Hvaða þjónustu er verið að lýsa?
Bókasöfnin í Fjarðabyggð eru fimm. Þau eru staðsett á Stöðvarfirði, Fáskrúðsfirði, Reyðarfirði, Eskifirði og Norðfirði. Söfnin búa yfir góðum safnkosti og boðið er upp á fjölbreytta þjónustu fyrir börn, unglinga og fullorðna, fyrirtæki og stofnanir. Helstu þjónustuþættir eru útlán gagna (s.s. á skáldsögum, fræðibókum, hljóðbókum, tímaritum, myndböndum og myndasögum) og upplýsingaþjónusta. Á söfnunum eru einnig tölvur ætlaðar lánþegum, ýmist til að skoða margmiðlunardiska, sækja upplýsingar á Internetið eða til ritvinnslu. Aðstoð er veitt við heimildaleit og boðið er upp á lesaðstöðu. Bókasöfnin í Fjarðabyggð eru samsteypusöfn og hýsa því bæði almennings- og skólabókasafn viðkomandi þéttbýliskjarna.
Bókasöfnin eru einnig þjónustugátt fyrir bæjarskrifstofu Fjarðabyggðar. Á opnunartíma safnanna er tekið við umsóknum um þjónustu sveitarfélagsins. Hægt er að sækja sér eyðublöð og hægt að fylla þau út á tölvu til útprentunar. Bókasöfnin taka á móti umsóknum og koma þeim til skila á bæjarskrifstofuna á Reyðarfirði. Jafnframt er aðgangur að tölvu og aðstoð og ráðgjöf um hvernig nálgast má upplýsingar um starfsemi sveitarfélagsins á heimasíðunni. Starfsmenn bókasafnanna veita aðstoð við að finna rétt eyðublöð og að benda á hvar hægt sé að leita sér frekari aðstoðar eða upplýsinga.
Fyrir hverja er þjónustan?
Þjónusta bókasafnanna er fyrir alla.
Hvað kostar þjónustan?
Sjá gjaldskrá
Hvar er þjónustan veitt, hvenær, símanúmer og netfang?
Bókasöfnin eru staðsett á Neskaupstað, Eskifirði, Reyðarfirði, Fáskrúðsfirði og Stöðvarfirði.
|
Opnunartími bókasafnanna:
|
|
Mánudaga
|
Þriðjudaga
|
Miðvikudaga
|
Fimmtudaga
|
Föstudaga
|
|
Norðfjörður
|
14 - 19
|
14 - 17
|
14 - 17
|
14 - 17
|
|
|
Eskifjörður
|
14 - 17
|
14 - 17
|
14 - 19
|
14 - 17
|
|
|
Reyðarfjörður
|
14 - 17
|
14 - 17
|
14 - 17
|
14 - 19
|
|
|
Fáskrúðsfjörður
|
14 - 19
|
|
14 – 17
|
|
14 - 17
|
|
Stöðvarfjörður
|
|
15 - 19
|
|
15 - 17
|
|
|
Bókasafnið í Neskaupstað er til húsa í Nesskóla, jarðhæð. Skólavegi 9, 740 Neskaupstað. Sími: 477-1521. GSM: 659-8000. Netfang: boknes@fjardabyggd.is
Bókasafnið á Eskifirði er til húsa í Grunnskóla Eskifjarðar. Lambeyrarbraut 16, 735 Eskifirði. Forstöðumaður er Guðný Einarsdóttir. Sími: 476-1586. Netfang: bokesk@fjardabyggd.is
Bókasafnið á Reyðarfirði er til húsa í Grunnskóla Reyðarfjarðar, jarðhæð. Heiðarvegi 14a, 730 Reyðarfirði. Forstöðumaður er Guðrún Rúnarsdóttir. Sími: 474-1366. GSM: 865-6412. Netfang: bokrey@fjardabyggd.is
Bókasafnið á Fáskrúðsfirði er til húsa í Grunnskóla Fáskrúðsfjaðrar að Hlíðargötu 56 750 Fáskrúðsfirði. Forstöðumaður er Linda Hugdís Guðmundsdóttir. Sími: 475-9016. Netfang: bokfas@fjardabyggd.is
Bókasafnið á Stöðvarfirði er til húsa í Grunnskólanum á Stöðvarfirði, Skólabraut 20, 755 Stöðvarfirði. Forstöðumaður er Linda Hugdís Guðmundsdóttir. Sími: 475-9017. Netfang: bokstod@fjardabyggd.is
Hvaða skilyrði eru sett til að hægt sé að sækja um skírteini?
Við kaup á skírteini þarf að sýna persónuskilríki. Börn og unglingar yngri en 18 ára þurfa skriflega ábyrgð foreldris eða forráðamanns. Ábyrgðareyðublöð liggja frammi í afgreiðslu safnanna.
Hvernig eru ábendingar og eða kvartanir meðhöndlaðar?
Viðkomandi forstöðumaður safns tekur við ábendingum/kvörtunum á staðnum, í gegnum síma eða tölvupóst.
Einnig er hægt að hafa samband við forstöðumann safnastofnunar, Pétur Sörensson: sími: 470-9063. Fax: 470 9001, netfang: safnastofnun@fjardabyggd.is.
Hver hefur umsjón með þjónustunni?
Forstöðumenn viðkomandi safna í samvinnu við Safnastofnun.
Tengiliður vegna þjónustu
Forstöðumaður Safnastofnunar Pétur Sörensson sími 470 9063 og netfang safnastofnun@fjardabyggd.is