Spurt og svarað um samgöngur:



Skipulagðar samgöngur

 

Upplýsingar um skipulagðar samgöngur í Fjarðabyggð og nágrenni. 

Leiðakerfi og tímatafla. (útgáfa frá 13.1.2012)


Sjá einnig upplýsingar um ferjusiglingar í Mjóafjörð



 

1.   Hvaða þjónustu er lýst?



Um er að ræða tilraunaverkefni um skipulagðar samgöngur í Fjarðabyggð og nágrenni frá 1. janúar 2012 til 31. desember  2012.   Miðja leiðakerfisins er í Molanum á Reyðarfirði og þaðan eru ferðir til Norðfjarðar, um suðurfirðina til Breiðdalsvíkur og til Egilsstaða og til baka.  Akstur Fjarðabyggðar, stór hluti af akstri Alcoa Fjarðaáls og sérleyfisakstur SSA fellur undir leiðakerfið.



2.   Fyrir hverja er þjónustan



Þjónustan er fyrir íbúa í Fjarðabyggð, Fljótsdalshéraði og á Breiðdalsvík sem ferðast reglulega milli staða vegna vinnu, skóla, íþróttaiðkunar eða annars.  Einnig er aksturinn ætlaðar fyrir stakar ferðir íbúa og ferðamanna en hægt er að kaupa 10 og 20 miða kort.    Notendur sem eru 16 ára og eldri kaupa miða eða mánaðarkort til þess að nýta sér aksturinn.  Notendur sem eru yngri en 16 ára nota þjónustuna frítt.



3.   Hvað kostar þjónustan? 

1 miði - 1.500 kr.
10 miðar -  6.000 kr.
20 miðar - 10.000 kr.
Mánaðarkort kostar 10.000 kr.  Hægt er að kaupa kort sem gildir fleiri mánuði.

Ekki er hægt að greiða fargjald til bílstjóra í rútu



4.   Hvar er þjónustan veitt ? 


Sjá einnig upplýsingar um ferjusiglingar í Mjóafjörð




Framkvæmdasvið Fjarðabyggðar í bæjarskrifstofunum að Hafnargötu 2 á Reyðarfirði hefur yfirumsjón með þjónustunni.  Allar upplýsingar eru veittar á skiptiborði Fjarðabyggðar í síma 470 9000.



5.  Upplýsingar um korta- og miðasölu

 

  • Miðar og mánaðarkort eru  seld í sundlaugum/íþróttahúsum.  Þar eru miðar afhentir en kort eru send með pósti innan 3 virkra daga frá kaupum. Sjá uppl. um opnun sundlauga


  • Einnig má greiða fyrir mánaðarkort í heimabanka eða banka.  Greiðslur skal leggja inn á bankreikning  0569-14-700401  Kt. 470698-2099.  Kvittun/staðfesting skal send á netfangið samgongur@fjardabyggd.is.  Þar þarf að koma fram kennitala, nafn og heimilisfang notanda kortsins. 


  • Þegar kvittun / staðfesting berst á netfangið samgongur@fjardabyggt.is er sérstakt mánaðarkort búið til og sem er sent notanda í landpósti innan þriggja daga. 


  • Hægt er að nota útprentaða staðfestingu / kvittun í 3 daga eftir að kort er greitt í heimabanka – þangað til kort berst notanda í landpósti.


6.    Hvernig eru ábendingar og kvartanir meðhöndlaðar?



Tekið er við ábendingum á skiptiborði Fjarðabyggðar í síma 470 9000.  Einnig tekur mannvirkjastjóri við kvörtunum í síma 470 9000, netfang  fjardabyggd@fjardabyggd.is



7.    Hver hefur yfirumsjón með þjónustunni?

Mannvirkjastjóri sem sviðstjóri framkvæmdasviðs Fjarðabyggðar,  sími 470 9000,  netfang johann.edvald@fjardabyggd.is



Snjómokstur og hálkueyðing



Hvaða þjónustu er verið að lýsa?



 Snjómokstur og hálkueyðing

 

Fyrir hverja er þjónustan og/eða hvaða skilyrði eru sett til þess að hægt sé að sækja að sækja um þjónustuna?



Þjónustan er fyrir alla


Hvað kostar þjónustan?



Ekki er greitt sérstaklega fyrir snjómokstur en hann er greiddur af útsvari til bæjarsjóðs.

 

Hvar er þjónustan veitt, hvenær, símanúmer og netfang?



Þjónustan er veitt í öllum þéttbýliskjörnum Fjarðabyggðar og  í samvinnu við Vegagerðina um safnvegi sem hlíta reglum um helmingsmokstur. Snjómokstur fer fram alla virka daga á tímabilinu kl. 05:00 til 16:00, á laugardögum á milli 08:00 til 14:00 en ekki er gert ráð fyrir snjómokstri á sunnudögum. Verkstjórar á hverjum stað stjórna snjómokstri. Hægt er að fá nánari upplýsingar eða koma athugasemdum í síma 470 9040 eða thjonusta@fjardabyggd.is .



Hvernig eru ábendingar og kvartanir meðhöndlaðar?

Tekið er við ábendinum og kvörtunum hjá þjónustumiðstöð Fjarðabyggðar í síma 470-9040 og á netfangið thjonusta@fjardabyggd.is.  Þær eru skráðar og teknar fyrir á verkstjórafundum en öllum ábendingum og kvörtunum er svarað.

Hver hefur yfirumsjón með þjónustunni?

 
Mannvirkjastjóri, mannvirkjastjori@fjardabyggd.is í síma 470 9000.