Spurt og svarað um breytingar á húsnæði:



Leyfi til breytinga á húsnæði

 

Hvaða þjónustu er verið að lýsa?

Sækja þarf um leyfi til breytinga á húsnæði til byggingarfulltrúa og er það hluti af byggingarleyfisumsókn. Með breytingum á húsnæði er átt við allar breytingar sem gerðar eru á húsnæði bæði að utan og innan.    Sem dæmi um minniháttar breytingar eru breytingar (á ytra útliti ) á gluggum og hurðum.

Einnig þarf að sækja um leyfi þegar breyta á starfsemi í húsnæði.

 

Fyrir hverja er þjónustan og/eða hvaða skilyrði eru sett til þess að hægt sé að sækja að sækja um þjónustuna?

Eigendur fasteigna og umboðsmenn þeirra.

 

Hvað kostar þjónustan

Sjá  gjaldskrá - í samþykkt um gatnagerðagjald, byggingarleyfisgjald, og stofngjald holræsa og vatnsveitu í Fjarðabyggð

 

Hvar er þjónustan veitt, hvenær, símanúmer og netfang?

Fyrirspurnir um breytingar á húsnæði og hvort leyfisveiting kemur til greina eru sendar til byggingarfulltrúa á netfangið byggingarfulltrui@fjardabyggd.is sími 470-9000.

 

Upplýsingar um umsóknafresti og móttöku umsókna.

 

Umsóknir eru sendar byggingarfulltrúa á netfangið byggingarfulltrui@fjardabyggd.is, á Hafnarbraut 2, 730 Fjarðabyggð eða afhentar á bókasöfnum Fjarðabyggðar.

 

Hvaða gögnum þarf að skila?  

 

Sótt er um breytingar á húsnæði á eyðublaði fyrir „byggingarleyfi“ sem einnig er hægt að nálgast á  bókasöfnum Fjarðabyggðar.

Hægt er að ná í „gátlista“ um viðbótargögn á heimasíðu Fjarðabyggðar.

 

Ferli umsóknar  

1. Umsækjandi sendir inn umsókn.

2. Byggingarfulltrúi tekur umsóknir til meðferðar/afgreiðslu tvisvar í mánuði.

3. Málið fer fyrir umhverfis- og skipulagsnefnd sem fundar einu sinni í mánuði.

4. Svarbréf sent til umsækjanda.

 

Hvernig eru ábendingar og kvartanir meðhöndlaðar?

Ábendingum og kvörtunum má koma til umhverfisstjóra - umhverfisstjori@fjardabyggd.is og forstöðumanns stjórnsýslu fjardabyggd@fjardabyggd.is í síma 470-9000.

 

Hver hefur yfirumsjón með þjónustunni?

Umhverfisstjóri Fjarðabyggðar - umhverfisstjori@fjardabyggd.is