Spurt og svarað um nýja íbúa:




Nefndir og ráð

  Sjá upplýsingar um starfandi nefndir stjórnir og ráð

Sorphirða og meðferð úrgangs

Hér eru  upplýsingar um eftirfarandi atriði

1)    Sorphirða
2)    Söfnunarstöðvar 
3)    Móttökustöð 
4)    Endurvinnanlegt sorp – Græna tunnan 
5)    Garðaúrgangur    
6)    Skilagjaldskyldar umbúðir
7)    Nytjahlutir
8)    Föt og klæði 
9)    Gjaldskrá vegna sorphirðu
10)  Samþykkt um sorphirðu í Fjarðabyggð
11)  Sorphirðuhandbók Fjarðabyggðar 

 

1) Sorphirða

Íslenska Gámafélagið, Hjallanesi 10, á  Reyðarfirði hefur umsjón með sorphirðu í Fjarðabyggð, sími 840 5840 Róbert. Sorphirðudagatal 2012

Sorp er hirt á tveggja vikna fresti á þessum dögum: 

 

Gráa tunnan

Græna tunnan

Norðfjörður

Miðvikudaga

Föstudaga

Eskifjörður

Miðvikudaga

Föstudaga

Reyðarfjörður

Fimmtudaga

Föstudaga

Stöðvarfjörður/ Fáskrúðsfjörður

Fimmtudaga

Föstudaga

 

Athugið að veður og aðrir þættir geta haft áhrif á hversu langan tíma tekur að hirða í hvert sinn. Þá eru íbúar beðnir um að hafa gott aðgengi að sorptunnum til að tryggja skilvirka sorphirðu t.d. með því að muna að moka frá tunnunum og staðsetja þær ekki of langt frá vegi.

2) Söfnunarstöðvar

Söfnunarstöðvar eru ætlaðar almenningi og er hámarks farmstærð 2 m3Stærri farmar skulu fluttir á móttökustöð á Reyðarfirði í samráði við þjónustuaðila.  Á söfnunarstöðvum Fjarðabyggðar skal greiða fyrir móttöku úrgangs sem hér segir:    Fyrir allan úrgang frá heimilum, sem ekki fellur til við daglegan heimilisrekstur og ber ekki úrvinnslugjald eða skilagjald, eins og t.d. 

• frá byggingu eða breytingu íbúðarhúsnæðis
• frá bifreiðaviðgerðum
• lagervörur eða fyrningar yfirteknar við húsakaup
• úrgangur vegna húsdýrahalds.

Söfnunarstöðvar eru á eftirfarandi stöðum:

  • Eskifjörður:   Söfnunarstöðin við Hafnargötu. Sími 476 1665.
  • Fáskrúðsfjörður:   Söfnunarstöðin á Nesvegi 13.  Sími 475 1144. 
  • Norðfjörður:   Söfnunarstöðin er við smábátahöfnina.  Sími  477 1302.
  • Reyðarfjörður:  Söfnunarstöðin á Hjallanesi 8 . Sími 474 1555.
  • Stöðvarfjörður:   Söfnunarstöðin á Byrgisnesi. Sími 475 8814. 
  • Mjóifjörður:  Öllu sorpi er skilað í söfnunargám sem er staðsettur við höfnina.

    Söfnunarstöðvar eru opnar sem hér segir:

Reyðarfjörður

Neskaupstaður

Eskifjörður

Fáskrúðsfjörður

Stöðvarfjörður

mán

14:00

18:00

15:00

18:00

15:00

18:00

 

 

 

 

Þri

14:00

18:00

 

 

 

 

14:00

18:00

 

 

mið

14:00

18:00

15:00

18:00

15:00

18:00

 

 

 

 

fim

14:00

18:00

 

 

 

 

 

 

14:00

18:00

fös

14:00

18:00

14:00

18:00

14:00

18:00

 

 

 

 

Lau

10:00

14:30

10:00

14:30

10:00

14:30

10:00

14:30

10:00

14:30

Íslenska gámafélagið ehf. – s. 577-5757 - Veffang: igf@igf.is


 

3) Móttökustöð  

Móttökustöð Fjarðabyggðar er á Reyðarfirði. Þar er tekið á móti stærri förmum af úrgangi frá fyrirtækjum og einstaklingum. Allur úrgangur í Fjarðabyggð er fluttur á móttökustöð til vinnslu.  Á móttökustöð er úrgangur flokkaður og ýmist fluttur til urðunar eða sendur til endurvinnslu.  Íslenska Gámafélagið sér um rekstur móttökustöðvar og sér um  að pressa pappa og flytja hráefni til endurvinnslu beint frá Reyðarfirði.  Róbert Beck (s. 840 5840) er yfirmaður Íslenska Gámafélagsins á Austurlandi.

