Hvaða þjónustu er verið að lýsa?
Í Fjarðabyggð eru þrír tónlistarskólar, Tónskóli Neskaupstaðar, Tónlistarskóli Eskifjarðar- og Reyðarfjarðar og Tónlistarskóli Fáskrúðs- og Stöðvarfjarðar. Skólarnir bjóða upp á nám í tónfræði, hljóðfæraleik og söng.
Fyrir hverja er þjónustan og/eða hvaða skilyrði eru sett til þess að hægt sé að sækja um þjónustuna?
Allir íbúar Fjarðabyggðar geta sótt um í tónlistarskólunum. Skólastjórar skólanna ákveða hvernig tekið er inn í skólana. Fjöldi og fjölhæfni starfsliðs og ásókn í hljóðfæra- og söngnám stýra hversu marga er hægt að innrita hverju sinni.
Hvað kostar þjónustan?
Sjá gjaldskrá.
Hvar er þjónustan veitt, hvenær, símanúmer og netfang?
Tónlistarskólarnir eru í húsnæði grunnskólanna í hverjum byggðarkjarna. Kortasjá Fjarðabyggðar
- Tónskóli Neskaupstaðar, sími 477 1377, Skólavegi 9, 740 Fjarðabyggð, tonnes@fjardabyggd.is Umsókn um skólavist
- Tónskóli Eskifjarðar og Reyðarfjarðar, sími 476 1340, Lambeyrarbraut 14, 735 Fjarðabyggð og 474 1298, Heiðarvegi 14a, 730 Fjarðabyggð, toner@fjardabyggd.is Umsókn um skólavist
Upplýsingar um umsóknafresti og móttöku umsókna.
Sótt er um tónlistarnám hjá tónlistarskólastjórum í ágúst fyrir haustönn og desember fyrir vorönn.
Ferli umsóknar
Einstaklingar og foreldrar/forráðmenn barna innrita sig með því að fylla út eyðublað eða hringja í hlutaðeigandi tónlistarskólastjóra. Tónlistarskólastjóri metur umsóknir og bregst við í tölvupósti eða með símtali innan hálfs mánaðar.
Hvernig eru ábendingar og kvartanir meðhöndlaðar?
Ábendingum og/eða kvörtunum skal komið til viðkomandi skólastjóra eða fræðslustjóra á netfangið fjardabyggd@fjardabyggd.is.
Hver hefur yfirumsjón með þjónustunni?
Fræðslustjóri, thoroddur.helgason@fjardabyggd.is Sími: 470 9000
. 750 Fjarðabyggð, sími 475 9035 og í grunnskólanum að Skólabraut, 755 Stöðavarfirði, sími 475 9036. tonfast@fjardabyggd.is .
Heimasíða skólans er www.tonfast.is . Umsókn um skólavist