Spurt og svarað um framhaldsskóla:



Framhaldsnám



Í Verkmenntaskóla Austurlands í Neskaupstað eru fjölbreyttar námsleiðir í boði, bæði verklegar og bóklegar. Skólinn býður uppá bæði grunn-og viðbótarmenntun fyrir jafnt unga sem aldna.

Er það eitt af sérkennum skólans að sinna breiðum hópi nemenda á öllum aldri. Við skólann er heimavist og mötuneyti og ágætisaðstaða í nýlegu verkkennsluhúsi skólans.

 

Í nágrannasveitarfélögunum eru framhaldsskólarnir  

 

Skýrsla Starfshóps um eflingu framhaldsskólamenntunar í Fjarðabyggð frá 2008. 

Styrkir til háskólanemenda

 

 

Hvaða þjónustu er lýst?

Styrkveitingum Rannsóknarsjóðs Landsbankans og Fjarðabyggðar

Fyrir hverja er þjónustan og/eða hvaða skilyrði eru sett til þess að hægt sé að sækja um þjónustuna?

 Fyrir háskólanemendur sem eru vinna að lokaritgerð. 

 

Hvað kostar þjónustan?  

 Þjónustan er gjaldfrjáls

 

 

 Hvar er þjónustan veitt, hvenær, símanúmer og netfang?

Upplýsingafulltrúi Fjarðabyggðar er starfsmaður sjóðsins og veitir allar upplýsingar.    upplysingafulltrui@fjardabyggd.is sími 470 9000.  Sjá einnig heimasíðu sjóðsins.

 

Upplýsingar um umsóknafresti og móttöku umsókna.

Umsóknarfrestur er til 1. mars ár hvert.  Skilyrði fyrir styrkveitingu er að rannsóknaraðili skili inn fullbúinni rannsóknaráætlun samþykktri af leiðsagnarkennara.   Styrkir eru veittir þann 15. mars.

 

Hvaða gögnum þarf að skila?  

Umsókn um styrk frá Rannsóknarsjóði auk rannsóknaráætlunar sem samþykkt er af leiðsagnarkennara

 

Ferli umsóknar.  

Umsóknum er skilað til skrifstofu Fjarðabyggðar, Hafnargötu 2, 730 Fjarðabyggð eða bókasafna í þéttbýliskjörnum Fjarðabyggðar.   Stjórn sjóðsins hittist fyrstu vikuna í mars og tekur afstöðu til  umsókna.  Allt að fjögur verkefni geta hlotið styrk í hvert skipti og eru styrkupphæðir frá 50 til 100 þúsund krónur.  Umsækjendur fá sent skriflegt svar þegar ákvörðun liggur fyrir að jafnaði fyrir lok marsmánaðar.   Lokaskýrslu skal skilað eigi síðar en ári eftir að úthlutun hefur farið fram að öðrum kosti.   Styrkurinn er greiddur út þegar umsækjandi hefur sent lokaskýrslu / ritgerðina – í pdf skjali á upplysingafulltrui@fjardabyggd.is  og tvö innbundin eintök í pósti merkt Rannsóknarsjóður Landsbanka og Fjarðabyggðar, Hafnargötu 2, 730 Fjarðabyggð

 

 

Hver hefur yfirumsjón með þjónustunni?

Bæjarstjóri í síma 470 9000 fjardabyggd@fjardabyggd.is.