 

4) Endurvinnanlegt sorp – Græna tunnan

Fjarðabyggð hefur útvegað öllum íbúum sínum Græna tunnu undir þann hluta heimilissorpsins sem er endurvinnanlegur. Í Grænu tunnuna má setja allan pappír heimilisins, bylgjupappa og pappa, plast, minni málmhluti (t.d. niðursuðudósir, málmlok af glerkrukkum) og fernur. Gler má alls ekki fara í tunnuna þar sem innihald tunnunnar er handflokkað og því getur brotið gler verið varasamt. Einnig getur glerið skemmt annað hráefni í tunninni og gert það óhæft til endurvinnslu. Eins mega rafhlöður ekki fara í tunnuna þar sem þær eru flokkaðar sem spilliefni.

Dagblöð – Beint í tunnuna.
Tímarit – Beint í tunnuna
Bæklingar – Beint í tunnuna
Bylgjupappi – Beint í tunnuna
Fernur/ Sléttur pappi – Í glærum poka*
Plastumbúðir – Í glærum poka
Minni málmhlutir – Í glærum poka
Munið að hreinsa umbúðir vel og skola fernur

*Fernum og sléttum pappa sem raðað er hverju ofan í aðra má setja beint í tunnuna.

Sjá nánar um hvað tilheyrir þessum flokkum á heimasíðu Íslenska Gámafélagsins

 

 

5) Garðaúrgangur

Íbúar geta losað sig við garðaúrgang á eftirfarandi stöðum.  Við viljum benda íbúum á að tæma garðaúrgang úr pokum við losun. Plast getur tekið allt að 100 ára að brotna niður í náttúrunni.

  • Eskifjörður:  Gámur fyrir garðaúrgang er við gámavöllinn, hafnarmegin. Fáskrúðsfjörður:  Losað í gryfju við hlið söfnunarstöðvar.
  • Norðfjörður:   Gámur fyrir garðaúrgang verður við þjónustumiðstöð.
  • Reyðarfjörður:  Losað við Teigagerði fyrir austan byggðina.
  • Stöðvarfjörður:  Losað við Byrgisnes 

 

6) Skilagjaldskyldar umbúðir

  • Eskifjörður: Fjarðaþrif ehf. sér um móttöku.  Tekið er á móti umbúðum á föstudögum kl. 14-17 í gámi við Strandgötu 12a (Böggablóm).
  • Fáskrúðsfjörður: Flytjandi sér um móttöku.  Tekið er á móti umbúðum á miðvikudögum kl. 15-16 í afgreiðslu Flytjanda, Grímseyri 11 b.
  • Norðfjörður:  Björgunarsveitin Gerpir sér um móttöku.  Tekið er á móti umbúðum á þriðjudögum kl. 18:00-20:00 að Strandgötu 44.   http://gerpir.123.is/.
  • Reyðarfjörður: Hallgrímur Bóasson sér um móttöku.  Tekið er á móti umbúðum á mánudögum kl. 17:00-20:00 í gám sem er staðsettur við Bíley, Leiruvogi 6.
  • Stöðvarfjörður: Brekkan sér um móttöku.  Tekið er á móti dósum og flöskum á opnunartímum verslunarinnar.

Skilagjald er 14 kr.

 

7) Nytjahlutir

Hægt er að skila inn nytjahlutum á allar söfnunarstöðvar sveitarfélagsins.  Hlutirnir eru svo fluttir í nytjamarkað Hjálpræðishersins á Reyðarfirði, Hertex.  Þar verða þeir seldir gegn hóflegu verði og rennur allur ágóði til góðgerðamála. Valborg H. Kristjánsdóttir og Örn Rúnarsson (s. 849 3286) sjá um starfsemina.

