Spurt og svarað um leikskóla:



Leikskólar

Hvaða þjónustu er verið að lýsa?
Leikskólar eru þjónustu- og menntastofnun fyrir öll börn á leikskólaaldri.  Í Fjarðabyggð eru leikskólar á Norðfirði, Eskifirði, Reyðarfirði, Fáskrúðsfirði og Stöðvarfirði og á Mjóafirði er  útibú frá leikskólanum á Reyðarfirði.
 

Fyrir hverja er þjónustan og/eða hvaða skilyrði eru sett til þess að hægt sé að sækja um þjónustuna?
Leikskólar eru fyrir börn á leikskólaaldri, 1 - 6 ára, sem eiga lögheimili í Fjarðabyggð. Börn geta byrjað í leikskóla 12 mánaða gömul ef leikskólapláss er til staðar.  Sækja skal um leikskólavist til leikskólastjóra í hverjum byggðakjarna, eða rafrænt á heimasíðu hlutaðeigandi leikskóla. Reyðarfjörður tekur við Mjóafjarðarumsóknum. Sækja má um vistun þegar barn hefur náð 6 mánaða aldri.

 

Hvað kostar þjónustan?    Sjá gjaldskrá.

 

Hvar er þjónustan veitt, hvenær, símanúmer og netfang?
Almennur opnunartími leikskólanna er frá kl. 7:30 - 16:45.

 

Upplýsingar um umsóknafresti og móttöku umsókna.  
Sótt er um leikskólavist hjá leikskólastjórum eða rafrænt á vef viðkomandi leikskóla. Hægt er að sækja um leikskólavistun fyrir barn sem náð hefur 6 mánaða aldri.

 

Hvaða gögnum þarf að skila?   
Útfylltu umsóknareyðublaði sem fæst á vef viðkomandi leikskóla.

 

Ferli umsóknar  
Foreldrar/forráðmenn innrita börn sín með því að fylla út umsóknareyðublað rafrænt eða hjá leikskólastjóra. Hægt er að innrita börn frá 6. mánaða aldri.  Leikskólastjóri metur umsóknir og bregst við í tölvupósti innan hálfs mánaðar. Í tölvupósti leikskólastóra kemur hvenær þess er vænst að barnið geti hafið skólagöngu. Haft er samband við foreldra/forráðamenn þegar barn hefur fengið inngöngu í leikskóla. Forráðamenn skulu  staðfesta, innan sjö daga, að þeir taki leikskólaplássið. Hafi staðfesting ekki borist frá forráðamönnum  þegar svarfrestur rennur út er nafn barnsins tekið af lista og öðru barni boðið plássið. Tilkynna skal foreldrum með góðum fyrirvara hvenær barn getur hafið leikskólagöngu og eigi síðar en 3 vikum áður en leikskóladvöl hefst.

 

Hvernig eru ábendingar og kvartanir meðhöndlaðar?
Ábendingum og/eða kvörtunum skal komið til viðkomandi skólastjóra eða fræðslustjóra á netfangið fjardabyggd@fjardabyggd.is.

 

Hver hefur yfirumsjón með þjónustunni?
Fræðslustjóri, thoroddur.helgason@fjardabyggd.is ,  sími: 470 9000,  fax: 470 9001.