Hvaða þjónustu er verið að lýsa?
Móttöku nýrra íbúa í Fjarðabyggð. Upplýsingamiðstöð fyrir nýja íbúa er rekin í samvinnu Rauða kross deildanna í sveitarfélaginu og Fjarðabyggðar. Þar geta nýir íbúar leitað upplýsinga og ráðgjafar s.s. varðandi húsnæðismál, dvalar- og atvinnuleyfi, heilsugæslu, aðgengi að íslenskunámi, réttindi og skyldur á vinnumarkaði, fræðslu og námskeið sem í boði eru og aðrar upplýsingar sem varða búsetu í sveitarfélaginu Fjarðabyggð.
Fyrir hverja er þjónustan og/eða hvaða skilyrði eru sett til þess að hægt sé að sækja að sækja um þjónustuna?
Nýja íbúa í Fjarðabyggð og aðra sem þurfa að leita til Rauða krossins
Hvað kostar þjónustan?
Hún er gjaldfrjáls
Hvar er þjónustan veitt, hvenær, símanúmer og netfang?
Í bæjarskrifstofunum, Hafnargötu 2 á Reyðarfirði. Viðvera móttkufulltrúa nýrra íbúa er frá 8:00 -12:30 alla virka daga. Sími 470 9021 farsími 897-0916. Netfang mottokufulltrui@fjardabyggd.is.
Hvernig eru ábendingar og kvartanir meðhöndlaðar?
Hægt er að koma ábendingum og kvörtunum á framfæri við forstöðumann stjórnsýslu í síma 470 9000 og á netfangið fjardabyggd@fjardabyggd.is
Hver hefur yfirumsjón með þjónustunni?
Verkefnisstjóri í móttöku nýrra íbúa er sameiginlegur starfsmaður Rauða kross deildanna í Fjarðabyggð og bæjarins og hefur starfsaðstöðu í bæjarskrifstofum Fjarðabyggðar í Molanum á Reyðarfirði. Verkefnisstjóri hefur reglulegt samráð við bæjarstjóra Fjarðabyggðar og deildir Rauða krossins á svæðinu.