Spurt og svarað um skipulags og byggingamál:



Viðhald á mannvirkjum Fjarðabyggðar

 Hvaða þjónustu er verið að lýsa?

 

 Viðhaldi á mannvirkjum Fjarðabyggðar.

 

 Fyrir hverja er þjónustan og/eða hvaða skilyrði eru sett til þess að hægt sé að sækja að sækja um þjónustuna?

 

Þjónustan er fyrir forstöðumenn stofnana Fjarðabyggðar og fyrir alla íbúa Fjarðabyggðar vegna gatna og gangstétta.

 

Hvað kostar þjónustan?

 

Ekki er greitt sérstaklega fyrir þjónustuna en hún er greidd af útsvari til bæjarsjóðs.

 

Hvar er þjónustan veitt, hvenær, símanúmer og netfang?

 

Þjónustan er veitt í öllum þéttbýliskjörnum Fjarðabyggðar.   Hægt er að fá nánari upplýsingar eða koma athugasemdum vegna fasteigna á framfæri í síma 470-9000 eða á mannvirkjasvid@fjardabyggd.is.

Hægt er að fá nánari upplýsingar eða koma athugasemdum vegna gatna og gangstétta í síma 470-9040 eða thjonusta@fjardabyggd.is.

 

Hvernig eru ábendingar og kvartanir meðhöndlaðar?

Ábendingar og kvartanir vegna gatna og gangstétta eru skráðar  hjá þjónustufulltrúa tjonusta@fjardabyggd.is , sími 470 9040 og  þær eru teknar fyrir á verkstjórafundum. Öllum ábendingum og kvörtunum verður svarað.

Kvartanir og ábendingar vegna viðhalds mannvikja Fjarðabyggðar berist mannvirkjastjóra, mannvirkjastjori@fjardabyggd.is eða til forstöðumanns stjórnsýslu  fjardabyggd@fjardabyggd.is í síma 470 9000

 

 

Hver hefur yfirumsjón með þjónustunni?

 
Mannvirkjastjóri,  mannvirkjastjori@fjardabyggd.is, sími 470 9000.

Byggingarlóðir

Hvaða þjónustu er verið að lýsa?

Umsókn um byggingarlóð.   Sjá upplýsingar um lausar lóðir

 

Fyrir hverja er þjónustan og/eða hvaða skilyrði eru sett til þess að hægt sé að sækja að sækja um þjónustuna?

Umsækjandi þarf að vera lögráða og hafa íslenska kennitölu

 

Hvað kostar þjónustan?

Greitt er fyrir lóðir samkvæmt gjaldskrá í  samþykkt um gatnagerðargjald, byggingarleyfisgjald og stofngjöld holræsa og vatnsveitu í Fjarðabyggð

 

 

Hvar er þjónustan veitt, hvenær, símanúmer og netfang?

 Umsóknareyðublöð má prenta út af vefnum eða fá þau afhent á bókasöfnunum.

 

Upplýsingar um umsóknafresti og móttöku umsókna.

Tekið er á móti umsóknum í bókasöfnunum og einnig má senda hana í pósti á skrifstofu Fjarðabyggðar, Hafnargötu 2, 730 Fjarðabyggð. Umsókn skal vera undirrituð af umsækjanda.

 

Hvaða gögnum þarf að skila?  

Útfylltu umsóknareyðublaði um byggingarlóð þar sem fram kemur nafn, heimili og kennitala umsækjanda. 

 

Ferli umsóknar  

1.     Umsókn berst umhverfis- og byggingasviði þar sem hún er yfirfarin, lóðarblað útbúið og gjöld framreiknuð.

2.     Bæjarráð tekur umsóknina til afgreiðslu á vikulegum fundum sínum.

3.     Lóðarhafa tilkynnt um úthlutun og sent lóðarblað ásamt reikningi vegna gatnagerðagjalda og umsýslugjaldi vegna úthlutunar.

