Spurt og svarað um félagsmiðstöðvar:



Félagsmiðstöðvar

Hvaða þjónustu er lýst

Félagsmiðstöðvar mæta þörf 13 til  16 ára unglinga fyrir uppbyggilegt og gefandi félagsstarf í frítíma þeirra.  Áhersla er lögð á fjölbreytni í starfinu og að ná til þeirra unglinga sem þarfnast félagslegs stuðnings. Í öllum félagsmiðstöðvum starfa unglingaráð sem móta viðfangsefni líðandi stundar í félagsmiðstöðinni og eru málsvarar unglinganna. Forvarnir meðal unglinga, hvað varðar reykingar, vímuefni og einelti er stór þáttur í starfinu.

 

Fyrir hverja er þjónustan ?

Þjónustan er fyrir 13-16 ára unglinga

 

Hvað kostar þjónustan?

Það kostar ekkert að koma í félagsmiðstöðina á opnunartíma. Kostnaði á böll, tónleika og aðra viðburði er haldið í lágmarki. Ferðalög eru yfirleitt greidd með  fjáröflun unglinganna.

 

Hvar er þjónustan veitt, hvenær, símanúmer og netfang?

Félagsmiðstöðvarnar í Fjarðabyggð eru fyrir unglinga í 8. - 10. bekk og þær eru opnar þrisvar í viku að jafnaði á starfstíma skólanna frá ágúst til maí. Opnunartímar eru frá kl. 20:00-22:00  tvo daga í viku og frá 20:00-23:00 á föstudögum. Á Fáskrúðsfirði og Stöðvarfirði er opið annað hvert föstudagskvöld.  Jafnframt er opið fyrir nemendur 5.-7. bekkjar aðra hverja viku einn dag í viku frá kl. 17:00-19:00. Vegna hefða eru aldursmið aðeins mismunandi  á milli þéttbýlisstaða.

Félagsmiðstöðvar

  • Félagsmiðstöðin Atóm, Egilsbraut 4, Norðfirði  740 Fjarðabyggð, sími: 477 1819,  atom@fjardabyggd.is 

 

  • Félagsmiðstöðin Knellan, Strandgötu 49, Eskifirði, 735 Fjarðabyggð, sími 476 0046,  knellan@fjardabyggd.is 

 

  • Félagsmiðstöðin Zveskjan, Austurvegi 1, Reyðarfirði, 730 Fjarðabyggð, Sími 474 1402,  zveskjan@fjardabyggd.is 

 

 

.is

 

 

Hvernig eru ábendingar og kvartanir meðhöndlaðar?

Þeim skal beint til forstöðumanns viðkomandi félagsmiðstöðvar og ef við á til  fræðslustjóra í síma 470 9000 eða á netfangið fjardabyggd@fjardabyggd.is

 

Hver hefur yfirumsjón með þjónustunni?

 Fræðslustjóri  í síma 470 9000, netfang fjardabyggd@fjardabyggd.is