 

8)  Föt og klæði 

Deildir Rauða krossins um allt land taka á móti notuðum fatnaði sem allur nýtist til hjálparstarfs. Nánari upplýsingar um starfsemi Rauða krossins á Austurlandi er að finna inna á heimasíðunni: http://redcross.is/page/rki_deildir_austurland. Í Fjarðabyggð eru fatagámar á eftirtöldum stöðum:

·        Eskifjörður: Við þjónustumiðstöð Fjarðabyggðar á Eskifriði, Strandgötu 6.

·        Fáskrúðsfjöður: Við starfstöð Rauða Krossins á Fjáskrúðsfirði að Grímseyri 9

·        Norðfjöður: Við afreiðslustöð Flytjanda, Egilsbraut 6.

·        Reyðarfjörður: Við söfnunarstöðina á Hjallanesi 8.   

·        Stöðvarfjörður: Fyrir utan Rauða kross búðina að Fjarðarbraut 46

Hjálpræðisherinn á Íslandi er með nytjamarkaðskeðju sem heitir Hertex og er með einn nytjamarkað í Fjarðabyggð sem er á Reyðarfirði að Búðargötu 4. Þar sem tekið er á móti hlutum og fatnaði á föstudögum á opnunartíma. Nánar upplýsingar um opnunartíma er að finna á http://www.herinn.is/pages/enhet.aspx?nr=859. Ágóðinn rennur til góðgerðarmála innan Fjarðabyggðar.

 

9) Gjaldskrá vegna sorphirðu

 

 

10)  Samþykkt um meðhöndlun úrgangs í Fjarðabyggð.

 


 Ábendingar og fyrirspurnir – Þessi línkur virkar ekki

Upplýsingar fyrir nýja íbúa

Flutningstilkynning
Búferlaflutninga ber að tilkynna á  skrifstofur Fjarðabyggðar að Hafnargötu 2, Reyðarfirði einnig er hægt að fá eyðublöð á bókasöfnunum á Norðfirði; Eskifirði; Reyðarfirði, Fáskrúðsfirði og Stöðvarfirði innan við viku frá flutningi. Umsóknareyðublöð liggja  frammi í afgreiðslum. Einnig er hægt að nálgast eyðublöð með rafrænum hætti á heimasíðu Þjóðskrár  www.thjodskra.is/eydublod  og skila útfylltum á  skrifstofu Fjarðabyggðar eða í þjónustugáttir á bókasöfnunum.

Flutningur á síma
Hægt er að flytja gamla símanúmerið með sér hvert á land sem er.  Þeir sem eru að sækja um símanúmer í fyrsta skipti skulu snúa sér til þjónustumiðstöðvar Símans á Egilsstöðum.  Síminn, Miðvangi 13, Egilsstöðum, Sími: 470 1000.  Netfang: siminn.egilsstodum@siminn.is    Veffang: www.siminn.is



Hitaveita
Hitaveita  er á Eskifirði. Annarsstaðar í Fjarðabyggð eru hús hituð með rafmagni.  Skrifstofa Hitaveitu  Fjarðabyggðar, Strandgötu 16, 735 Eskifjörður.  Sími 470  9044   GSM 860 4526.  Netfang:  andres@fjardabyggd.is



Rafveita
Rarik sér um  dreifikerfi rafmagns  í Fjarðabyggð nema á Reyðarfirði. Þar annast Rafveita Reyðarfjarðar kerfið
Rarik skrifstofa, Þverklettum 2-4 , Sími: 528 9000, Veffang: www.rarik.is   
Rafveita Reyðarfjarðar, Hafnargötu 2, 730 Fjarðabyggð, sími 470 9096, Netfang rori@fjardabyggd.is 



Búslóðaflutningar
Eimskip/ Flytjandi, Strandgötu 18, 735 Fjarðabyggð. Sími: 476 1800 - Fax: 476.1809
Landflutningar-Samskip, Leiruvogi 2, 730 Fjarðabyggð, Sími: 458 8840, Fax: 458 8904
Sendibílaþjónusta Austurlands, Dagur Indriðason, Sími: 899 0959 og 855 4359, Netfang: daguri@simnet.is  