4.     Lóð útsett þegar greiðsla gatnagerðagjalds hefur farið fram.  

5.     Gerð lóðarleigusamnings.

 

Nánari upplýsingar veitir skipulagsfulltrúi í síma 470-9000.

 

Hvernig eru ábendingar og kvartanir meðhöndlaðar?

Ábendingum og kvörtunum má koma til umhverfisstjóra - umhverfisstjori@fjardabyggd.is og forstöðumanns stjórnsýslu fjardabyggd@fjardabyggd.is í síma 470-9000.

 

 

Hver hefur yfirumsjón með þjónustunni?

Umhverfisstjóri - umhverfisstjori@fjardabyggd.is og í síma 470-9000.

Framkvæmdaleyfi

 

Hvaða þjónustu er verið að lýsa?

Framkvæmdaleyfi

 

Fyrir hverja er þjónustan og/eða hvaða skilyrði eru sett til þess að hægt sé að  sækja um þjónustuna?

Framkvæmdaleyfi er leyfi fyrir meiri háttar framkvæmdum sem ekki eru háðar byggingarleyfi svo sem leyfi fyrir gerð gatna, holræsa, vega og brúa annarra en göngubrúa í þéttbýli, jarðgangana, flugbrauta, dreifi- og flutningakerfa rafveitna, hitaveitna, vatnsveitna og fjarskipta, hafna, virkjana, efnistöku svæða, sorpförgunar og annarra meiriháttar framkvæmda sem áhrif hafa á umhverfið og breyta ásýnd þess.

Áður en framkvæmdaleyfi er veitt skal liggja fyrir hvort framkvæmdin sé háð mati á umhverfisáhrifum. Ef framkvæmd er háð mati á umhverfisáhrifum skal því lokið áður en framkvæmdaleyfi er veitt.

Umsókn um framkvæmdaleyfi skal vera skrifleg og undirrituð eða samþykkt af landeiganda.

 

Hvað kostar þjónustan?

Framkvæmdaleyfishafi greiðir þann kostnað sem umsókninni og eftirliti með framkvæmdinni fylgir.

 

Hvar er þjónustan veitt, hvenær, símanúmer og netfang?

Umsókn um framkvæmdaleyfi skal berast bókasöfnunum eða í pósti á skrifstofu Fjarðabyggðar, Hafnargötu 2, 730 Fjarðabyggð merkt  Skipulagsfulltrúa.

 

Hvaða gögnum þarf að skila?  

Umsækjandi framkvæmdaleyfis skal senda um það skriflega umsókn til umhverfis- og  skipulagsnefndar ásamt nauðsynlegum gögnum um fyrirhugaða framkvæmd.

Nauðsynleg gögn eru uppdráttur í þremur eintökum sem sýnir framkvæmd og afstöðu hennar í landi, nánar tiltekið yfirlitsuppdráttur í mælikvarða 1:50.000-1:5.000 þar sem fram koma mörk viðkomandi svæðis, tenging þess við þjóðveg, hæðarlínur og mannvirki sem fyrir eru á svæðinu. Þar sem það á við skal einnig leggja fram afstöðuuppdrátt í mælikvarða 1:2.000-1:1.000 þar sem fram koma mörk viðkomandi svæðis, hæðarlínur, mannvirki sem fyrir eru á svæðinu og upplýsingar um fyrirhugaðar framkvæmdir eftir því sem við getur átt. Auk þess fylgigögn þar sem fram kemur lýsing á framkvæmd og hvernig framkvæmd fellur að gildandi skipulagsáætlunum ásamt öðrum upplýsingum sem umhverfis- og skipulagsnefnd telur nauðsynlegar.

Umhverfis- og skipulagsnefnd getur í einstökum tilvikum afgreitt umsóknir um framkvæmdaleyfi á grundvelli skýrslu og úrskurðar um mat á umhverfisáhrifum og/eða deiliskipulags án þess að ákvæðum laga  sé fullnægt, enda þyki þá fullnægjandi grein gerð fyrir framkvæmd þar.

