan og/eða hvaða skilyrði eru sett til þess að hægt sé að sækja um þjónustuna?

 Fyrir háskólanemendur sem eru vinna að lokaritgerð. 

 

Hvað kostar þjónustan?  

 Þjónustan er gjaldfrjáls

 

 

 Hvar er þjónustan veitt, hvenær, símanúmer og netfang?

Upplýsingafulltrúi Fjarðabyggðar er starfsmaður sjóðsins og veitir allar upplýsingar.    upplysingafulltrui@fjardabyggd.is sími 470 9000.  Sjá einnig heimasíðu sjóðsins.

 

Upplýsingar um umsóknafresti og móttöku umsókna.

Umsóknarfrestur er til 1. mars ár hvert.  Skilyrði fyrir styrkveitingu er að rannsóknaraðili skili inn fullbúinni rannsóknaráætlun samþykktri af leiðsagnarkennara.   Styrkir eru veittir þann 15. mars.

 

Hvaða gögnum þarf að skila?  

Umsókn um styrk frá Rannsóknarsjóði auk rannsóknaráætlunar sem samþykkt er af leiðsagnarkennara

 

Ferli umsóknar.  

Umsóknum er skilað til skrifstofu Fjarðabyggðar, Hafnargötu 2, 730 Fjarðabyggð eða bókasafna í þéttbýliskjörnum Fjarðabyggðar.   Stjórn sjóðsins hittist fyrstu vikuna í mars og tekur afstöðu til  umsókna.  Allt að fjögur verkefni geta hlotið styrk í hvert skipti og eru styrkupphæðir frá 50 til 100 þúsund krónur.  Umsækjendur fá sent skriflegt svar þegar ákvörðun liggur fyrir að jafnaði fyrir lok marsmánaðar.   Lokaskýrslu skal skilað eigi síðar en ári eftir að úthlutun hefur farið fram að öðrum kosti.   Styrkurinn er greiddur út þegar umsækjandi hefur sent lokaskýrslu / ritgerðina – í pdf skjali á upplysingafulltrui@fjardabyggd.is  og tvö innbundin eintök í pósti merkt Rannsóknarsjóður Landsbanka og Fjarðabyggðar, Hafnargötu 2, 730 Fjarðabyggð

 

 

Hver hefur yfirumsjón með þjónustunni?

Bæjarstjóri í síma 470 9000 fjardabyggd@fjardabyggd.is.