Lóðir til nýbygginga

Fasteignasölur
Domus, fasteignasala,  Búðareyri 1, 730 Reyðarfirði, Sími: 440 6130 Fax: 440 6001. Netfang:   domus @domus.is - Veffang: www.domus.is  

Inni fasteignasala, Egilsbraut 8,  740  Neskaupstað, Sími:  580 7932, Fax: 580 7931. Netfang: inni@inni.is   Veffang: www.inni.is  

Hóll, fasteignasala, Austurvegi 20,  730 Reyðarfirði. Sími:475 8000. Fax: 474 1124.  Netfang: holl@holl.is  Veffang www.holl.is

Réttvísi ehf.-fasteignasala,  Strandgötu 19a  735 Eskifirði, Sími: 476 1616.  Fax  476 1661.  Netfang: gisli@rettvisi.is  Veffang: www.rettvisi.is 



Leiguhúsnæði: 
Eyðublöð fyrir gerð húsaleigusamninga er hægt að nálgast í afgreiðslu á skrifstofum Fjarðabyggðar. 

 

Rentus, leigumiðlun, Kaupvangi 3a - 700 Egilsstöðum. Sími:  440 6135. Netfang: rentus@rentus.is   Veffang: www.rentus.is  



Atvinna
Svæðisvinnumiðlun Austurlands. Miðás 1, 700 Egilsstaðir. Sími 471 2288. Fax  471 2287.  Netfang: svm.austurland@svm.is  Veffang: www.vinnumalastofnun.is/svmal    

Grunnskólar -umsókn um skólavist

Leikskólar –umsókn um skólavist

Tónlistarskólar - umsókn um skólavist

Tómstundastarf - listi yfir ýmis félög og samtök 


Sjá einnig vefinn Austurland tækifæranna - www.austurat.is



Kortavefsjá


Hunda- og kattahald

 

Hvaða þjónustu er lýst?

Móttaka umsókna og skráning og veiting  leyfa til hunda- og kattahalds.

Móttaka á kvörtunum og handsömun hunda og katta sem ganga lausir.

Hundar og kettir 3ja mánaða eða eldri eru skráningarskyldir en auk þess þarf að skrá dýr innan mánaðar eftir að þau koma á nýtt heimili.

Hreinsun hunda- og katta er í september ár hvert.

Tekið er á móti kvörtunum vegna hunda- og katta.

Handsömum hunda í lausagöngu.

Föngun villikatta.

Afskráning hunda og katta við flutning eða dauða.

Sjá einnig samþykktir um hunda- og kattahald

Fyrir hverja er þjónustan og/eða hvaða skilyrði eru sett til þess að hægt sé að sækja að sækja um þjónustuna?

Fyrir alla hunda og kattaeigendur og þá sem verða fyrir ónæði eða óþægindum vegna hunda- eða kattahalds.

 

Hvað kostar þjónustan

 Greitt er fyrir leyfi til hunda- og kattahalds skv. gjaldskrá

 

Hvar er þjónustan veitt, hvenær, símanúmer og netfang?

Dýraeftirlitsmaður veitir þjónustu þar sem hennar er þörf í Fjarðabyggð.  Sími 470 9000 og dyraeftirlit@fjardabyggd.is.

 

Upplýsingar um umsóknafresti og móttöku umsókna.

Öllum hunda- og kattaeigendum er skylt að skrá dýr eigi síður en innan mánaðar eftir að þau koma á heimili.  Afskráningu þarf að tilkynna innan mánaðar ef hundur eða köttur skiptir um heimili eða deyr.  Eyðublöð er hægt að nálgast á bókasöfnunum Fjarðabyggðar

 

 

Hvaða gögnum þarf að skila?   

Þegar sótt erum leyfi þarf að skila útfylltu umsóknareyðublaði, vottorði frá dýralækni  sem er útgefið innan ársins og samþykki allra íbúðareigenda ef búið er í fjölbýlishúsi.  Yfirlýsing íbúa fjölbýlishúsa vegna leyfis til katta- eða hundahalds ,  Þegar afskráning er tilkynnt þarf að senda inn útfyllt eyðublað um afskráningu.