Ferli umsóknar  

1.     Umsókn skal berast skipulagsfulltrúa sem yfirfer hana og leggur fyrir umhverfis- og skipulagsnefnd.

2.     Umhverfis- og skipulagsnefnd tekur umsóknina til afgreiðslu.

3.     Bæjarstjórn staðfestir eða hafnar niðurstöðu umhverfis- og skipulagsnefndar.

4.     Skipulagsfulltrúi gefur út framkvæmdaleyfi. 

Nánari upplýsingar veitir skipulagsfulltrúi í síma 470-9000, skipulagsfulltrui@fjardabyggd.is

 

Hvernig eru ábendingar og kvartanir meðhöndlaðar?

Ábendingum og kvörtunum má koma til umhverfisstjóra - umhverfisstjori@fjardabyggd.is og forstöðumanns stjórnsýslu fjardabyggd@fjardabyggd.is í síma 470-9000.

 

Hver hefur yfirumsjón með þjónustunni?

Umhverfisstjóri umhverfisstjori@fjardabyggd.is – sími 470 9000.

Deiliskipulag

Hvaða þjónustu er lýst?  

Umsókn um nýtt eða breytt deiliskipulag. Deiliskipulag er skipulagsáætlun fyrir afmörkuð svæði eða reiti innan sveitarfélags sem byggð er á aðalskipulagi og kveður nánar á um útfærslu þess. Ákvæði um deiliskipulag eiga jafnt við um þéttbýli og dreifbýli. Sveitarstjórn ber ábyrgð á og annast gerð deiliskipulags. Tillaga að deiliskipulagi getur einnig verið unnin á vegum landeigenda eða framkvæmdaraðila og á kostnað þeirra. Deiliskipulag er háð samþykki sveitarstjórnar. Deiliskipulag tekur gildi þegar samþykkt þess hefur verið birt í B-deild Stjórnartíðinda.

Deiliskipulög í gildi

 

Fyrir hverja er þjónustan og/eða hvaða skilyrði eru sett til þess að hægt sé að  sækja um þjónustuna?

Þjónustan er fyrir þá sem hyggjast reisa mannvirki og/eða breyta ásýnd lands á landssvæði sem hefur ekki verið deiliskipulagt.

Hvað kostar þjónustan?

Breyting á deiliskipulagi eða nýtt deiliskipulag sem er unnið að ósk landeiganda eða framkvæmdaraðila er að öllu jöfnu alfarið á þeirra kostnað og er ekki samkvæmt gjaldskrá.

 

Hvar er þjónustan veitt, hvenær, símanúmer og netfang?

Skipulagsfulltrúi, Hafnargötu 2, 730 Fjarðabyggð veitir upplýsingar um þjónustuna í síma 470 9000, skipulagsfulltrui@fjardabyggd.is  

 

Upplýsingar um umsóknafresti og móttöku umsókna.

Umsækjandi um nýtt eða breytt deiliskipulag skal senda skriflega umsókn til skipulagsnefndar Fjarðabyggðar ásamt nauðsynlegum gögnum um fyrirhugaða framkvæmd.

 

Hvaða gögnum þarf að skila?  

Skipulagsfulltrúi veitir upplýsingar um nauðsynleg gögn hverju sinni.

 

Ferli umsóknar  

1.     Umsókn skal send skipulagsfulltrúa sem yfirfer hana og leggur fyrir umhverfis- og skipulagsnefnd. Nefndin eldur fundi einu sinni í mánuði að jafnaði.

2.     Umhverfis- og skipulagsnefnd tekur umsóknina til afgreiðslu.

3.     Bæjarstjórn staðfestir eða hafnar niðurstöðu umhverfis- og skipulagsnefndar.

4.     Tillagan fer í auglýsingarferli sbr. 25.gr.skipulags og byggingarlaga nr. 73/1997 eða ef um óverulega breytingu er að ræða fer tillagan í grenndarkynningu sbr. 2. mgr. 26.gr. sömu laga.

 

 

Hvernig eru ábendingar og kvartanir meðhöndlaðar?

Ábendingum og kvörtunum má koma til mannvirkjastjóra eða forstöðumanns stjórnsýslu fjardabyggd@fjardabyggd.is í síma 470-9000.

 

Hver hefur yfirumsjón með þjónustunni?

Mannvirkjastjóri í  síma 470 9000, mannvirkjastjori@fjardabyggd.is

 

Viðbyggingar

 

Hvaða þjónustu er verið að lýsa?

Sækja þarf um leyfi til viðbyggingar til byggingafulltrúa. Leyfið er  hluti af byggingarleyfisumsókn. Viðbygging er bygging sem byggð er við aðalbyggingu .

 

Fyrir hverja er þjónustan og/eða hvaða skilyrði eru sett til þess að hægt sé að sækja að sækja um þjónustuna?

Umsækjandi þarf að vera þinglýstur eigandi eignarinnar sem  byggja á við.

 

Hvað kostar þjónustan?

Sjá gjaldskrá í samþykkt um gatnagerðagjald, byggingarleyfisgjald, og stofngjald holræsa og vatnsveitu í Fjarðabyggð.

Hvar er þjónustan veitt, hvenær, símanúmer og netfang?

Fyrirspurnir um breytingar á húsnæði og hvort leyfisveiting kemur til greina eru sendar  byggingarfulltrúa á byggingarfulltrui@fjardabyggd.is eða í síma 470-9000.

 

Upplýsingar um umsóknarfresti og móttöku umsókna.

Umsóknir eru sendar byggingarfulltrúa á netfangið byggingarfulltrui@fjardabyggd.is, á Hafnargötu 2, 730 Fjarðabyggð eða afhentar á bókasöfnum Fjarðabyggðar.

 

Hvaða gögnum þarf að skila?  

Sótt er um breytingar á húsnæði á eyðublaði fyrir „byggingarleyfi“ sem hægt er að nálgast á  bókasöfnunum Fjarðabyggðar.  Sjá einnig gátlista um viðbótargögn (er í vinnslu)

 

Ferli umsóknar  

1. Umsækjandi sendir inn umsókn.

2. Byggingarfulltrúi tekur umsókn til meðferðar/afgreiðslu tvisvar í mánuði.

3. Málið fer fyrir umhverfis- og skipulagsnefnd sem heldur fund einu sinni í mánuði.

4. Svarbréf sent til umsækjanda.

 

Hvernig eru ábendingar og kvartanir meðhöndlaðar?

Ábendingum og kvörtunum má koma til umhverfisstjóra - umhverfisstjori@fjardabyggd.is og forstöðumanns stjórnsýslu fjardabyggd@fjardabyggd.is í síma 470-9000.

 

Hver hefur yfirumsjón með þjónustunni?

Umhverfisstjóri Fjarðabyggðar umhverfisstjori@fjardabyggd.is , sími 470 9000

 

Stöðuleyfi

 

Hvaða þjónustu er verið að lýsa?

Sótt er um stöðuleyfi til byggingarfulltrúa og er umsókn um það hluti af byggingaleyfisumsókn.  Stöðuleyfi er heimild til að staðsetja hjólhýsi, gám eða bát á tilteknum stað í takmarkaðan tíma. Stöðuleyfi getur gilt mest eitt ár í senn.

 

Hvað kostar þjónustan?



Sjá gjaldskrá í samþykkt um gatnagerðagjald, byggingarleyfisgjald, og stofngjald holræsa og vatnsveitu í Fjarðabyggð.

 

Hvar er þjónustan veitt, hvenær, símanúmer og netfang?

Fyrirspurnir um stöðuleyfi og hvort leyfisveiting kemur til greina eru sendar til byggingarfulltrúa á netfangið byggingarfulltrui@fjardabyggd.is eða í síma 470 9000.

 

Upplýsingar um umsóknafresti og móttöku umsókna.

Umsóknir eru sendar byggingarfulltrúa á netfangið byggingarfulltrui@fjardabyggd.is, á Hafnargötu 2, 730 Fjarðabyggð eða afhendar á bókasöfnum Fjarðabyggðar.