 

Ferli umsóknar 

Hér kemur lýsing á ferli umsóknar skref fyrir skref, m.ö.o. hvernig umsóknarferlið gengur fyrir sig:

Umsókn um leyfi og afskráningu skal vera undirritað og afhent ásamt fylgiskjölum á bókasöfnunum.  Einnig er hægt að senda hana til Fjarðabyggðar, Hafnargötu 2, 730 Fjarðabyggð  eða á netfangið dyraeftirlit@fjardabyggd.is .

Þegar sótt hefur verið um leyfi og það samþykkt, er númer sent til eiganda dýrsins ásamt afriti af afgreiddu umsóknarblaði og samþykktum Fjarðabyggðar um hunda- og kattahald.

Þegar hundur eða köttur er afskráður er viðkomandi endurgreitt leyfisgjald hlutfalllega m.v. líðandi ár.

Árlegt leyfisgjald er sent út í greiðsluseðli, gjalddagi 1. nóvember, eindagi er 30. nóvember.  Innifalið í leyfisgjaldinu er ormahreinsun og trygging gagnvart þriðja aðila. Boðun um ormahreinsun er send út árlega í september og er skylt að mæta með dýrin í hana.

 

Hvernig eru ábendingar og kvartanir meðhöndlaðar?

Eðli ábendinga og kvartanir eru metnar í hverju tilfelli fyrir sig og lögð áhersla á að bregðast við í samræmi við það.  Ábendingum og kvörtunum má koma beint til starfsmanns dýraeftirlits,  netfang dyraeftirlit@fjardabyggd.is eða síma 470-9000.   

Einnig er hægt að senda  ábendingar og kvartanir til forstöðumanns stjórnsýslu á netfangið fjardabyggd@fjardabyggd.is

 

Hver hefur yfirumsjón með þjónustunni?

Umhverfisstjóri Fjarðabyggðar - umhverfisstjori@fjardabyggd.is og í síma 470 9000

Móttaka nýrra íbúa

Hvaða þjónustu er verið að lýsa? 

 

Móttöku nýrra íbúa í Fjarðabyggð.  Upplýsingamiðstöð fyrir nýja íbúa er rekin í samvinnu Rauða kross deildanna í sveitarfélaginu og Fjarðabyggðar. Þar geta  nýir íbúar  leitað  upplýsinga og ráðgjafar s.s. varðandi húsnæðismál, dvalar- og atvinnuleyfi, heilsugæslu, aðgengi að íslenskunámi, réttindi og skyldur á vinnumarkaði, fræðslu og námskeið sem í boði eru og aðrar upplýsingar sem varða búsetu í sveitarfélaginu Fjarðabyggð.



 

Fyrir hverja er þjónustan og/eða hvaða skilyrði eru sett til þess að hægt sé að sækja að sækja um þjónustuna?

Nýja íbúa í Fjarðabyggð og aðra sem þurfa að leita til Rauða krossins



 

Hvað kostar þjónustan? 

 

 Hún er gjaldfrjáls



Hvar er þjónustan veitt, hvenær, símanúmer og netfang?

 

Í bæjarskrifstofunum, Hafnargötu 2 á Reyðarfirði.  Viðvera móttkufulltrúa nýrra íbúa er frá 8:00 -16:00 alla virka daga.  Sími 470 9021 farsími  897-0916. Netfang mottokufulltrui@fjardabyggd.is.

 

Hvernig eru ábendingar og kvartanir meðhöndlaðar?

 Hægt er að koma ábendingum og kvörtunum á framfæri við forstöðumann stjórnsýslu í síma 470 9000 og á netfangið fjardabyggd@fjardabyggd.is



Hver hefur yfirumsjón með þjónustunni?

Verkefnisstjóri í móttöku nýrra íbúa er sameiginlegur starfsmaður Rauða kross deildanna í Fjarðabyggð og bæjarins og hefur  starfsaðstöðu í bæjarskrifstofum Fjarðabyggðar í Molanum á Reyðarfirði.   Verkefnisstjóri hefur reglulegt samráð við bæjarstjóra Fjarðabyggðar og deildir Rauða krossins á svæðinu.