 

Hvaða gögnum þarf að skila?  

Sótt er um stöðuleyfi á eyðublaði  fyrir byggingarleyfi .  Sjá einnig „gátlista“ með upplýsingum um viðbótargögn (er í vinnslu)

 

Ferli umsóknar  

1. Umsækjandi sendir inn umsókn.

2. Byggingarfulltrúi tekur umsóknir til meðferðar/afgreiðslu tvisvar í mánuði.

3. Málið fer fyrir umhverfis- og skipulagsnefnd sem fundar einu sinni í mánuði.

4. Svarbréf sent til umsækjanda.

 

Hvernig eru ábendingar og kvartanir meðhöndlaðar?

Ábendingum og kvörtunum má koma til umhverfisstjóra - umhverfisstjori@fjardabyggd.is og forstöðumanns stjórnsýslu fjardabyggd@fjardabyggd.is í síma 470 9000.

 

Hver hefur yfirumsjón með þjónustunni?

Umhverfisstjóri Fjarðabyggðar í síma 470 9000 - umhverfisstjori@fjardabyggd.is

Niðurrif húsa

 

Hvaða þjónustu er verið að lýsa?

Niðurrif húsa er byggingarleyfisskyld framkvæmd og er hluti af byggingarleyfisumsókn.

 

Fyrir hverja er þjónustan og/eða hvaða skilyrði eru sett til þess að hægt sé að sækja að sækja um þjónustuna?

Umsækjandi þarf að vera þinglýstur eigandi eignarinnar.

 

Hvað kostar þjónustan

Gjald er innheimt við útgáfu leyfis. Gjaldskrá er í samþykkt um gatnagerðagjald, byggingarleyfisgjald, og stofngjald holræsa og vatnsveitu í Fjarðabyggð.

Hvar er þjónustan veitt, hvenær, símanúmer og netfang?

Beiðni um leyfi til niðurrifs á húsi er send til byggingarfulltrúa á netfangið  byggingarfulltrui@fjardabyggd.is eða í síma 470 9000.  Hægt er að fá eyðublöð á bókasöfnunum í Fjarðabyggð.

Upplýsingar um umsóknafresti og móttöku umsókna.

Umsóknir eru sendar byggingarfulltrúa á netfangið byggingarfulltrui@fjardabyggd.is á Hafnargötu 2, 730 Fjarðabyggð eða afhentar á bókasöfnum Fjarðabyggðar.

 

Hvaða gögnum þarf að skila?  

Sótt er um niðurrif húsa á eyðublaði fyrir „byggingarleyfi“ sem hægt er að nálgast á heimasíðu Fjarðabyggðar og á bókasöfnunum.  Sjá einnig gátlista með upplýsingum um viðbótargögn (sem er í vinnslu)

 

Ferli umsóknar  

1. Umsækjandi sendir inn umsókn.

2. Byggingarfulltrúi tekur málið til meðferðar innan 14 daga.

3. Málið fer fyrir umhverfis- og skipulagsnefnd sem fundar einu sinni í mánuði.

4. Umsækjandi fær sent svarbréf.

Hvernig eru ábendingar og kvartanir meðhöndlaðar?

Ábendingum og kvörtunum má koma til umhverfisstjóra - umhverfisstjori@fjardabyggd.is og forstöðumanns stjórnsýslu fjardabyggd@fjardabyggd.is í síma 470-9000.

Hver hefur yfirumsjón með þjónustunni?

Umhverfisstjóri Fjarðabyggðar - umhverfisstjori@fjardabyggd.is, sími 470 9000.

Byggingarleyfi

 

Hvaða þjónustu er verið að lýsa?

Sækja þarf um byggingarleyfi til að byggja nýtt hús, endurbyggja hús, rífa hús, byggja við hús eða breyta húsi. Einnig þarf byggingarleyfi fyrir sólpalla, girðingar, heita potta, garðhýsi og skúra.

 

Fyrir hverja er þjónustan og/eða hvaða skilyrði eru sett til þess að hægt sé að sækja að sækja um þjónustuna?

Húseigendur, lóðarhafa og umboðsmenn þeirra.

 

Hvað kostar hún?

Sjá gjaldskrá  í samþykkt um gatnagerðagjald, byggingarleyfisgjald, og stofngjald holræsa og vatnsveitu í Fjarðabyggð

 

Hvar er þjónustan veitt, hvenær, símanúmer og netfang?

Fyrirspurnum um byggingarleyfi og hvort leyfisveiting kemur til greina er svarað hjá byggingarfulltrúa byggingarfulltrui@fjardabyggd.is og  í síma 470-9000.

 

Upplýsingar um umsóknafresti og móttöku umsókna.

Umsóknir eru sendar byggingarfulltrúa á netfangið byggingarfulltrui@fjardabyggd.is, á Hafnargata 2, 730 Fjarðabyggð og einnig er hægt að afhenda umsóknir á bókasöfnum Fjarðabyggðar.

 

Hvaða gögnum þarf að skila?  

Sótt er um byggingarleyfi eyðublaði fyrir „byggingarleyfi“ sem hægt er að nálgast á heimasíðu Fjarðabyggðar og bókasöfnunum.  Sjá einnig gátlista (sem er í vinnslu)  um viðbótargögn

 

 

Ferli umsóknar  

1. Umsækjandi sendir inn umsókn.

2. Byggingarfulltrúi tekur umsóknir til meðferðar/afgreiðslu tvisvar í mánuði.

3. Málið fer fyrir umhverfis- og skipulagsnefnd sem fundar einu sinni í mánuði.

4. Svarbréf sent til umsækjanda.

 

Hvernig eru ábendingar og kvartanir meðhöndlaðar?

Ábendingum og kvörtunum má koma til umhverfisstjóra - umhverfisstjori@fjardabyggd.is og forstöðumanns stjórnsýslu fjardabyggd@fjardabyggd.is í síma 470-9000.  Ef umsókn er synjað getur umsækjandi kært niðurstöðu til úrskurðarnefndar skipulags- og byggingarmála og leiðbeinir byggingarfulltrúi um kæruleið og kærufrest. Úrskurður nefndarinnar er fullnaðarúrskurður á stjórnsýslusviði.

 

Hver hefur yfirumsjón með þjónustunni?

Umhverfisstjóri Fjarðabyggðar, umhverfisstjori@fjardabyggd.is  sími 470 9000.

Leyfi til breytinga á húsnæði

 

Hvaða þjónustu er verið að lýsa?

Sækja þarf um leyfi til breytinga á húsnæði til byggingarfulltrúa og er það hluti af byggingarleyfisumsókn. Með breytingum á húsnæði er átt við allar breytingar sem gerðar eru á húsnæði bæði að utan og innan.    Sem dæmi um minniháttar breytingar eru breytingar (á ytra útliti ) á gluggum og hurðum.

Einnig þarf að sækja um leyfi þegar breyta á starfsemi í húsnæði.

 

Fyrir hverja er þjónustan og/eða hvaða skilyrði eru sett til þess að hægt sé að sækja að sækja um þjónustuna?

Eigendur fasteigna og umboðsmenn þeirra.

 

Hvað kostar þjónustan

Sjá  gjaldskrá - í samþykkt um gatnagerðagjald, byggingarleyfisgjald, og stofngjald holræsa og vatnsveitu í Fjarðabyggð

 

Hvar er þjónustan veitt, hvenær, símanúmer og netfang?

Fyrirspurnir um breytingar á húsnæði og hvort leyfisveiting kemur til greina eru sendar til byggingarfulltrúa á netfangið byggingarfulltrui@fjardabyggd.is sími 470-9000.

 

Upplýsingar um umsóknafresti og móttöku umsókna.

 

Umsóknir eru sendar byggingarfulltrúa á netfangið byggingarfulltrui@fjardabyggd.is, á Hafnarbraut 2, 730 Fjarðabyggð eða afhentar á bókasöfnum Fjarðabyggðar.

 

Hvaða gögnum þarf að skila?  

 

Sótt er um breytingar á húsnæði á eyðublaði fyrir „byggingarleyfi“ sem einnig er hægt að nálgast á  bókasöfnum Fjarðabyggðar.

Hægt er að ná í „gátlista“ um viðbótargögn á heimasíðu Fjarðabyggðar.

 

Ferli umsóknar  

1. Umsækjandi sendir inn umsókn.

2. Byggingarfulltrúi tekur umsóknir til meðferðar/afgreiðslu tvisvar í mánuði.

3. Málið fer fyrir umhverfis- og skipulagsnefnd sem fundar einu sinni í mánuði.

4. Svarbréf sent til umsækjanda.

 

Hvernig eru ábendingar og kvartanir meðhöndlaðar?

Ábendingum og kvörtunum má koma til umhverfisstjóra - umhverfisstjori@fjardabyggd.is og forstöðumanns stjórnsýslu fjardabyggd@fjardabyggd.is í síma 470-9000.

 

Hver hefur yfirumsjón með þjónustunni?

Umhverfisstjóri Fjarðabyggðar - umhverfisstjori@fjardabyggd.is

Lóðarleigusamningur

 

Hvaða þjónustu er verið að lýsa?

Lóðarleigusamningur er samningur milli Fjarðabyggðar og lóðarleigjanda. Í  lóðarleigusamningi eru skilmálar fyrir leigu á lóð ásamt upplýsingum um stærð lóðar, notkun og staðsetningu.

 

Fyrir hverja er þjónustan og/eða hvaða skilyrði eru sett til þess að hægt sé að sækja að sækja um þjónustuna?

 Lóðarhafa og  umboðsmenn þeirra.

 

Hvað kostar hún? 


Lóðarleiga er samkvæmt lögum og samþykktum bæjarstjórnar hverju sinni.  Ársleiga er reiknuð í hlutfalli við fasteignarmat lóðar.

 

Hvar er þjónustan veitt, hvenær, símanúmer og netfang?

Fyrirspurnir um lóðarleigusamninga skal senda til byggingarfulltrúa á netfangið  byggingarfulltrui@fjardabyggd.is og í síma 470-9000.

 

Upplýsingar um umsóknafresti og móttöku umsókna.

Lóðarleigusamningur er gerður þegar lóð hefur verið úthlutað, byggingarleyfi hefur verið gefið út og undirstöður eru komnar á lóð.  Lóðarleigusamningur fyrir lóðir án mannvirkis er háður úthlutun lóðar.   Umsóknir eru sendar byggingarfulltrúa á netfangið byggingarfulltrui@fjardabyggd.is, á Hafnargötu 2, 730 Fjarðabyggð eða afhentar á bókasöfnum Fjarðabyggðar.

 

Ferli umsóknar  

1. Beiðni um gerð lóðarleigusamninga berst  byggingarfulltrúa.

2. Lóðarleigusamningur er unninn í samvinnu skipulagsfulltrúa og byggingarfulltrúa.

3. Lóðarleigusamningur er gerður í  þremur eintökum og sendur til lóðarhafa.

4. Lóðarhafi undirritar öll eintökin og sendir eitt aftur til byggingarfulltrúa en hin eintökin á að senda til þinglýsingar hjá sýslumanni sem heldur einu eintaki en hitt fer aftur til lóðarhafa.

5. Lóðarhafi greiðir  fyrir þinglýsingu.

 

Hvernig eru ábendingar og kvartanir meðhöndlaðar?

Ábendingum og kvörtunum má koma til umhverfisstjóra - umhverfisstjori@fjardabyggd.is og forstöðumanns stjórnsýslu fjardabyggd@fjardabyggd.is í síma 470-9000.

 

Hver hefur yfirumsjón með þjónustunni?

Umhverfisstjóri Fjarðabyggðar - umhverfisstjori@fjardabyggd.is  sími 470 9000.